Rit Búvísindadeildar - 15.06.1996, Page 20
hliðstæða greiðslu í samræmi við geymslutíma lifandi lamba sem slátrað er innan
greiðsiumarks. Þetta er þáttur sem þarf að athuga. Auk þessa má benda á að þar
sem miðað er við að selja þetta kjöt ferskt ætti kostnaður vegna frystingar að falía
niður og sláturkostnaður þar af leiðandi að lækka eitthvað.
Verð fyrir gæru og ull verður einnig að skoða. Samkvæmt upplýsingum
frá Landbúnaðarráðuneytinu þá ætti ekki að borga niðurgreiðslur á ull af lömbum
sem send eru í sláturhús og eru innan greiðslumarks.
Miðað við núverandi aðstæður er augljóslega hagkvæmast að framleiða
lömb sem fara í DIA strax uin haustið, en þar sem ávallt er eitthvað af
smálömbum (lambgimbrartvílembingar, þrílembingar o.s.frv.), þá er það engin
spuming hvort hagkvæmara er að leggja lömbin inn um leið og þau verða
innleggshæf (DIA) heldur en að ala þau fram eftir vetri. Það er nokkuð Ijóst að
einhverjar breytingar þarf að gera í tengslum við þessa framleiðslu ef hún á að
verða fýsilegur kostur fyrir bændur. En þá er það spumingin, eru neytendur
tilbúnir að borga hærra verð fyrir ferskt lambakjöt? Hvað emm við þá að tala um
stóran markað? Einnig er spuming hvort möguleiki sé á að flytja út ferskt kjöt á
nægjanlega háu verði. Erfitt er að segja til um framhaldið þar sem óvissutímar
era framundan í sauðfjárrækt. Þessi gögn verða þó til staðar og má vel heimfæra
þau upp á nýjar aðstæður.
12