Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Blaðsíða 14
Áburður og kalk
í þeim athugunum sem hér er skýrt frá, var fyrstu árin of mikið notað af áburði.
Þetta varð til þess að blaðvöxtur varð óhæfilega mikill, sem dró úr myndun blóma
og beija.
Árin 1977-1980 voru 3 kg/m.2 af sauðataði borin í beðin, þegar plönturnar
voru gróðursettar. Seinna var borið á 0,24-0,7 kg/m^ af fosfór, 0,45-0,8 kg/m^ af
kalí og stundum 0,3 kg/m^ af brennisteini. Aðeins einu sinni, 1980 var kalkað og
þá með 3,7 kg/m^ af kalki. Enda er það svo að jarðvegur fyrir jarðarber má vera
fremur súr (Nes, A. 1984).
Árin 1981-1988 voru venjulega borin á um 2 kg/m^ af sauðataði og 0,3-0,5
kg/m^ af fosfór og 0,6-0,8 kg/rn^ af kalíi, við gróðursetningu. Þegar farið var að
rækta jarðarberi í pottum var blandað í þá ögn af sauðataði, ásamt fosfór og kalí.
Meinvaldar í jarðarberjunum
í þeim athugunum, sem hér er fjallað um, hefur nokkuð borið á sjúkdómum í
plöntum og/eða berjum. Aðallega hafa berin skemmst af myglu, sennilega grá-
myglu. Reynt var að komast hjá því að nota plöntuvamarefni gegn myglunni, þó
voru blómin stöku sinnum úðuð, ef mygla hafði verið áberandi árið áður og var
þá notað dichlofluanid (Euparen).
Nokkrum sinnum gerðu sniglar harða hríð að berjunum og var þeim þá bægt
frá með sniglaeitri. Árið 1983 virtist einhver truflun verða á blómgun plantnanna,
blómgunin hófst 27. maí og hélt viðstöðulaust áfram allt sumarið fram á haust.
Berin voru mjög smá. Þetta hefur ekki komið fyrir síðan, að minnsta kosti ekki í
sama mæli.
í upphitaða gróðurhúsinu bar dálítið á blaðlús og fyrir kom að það varð að
eyða henni með permethrin (Permasect 25 EC).
Frjóvgun blómanna
Ef jarðarbeijarækt á að heppnast vel verður að vera tryggt að frjó berist frá
fræflum blómanna á frævur þeirra. Á íslandi er lítið um skordýr, sem bera ftjó.
Þess vegna er nauðsynlegt að fijóvga blómin með öðru móti. Á Hvanneyri var
reynt að láta vindinn bera frjóið eða fijóvga blómin með höndum, t.d. með því að
bera bómullarhnoðra að blómunum og vona að fijóið berist á milli þeirra með
hnoðranum.
9