Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 21
Enn sem komið er hefur enginn flokkur lagt fram kosninga-stefnuskrá. Eigi að síður eru
umræður hafnar um hvers konar
stjórnarmynstur séu möguleg að
kosningum loknum.
Forsætið
Forsætisráðherra og formaður
VG er varfærin í yfirlýsingum um
þetta efni umfram það að stað-
festa ánægjuna með samstarfið
við Sjálfstæðisflokkinn. Fjármála-
ráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins hefur lagt áherslu á að
leiða næstu ríkisstjórn.
Samkvæmt þessu kemur til
samninga milli VG og Sjálf-
stæðisflokksins um forsætið haldi
stjórnarflokkarnir velli. Stjórnar-
samstarf þessara flokka tók úr leik
átökin um hlut ríkisins í þjóðar-
kökunni, sem lengstum hafa rist
dýpst í kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn boðaði
minni ríkisumsvif og lægri skatta
og VG aukin ríkisumsvif og hærri
skatta. Í reynd hefur hlutfall ríkis-
útgjalda haldist óbreytt það sem
af er þessari öld. Segja má að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi keypt sam-
starf við aðra flokka nær miðjunni
því verði. Það snerist við þegar
þessi stjórn var mynduð.
Aukin varanleg ríkisútgjöld
Þá urðu óbreytt ríkisútgjöld gjald
VG fyrir forsætið. Ætli Sjálfstæðis-
flokkurinn sér forsætið hlýtur það
aftur á móti að leiða til samninga
um verulega aukin varanleg
ríkisútgjöld óháð tímabundnum
kostnaði vegna veirunnar. Vand-
séð er að VG geti varið umskiptin
með öðrum hætti.
Ákveði kjósendur að veita
stjórnarflokkunum áframhald-
andi umboð þýðir það því tvennt:
Annars vegar nýjan forsætisráð-
herra og hins vegar stærri hlut
ríkisins í þjóðarbúskapnum.
Prinsippið varðandi aukin
útgjöld vegna veirukreppunnar
hefur snúist um það að þau væru
tímabundin en ekki varanleg. Í síð-
asta pakka gaf fjármálaráðherra
þetta prinsipp upp á bátinn. Það
gæti bent til að hann væri farinn
að huga að endurnýjun stjórnar-
samstarfsins á þessum grundvelli.
Opnar dyr og lokaðar
Formaður Samfylkingarinnar, sem
er næst miðjunni vinstra megin,
hefur talað mjög skýrt í þá veru að
hann telji samstarf við Miðflokk
og Sjálfstæðisflokk mjög fjar-
lægt, en er opinn gagnvart öðrum
flokkum.
Þetta getur samt orðið snúið því
að líta verður svo á að núverandi
stjórnarsamstarf hafi falið í sér
það mat VG að Sjálfstæðisflokkur-
inn standi þeim málefnalega nær
en Samfylkingin. Samstarfið í
ríkisstjórninni er vísbending um
að það sé rétt mat.
Formaður Viðreisnar hefur sagt
að hún útiloki engan kost fyrir-
fram og málefni verði alfarið látin
ráða. En sú staða er líka snúin fyrir
f lokk, sem er næst miðjunni hægra
megin. Það hefur nefnilega ekki
breyst að Sjálfstæðisflokkurinn
telur sig standa nær VG en bæði
Viðreisn og Samfylkingu.
Þetta eru útlínurnar í þeirri
mynd, sem við blasir tíu mánuðum
fyrir kosningar. Ýmsum spurn-
ingum er þó enn ósvarað. Munu
Hvers kyns ríkisstjórn verður í boði?
AF KÖGUNARHÓLI
þjóðernispopúlískar skoðanir ná
einhverju flugi? Fá sósíalískar hug-
myndir frá kreppuárum síðustu
aldar stuðning? Hvort tveggja
getur sett strik í reikninginn.
Einfaldar málefnalínur
en flókin stjórnarmyndun
Þungamiðjan í pólitík næsta ára-
tugar verður að koma í veg fyrir að
greiðslubyrðin af skuldum ríkis-
sjóðs skerði velferðarkerfið. Til
þess að svo megi verða þurfa tölur
um hagvöxt að vera töluvert hærri
en vextir. Aðeins þannig vinnum
við okkur út úr skuldafarginu.
Áframhaldandi stjórn Sjálfstæð-
isflokks og VG mun leiða til þess að
hlutur ríkisins mun vaxa á kostnað
atvinnulífsins, engin kerfisleg upp-
stokkun verður í efnahagslífinu og
ný tækifæri í fjölþjóðasamvinnu
ekki nýtt. Þessi stefna byggir á því
að endurreisn ferðaþjónustunnar
dugi ein og sér til að búa til hag-
vaxtartölur sem verða hærri en
vextirnir. Þetta gæti heppnast en
áhættan er mikil.
Allsendis er óvíst hvort Við-
reisn og Samfylking ná saman um
umfang ríkisumsvifa. En f lokk-
arnir tala báðir með svipuðum
hætti um breytingar í efnahags-
málum og alþjóðasamvinnu. Þær
miða að því að ryðja hindrunum
úr vegi fyrir mun fjölbreyttara
atvinnulíf. Þetta er ekki trygging
en eykur líkurnar á að atvinnu-
lífið geti hlaupið hraðar til að verja
velferðina.
Kjósendur geta valið út frá
þessum tiltölulega einföldu mál-
efnalínum. En stjórnarmyndunin
sjálf verður væntanlega f lóknari.
Þorsteinn
Pálsson
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0