Rit Búvísindadeildar - 15.06.1996, Blaðsíða 30
SKIPULAG OG FRAMKVÆMD
Á fyrstu fundum var ákveðið að koma upp verkefnisstjóm sem í vora:
Sveinn Hallgrímsson, kennari, Hvanneyri,
Ásbjöm Sigurgeirsson, bóndi, Ásbjarnarstöðum,
Gunnar Guðmundsson, forstöðumaður Afurðasviðs KB.
Jafnframt var Sveinn Hallgrímsson ráðinn verkefnisstjóri. Á fundum
verkefnisstjómar og fundum með þátttakendum komu upp margvísleg vandamál,
varðandi fullvirðisrétt o.fl. en þau leystust öll farsællega.
Til að ná markmiðum sem sett voru var eftirfarandi verkáætlun samþykkt:
1. Verkefnisstjóri heimsækir alla þátttakendur í upphafi og ræðir
um skipulag, tilgang og framkvæmd verksins og skoðar lömbin
sem ætluð eru í verkefnið.
2. Aftur verður farið í heimsókn og lömb metin fyrir hverja
slátrun.
3. Á lifandi lömbum verða eftirfarandi eiginleikar metnir.
* Hold á baki - metin og niðurstaða gefin í stigum.
* Lærahold - metin og gefin stig.
* Fita - metin með átaki á síðu u.þ.b. þar sem fita er mæld á
skrokkunum. (Sigurgeir Þorgeirsson 1991).
* Lömb vegin í upphafi og við hvert mat eða slátrun.
4. Metið skal hvort lambið er "sláturhæft" út frá ofannefndum
tölum.
Við einkunnagjöf var notaður einkunnaskali frá 1 til 5 með
möguleika á + og - (frá 1, 1+...5- og 5) alls 13 möguleikum.
Lambið var talið sláturhæft við einkunnir frá 3- til 5 fyrir bak
og læri, frá 2+ til 4 fyrir fitu, annars of magurt eða of feitt.
(Sveínn Hallgrímsson 1983)
5. Öll lömb sem ekki náðu mati verði látin bíða til næstu
slátrunar. Þá skulu lömb aftur metin á sama hátt.
6. Skrokkamir metnir eins og venjulega en síðan gefin
eftirfarandi stig:
* Fyrir holdfyllingu í baki og á herðum.
* Fyrir holdfyllingu í lærum. Hér er þó í raun um mat á
lærum og mölum að ræða.
* Mæld fituþykkt í mm ofan á þriðja aftasta rifbeini.
Fallþungi var skráður fyrir hvert fall og númer lesin á íömbum fyrir
slátrun.
Ýmis tæknileg vandamál komu upp s.s. mat á kjöti í fullvirðisrétt, talning
inn á forðagæsluskýrslur m.m. Félag sauðfjárbænda tók á sig mikla vinnu við
úrlausn þessara mála, auk þess sem tíma tók að fá úr því skorið hvort meta ætti
16