Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 26

Fréttablaðið - 26.11.2020, Side 26
Esther er fædd árið 1994 í borginni Livermore í Kali-forníu. „Ég kem úr stórri fjölskyldu en foreldrar mínir eignuðust tíu börn. Ég dýrka kvikmyndir frá þriðja til sjöunda áratugarins, gamla tónlist, nýja tónlist, að syngja, lesa, skrifa, yrkja, teikna og auðvitað að breyta útliti mínu. Hárkollur, farði, allt þetta stelpulega dót. Ég klippi og lita hárið mitt sjálf en ef það er eitthvað sem ég get lært í gegnum netið þá kýs ég frekar að gera það sjálf. Það er of skemmti- legt til þess að láta einhvern annan gera það.“ Klæddist bolum af pabba Það var ástin sem leiddi Esther á hjara veraldar. „Ég f lutti til Íslands fyrir tæpum tveimur árum. Við Trausti Laufdal, eiginmaður minn, ákváðum að á Íslandi væri mun öruggara umhverfi fyrir dóttur okkar Alice, sem er nú tveggja ára gömul. Auk þess sem ég hata hitann í Kaliforníu, kýs frekar að vera ískalt en að svitna eins og foss.“ Þetta reyndist hárrétt ákvörðun þar sem Esther kolféll fyrir Íslandi. „Ég elska að búa hérna. Ég elska löngu, dimmu veturna þar sem ég get verið innandyra og skapað. Ísland er núna heimili mitt.“ Þegar hún er spurð hvers hún sakni nefnir hún nokkra hluti. „Ég sakna fjölskyldunnar minnar og að sjálfsögðu San Fransisco, allra þjóðgarðanna, fallega landslags- ins og Target.“ Esther segist ekki hafa haft ákveðnar skoðanir á því hverju hún klæddist á sínum yngri árum. „Nei, reyndar klæddist ég bolum af pabba mínum í skólanum þegar ég var í fjórða bekk. Ég hafði ekki tískuvitund, klæddist bara því sem ég vildi og mér var gefið. Ég hafði ekki mikið um það að segja hvaða föt ég ætti svo ég lærði bara að láta það ganga. Í stað þess að mislíka það, þá elska ég núna þegar fólk gefur mér gömul föt af sér.“ Hefurðu áhuga á tísku? „Ég held að ég sé minna hrifin af tísku og frekar hrifin af því að skapa. Fyrir mér er það að klæða mig, velja hárkollu, farða eða engan farða, bara enn ein leiðin fyrir mig til þess að fá útrás fyrir sköpunargleðina.“ Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Esther sækir innblástur víða, hvort sem það er frá ókunn- ugum eða úr tónlist, og segir tilfinningar og líðan hafa mikil áhrif á fataval. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Esther hyggst gefa út sína aðra ljóðabók í vetur sem hún mun sjálf sjá um að mynd- skreyta. Hvernig myndirðu lýsa þínum stíl? „Ég á mér í raun engan stíl, ég fíla að blanda saman fötum í göml- um stíl við dót úr nútímanum.“ Hvar færðu innblástur? „Frá tilfinningum mínum, alltaf. Á hverjum degi upplifum við nýjar tilfinningar og klæðum okkur því á nýjan hátt.“ Áttu þér tískufyrirmynd/ir? „Ég verð að segja Rihanna, Rihanna, Amy Winehouse, Yoko Ono, Marilyn Monroe, Veronica Lake, Brody Dalle og Harry Styles, svo eitthvað sé nefnt. Almennt fæ ég innblástur frá ókunnugum, kvikmyndum, tilfinningum og ég fæ hugmyndir að fatavali með því að fylgjast með heiminum í kringum mig.“ Hvaða f lík keyptirðu síðast? „Ekki hugmynd, sennilega eitthvað leiðinlegt eins og hlý undirföt.“ Hver er þinn helsti veikleiki þegar kemur að fötum? „Ég gleymi því að það er ég sem klæðist fötunum en ekki öfugt. Ég horfi á líkama minn og hugsa: lík- ami minn er í ólagi, hann verður að líta svona út svo að ég verð að klæðast þessu. Ég er smám saman að losna undan þessum hugsunar- hætti. Geri þetta skemmtilegt. Ofhugsa ekki hvernig líkami minn lítur út. Það sem skiptir máli er að finnast maður lifandi þegar maður klæðir sig, og skapandi.“ Fjársjóðsleit og ljóðabók Esther kaupir að mestu leyti notuð föt. „Ég elska að grúska í búðum sem selja notuð föt eins og Hertex, Loppunni, Extraloppunni og Nytjamarkaðinum. Líka í fata- skáp eiginmanns míns. Ég finn svo svalt dót í skápnum hans, gamla hatta og stuttermaboli. Ég elska búðir sem selja notuð föt vegna þess að þegar þú ferð í góða þann- ig, þá veistu, að einhvers staðar í búðinni er f lík sem er svo algjör- lega einstök að þú munt aldrei sjá neinn annan klæðast henni. „Vintage“ eða bara gamaldags f líkur. Þetta er eins og fjársjóðsleit og veskið mitt er mér þakklátt,“ segir hún. „Ég fann helling af gömlum höttum af eiginmanni mínum í geymslunni nýlega, svo að ég er aðeins farin að prófa mig áfram með þá. Þú veist ekki að þú sért hattamanneskja fyrr en þú finnur þann rétta.“ Það er ýmislegt fram undan í vetur hjá Esther. „Næst á dagskrá hjá mér er að setja saman mína aðra ljóðabók og gera hana tilbúna fyrir útgáfu. Fyrsta bókin mín, Drunk driving into your soul, var ekki með neinar teikningar eftir mig, svo að núna er ég mjög spennt fyrir því að bræða þetta tvennt saman, blekteikningarnar mínar og ljóðin mín.“ Esther elskar langan og dimman íslenska veturinn. TAKK FYRIR blóðgjafirnar á árinu Ég fann helling af gömlum höttum af eiginmanni mínum í geymslunni nýlega og er aðeins að prófa mig áfram með þá. Þú veist ekki að þú sért hatta- manneskja fyrr en þú finnur þann rétta. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.