Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 6

Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 6
S TJ Ó R N M Á L Fjárlagavinnan á Alþingi er töluvert á eftir áætlun í ár, miðað við það sem lagt var upp með í starfsáætlun þingsins, sem gerði ráð fyrir umræðu um breytingatillögur nefndarinnar í þingsal í upphafi þessarar viku. Ljóst er að breytinga- tillögur koma ekki fram fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku og mögulega ekki fyrr en í þarnæstu viku. „Vinnan nú hefur tafist aðallega vegna aðstæðna,“ segir Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknar- f lokksins og formaður fjárlaga- nefndar, aðspurður um hvenær von sé á nefndaráliti nefndarinnar og breytingatillögum meirihlutans. Ástæður tafanna séu margar. Fjár- lögin voru lögð fram mánuði síðar en venjulega, á grundvelli endurskoð- aðrar stefnu frá í september. Þá hafi nefndin þurft að fjalla um ríkisfjár- málaáætlun sem var lögð fram sam- hliða af sömu ástæðu, en sé venju- lega lögð fram að vori. Í þriðja lagi hafi breytingar á lögum um opinber fjármál verið til umræðu í nefndinni í haust vegna skilyrða um heildar- jöfnuð og skuldahlutfall sem taka eigi úr sambandi út áætlunartímabilið. Þá sé von á fimmta fjárauka- lagafrumvarpinu sem verði óvenju umfangsmikið og eigi að mæta COVID-kostnaði heilbrigðiskerfis- ins, fjármögnun mótvægisaðgerða, vinnumarkaðar og atvinnuleysis, fjölgun nemenda í framhaldsskólum og háskólum og fleiri kostnaðarliði tengda faraldrinum. Að lokum sé kominn til nefndarinnar viðbótar bandormur um forsendur fjárlaga, en aðeins einn hafi verið afgreiddur úr nefndinni. „Allt þetta kallar á mikið púsluspil og þá á eftir að raða nauðsynlegum breytingatillögum vegna mótvæg- isaðgerða inn á næsta ár, í samhengi við fjáraukalagafrumvarp, forsend- ur fjárlaga og mögulegar breytingar á fjármálaáætlun,“ segir Willum. Nefndin þurfi að sjá fram úr öllu þessu auk yfirsýnar um fjölda umsagna um fjárlögin og samtölum sem nefndin hefur átt vegna frum- varpsins. „Við erum enn að taka á móti gestum, nú síðast Landspítalanum, og eigum von á ráðuneyti vegna spítalans á föstudag, sem og kynn- ingu á fjáraukalagafrumvarpi, sem stefnt er á að fjármálaráðherra mæli fyrir í dag,“ segir Willum. Fulltrúar minnihlutans í fjárlaga- nefnd telja margt óklárað í fjárlaga- vinnunni. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, nefnir hallarekst- ur Landspítalans sem dæmi. Hann sé meðal annars tilkominn vegna vanáætlunar fjármálaráðuneytis- ins á launahækkunum samkvæmt kjarasamningum og kostnaði vegna mönnunarvanda. „Hvernig getur verið boðlegt að það þurfi að skera niður þjónustu til þess að koma til móts við halla- rekstur sem er að miklu leyti tilkom- inn vegna klúðraðra kjarasamninga ríkisins sem hafa endað hjá gerðar- dómi?“ spyr Björn Leví. Hann nefnir einnig fjárþörf bæði hjá Persónuvernd og Umboðsmanni Alþingis sem þurfi að bregð ast við og skuldbindingar stjórnvalda vegna Lífskjarasamningsins, einkum í almannatryggingakerfinu. Ágúst Ólafur Ágústsson, Sam fylk- ing unni, segir of litla áherslu lagða á atvinnusköpun og fjárfestingar. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gangi ekki nógu langt til að sporna gegn stórauknu atvinnuleysi. „Fjárlög þurfa að fókusera á atvinnu sköpun og fjárfestingar. Þessi fjárlög gera það ekki, enda er fjárfestingarátakið einungis 1 pró- sent af landsframleiðslu og lækk- ar það atvinnuleysi einungis um 1 prósentustig. Síðan er haldið í að halds kröfu á sjúkrahús og skóla sem er furðuleg pólitík á tímum COVID,“ segir Ágúst Ólafur. adalheidur@frettabladi.is ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla. Úrval af felgum fyrir Jeep® og RAM Upphækkunarsett í Wrangler Upphækkunarsett í RAM Falcon demparar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00 ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK. FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI BREYTINGAR Á JEEP®, RAM OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323 UMBOÐSAÐILI SKIPULAGSMÁL „Íbúaráð Kjalarness harmar það að á kynningarfundi Reykjavíkurborgar um breytingar á aðalskipulagi 18. nóvember, var hvergi hægt að sjá Kjalarnes á kort- um né minnst á skipulag þar,“ segir í bókun íbúaráðs. Verið var að ræða um drög að til- lögum að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030, end- urskoðun á stefnu um íbúabyggð og blandaða byggð og framlengingu skipulagstímabils til ársins 2040. Þar er hvergi minnst á Kjalarnes, sem íbúaráðið er ósátt við, og bend- ir borginni á að Kjalarnesið sé hluti af Reykjavík og óásættanlegt að það sé ekki tekið með þegar fjallað er um skipulagsbreytingar. Sigrún Jóhannsdóttir, formaður ráðsins, varðist frétta og benti á borgina. Þar fengust þau svör að sú aðalskipulagstillaga sem sé nú til umræðu og kynningar nái ekki til aðalskipulagsins í heild. Ekki sé verið að boða nýtt aðalskipu- lag fyrir Reykjavík, þrátt fyrir að skýrslurnar Aðalskipulag Reykja- víkur 2010-2040, Landnotkun og helstu byggingarsvæði og Reykja- vík 2040 og Nýr viðauki við Aðal- skipulag Reykjavíkur 2010-2030, hafi verið lagðar fram. „Til stendur að ráðast í aðra stóra breytingu á aðalskipulaginu á næsta ári, samhliða gerð hverfisskipulags í Grundarhverfi og nágrenni, þar sem horft er á Kjalarnesið í heild, landbúnaðarsvæðin og önnur opin svæði.“ – bb Reykjavíkurborg gleymdi Kjalarnesi í tillögum sínum Íbúaráð Kjalarness harmar af- skiptaleysið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NÁTTÚRA Nýr stígur hefur verið lagð- ur við Sólheimajökul, en hann leiðir gesti að útsýnissvæði þar sem mögu- legt er að horfa til jökuls og lóns. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, opnaði stíginn í gær. Gerð stígsins var samstarfsverk- efni atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytisins og hagsmunaaðila á svæðinu í tengslum við Safe Travel verkefni Landsbjargar. Sólheimajökull er einn af vin- sælli viðkomustöðum ferðamanna á Íslandi en aðstöðu fyrir gesti hefur verið ábótavant. Með umbótunum hefur útsýnis- svæðið stækkað talsvert og með einföldum hætti verður upplifun gesta meiri og betri á þessum vin- sæla áfangastað en áður. Þá er öryggi meira með tilkomu stígsins og hæg- ara um vik að stýra fjölda þeirra sem ganga um svæðið hverju sinni. „Við Sólheimajökul voru veruleg tækifæri til úrbóta en staðurinn fellur af ýmsum ástæðum ekki sér- lega vel að tveimur helstu tækjum stjórnvalda á þessu sviði, sem eru Framkvæmdasjóður ferðamanna- staða og Landsáætlun um uppbygg- ingu innviða á ferðamannastöðum. Það er því ánægjulegt að samstarf skyldi takast á milli ráðuneytisins, landeigenda og Safe Travel um að ráðast í þessar mikilvægu úrbætur,“ sagði Þórdís Kolbrún um fram- kvæmdina, sem kostaði 11 milljónir. Um 70 prósent af svæðinu sem fram- kvæmdirnar ná yfir eru á þjóðlendu og 30 prósent eru í einkaeign. – hó Aðstaðan við Sólheimajökul bætt til muna Mikið álag tefur fjárlagavinnu Aðstæður í þjóðfélaginu valda álagi á fjárlaganefnd og atkvæði verða greidd um fjárlög seinna en ella. Fulltrúar í minnihluta telja enn eiga eftir leysa vanda Landspítalans og efla aðgerðir gegn atvinnuleysi. Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar, segir starf nefndarinnar ærið þetta haust og erfitt að halda yfirsýn vegna allra þeirra ráðstafana sem grípa hefur þurft til vegna heimsfaraldursins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ráðherra fór á Sólheimajökul i gær og opnaði stíginn. MYND/AÐSEND Hvernig getur verið boðlegt að það þurfi að skera niður þjón- ustu til þess að koma til móts við hallarekstur sem er að miklu leyti tilkominn vegna klúðraðra kjarasamninga ríkisins? Björn Leví Gunn- arsson, þing- maður Pírata Fjárlög þurfa að fókusera á atvinnu- sköpun og fjárfestingar. Þessi fjárlög gera það ekki. Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylk- ingarinnar 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.