Fréttablaðið - 26.11.2020, Síða 3
S TJ Ó R N M Á L Fjárlagavinnan á
Alþingi er töluvert á eftir áætlun í ár,
miðað við það sem lagt var upp með í
starfsáætlun þingsins, sem gerði ráð
fyrir umræðu um breytingatillögur
nefndarinnar í þingsal í upphafi
þessarar viku.
„Vinnan nú hefur tafist aðallega
vegna aðstæðna,“ segir Willum Þór
Þórsson, þingmaður Framsóknar-
f lokksins og formaður fjárlaga-
nefndar, aðspurður um hvenær von
sé á nefndaráliti nefndarinnar og
breytingatillögum meirihlutans.
– aá / sjá síðu 4
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 5 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0
bioeffect.is — BIOEFFECT verslun, Hafnartorgi
VIÐSKIPTI Samtök atvinnulífsins
kalla eftir að stjórnvöld nýti reynsl-
una af baráttunni við útbreiðslu
kórónaveirunnar og útbúi skýran
ramma um aðgerðir næstu mánaða.
„Það er kominn tími til að draga
markvisst úr þessari langvarandi
óvissu og setja fram skýra áætlun
um aðgerðir til loka faraldursins,“
segir Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, í samtali við Frétta-
blaðið. Hann telur að sóttvarnaað-
gerðir næstu mánaða þurfi að upp-
fylla þrjú skilyrði.
Í fyrsta lagi að skýr og tíma-
sett áætlun sé um afléttingu tak-
markana. Í öðru lagi þurfi liðkun og
hömlur að vera tengdar við töluleg
viðmið, til dæmis nýgengi smits. Og
í þriðja lagi að sóttvarnaráðstafanir
séu innbyrðis samkvæmar, skiljan-
legar almenningi og höfðað sé til
ábyrgðar hvers og eins.
Nýgengi kórónaveirusmits, það
er smit á hverja 100 þúsund íbúa
síðustu tvær vikur, mælist hvergi
lægra en á Íslandi samkvæmt tölum
Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC).
„Núverandi ástand kallar ekki á
lömun samfélagsins eða viðvarandi
krísuástand. Góður árangur við
takmörkun útbreiðslu smita náðist
með samstilltu átaki,“ segir Halldór.
Þá leggur hann áherslu á að persónu-
legar sóttvarnir verði áfram undir-
staða í baráttunni gegn veirunni og
að þjóðin hafi lært mikið á þessu ári.
„Rýmkun takmarkana á sama
tíma og almenningur er hvattur
til ábyrgrar hegðunar þarf ekki að
valda sjálfkrafa aukningu nýrra til-
fella,“ bætir hann við.
Núverandi takmarkanir, sem
miða við að tíu manns megi koma
saman, falla úr gildi 2. desember.
Halldór bendir á að smit muni halda
áfram að greinast þar til landsmenn
verði bólusettir. „Í því ljósi er mikil-
vægt að sóttvarnaaðgerðir séu ítar-
lega rökstuddar og njóti skilnings og
samstöðu samfélagsins alls.“
– þfh / sjá síðu 12
Tímabært að draga úr óvissu
Samtök atvinnulífsins kalla eftir meiri fyrirsjáanleika í sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. Hægt sé að tengja
liðkun og hömlur við töluleg viðmið eins og nýgengi smits. Ekki séu forsendur fyrir lömun samfélagsins.
Það er kominn tími
til að draga mark-
visst úr þessari langvarandi
óvissu.
Halldór Benja-
mín Þorbergsson,
framkvæmda-
stjóri SA
Álag tefur
fjárlagavinnu
Willum Þór Þórs-
son, formaður
fjárlaganefndar
Fólk flykktist út á götu í Napólí þegar fregnir bárust af andláti argentínsku goðsagnarinnar Diego Armando Maradona en hann var í guðatölu í borginni á meðan hann spilaði þar. Þriggja daga
þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Argentínu. „Það var unun að sjá hann spila og njóta þess heiðurs að vera inni á sama velli og hann,“ segir Arnór Guðjohnsen um Maradona. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA