Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Side 32
Ræktun jarðarberja í heitum gróðurhúsum
Á síðustu árum hefur ræktun jarðarberja og framleiðsla á plöntum til útplöntunar
í heitum gróðurhúsum farið í vöxt í nokkrum löndum, t.d. í Hollandi, Belgíu,
Bandaríkjunum og Japan (Dypedal, H. og Sanna, E., 1994). Besti markaður fyrir
ber úr gróðurhúsum er að vetrinum, t.d. um jólin. Við þessa ræktun hafa menn
notað raflýsingu að vetrinum, til að auka birtuna. Þeir nota ca.8-10000 luxa
ljósmagn og láta ljósin loga daglega í ákveðinn tíma. Þegar plöntumar em að
mynda blómvísa, verða þær að vera í myrkri í 14 klst. á sólarhring, nema um sé
að ræða nýju afbrigðin, sem em óháð birtu. Sumir framleiðendur nota
koltvísýring til að auka sprettuna en frekar. Meiri hætta er á alls konar
meindýmm og sjúkdómum í heitum gróðurhúsum en úti.
í gróðurhúsum er fijóvgun á blómunum að sjálfsögðu vandamál. Líklega er
aðallega notuð "vindfrjóvgun". Blásið er á blómin með blásara, svo að frjóin
fjúka um húsið. Barland S. (1994) segir, að þessi ffjóvgunaraðferð hafi varla
reynst nógu vel. Þess vegna hafa menn tekið hunangsflugur eða býflugur í
þjónustu sína. Vegna hegðunar tegundanna em hunangflugur ekki nothæfar á
vetuma, en hins vegar vinna býflugumar vel á hvaða tíma árs sem er og láta ekki
rafljós tmfla sig, en þær era leiðinlegar í umgegni.
f Hollandi og Belgíu er nokkurra áratuga hefð fyrir ræktun jarðarbeija í
gróðurhúsum. Norðmenn em að prófa sig áfram með gróðurhúsaræktun jarðar-
berja. Þeir telja nauðsynlegt að ná tveimur uppskemm, ef gróðurhúsarækt á að
bera sig. Hollendingar ná þremur uppskerum af jarðarberjum á ári í gróðurhúsum
(Kvamme, T. og Bjelland B. 1992 A. Áðumefndir höfundar benda á, að jarðar-
berjaræktun geti verið úrræði fyrir þá garðyrkjumenn í Noregi, sem eiga gömul
gróðurhús, sem þeir verða að úrelda. í Mið-Evrópu fer jarðarberjaræktun í
gróðurhúsum fram í steinull, mómold eða vatni og í alls konar kössum, pokum
eða hólfum í tröppum, til að sem mest komist af plöntum í húsið og auðvelt sé að
tína berin. Hins vegar segir Lieten F. (1994) að 90% af garðyrkjubændum, sem
em með jarðarber í gróðurhúsum í Hollandi og Belgíu, rækti þau í litlum
plastpokum með mómold í og noti dropavökvun. Pokamir taka 8-10 1 og í þá er
plantað fjómm plöntum. Oft em pokarnir hengdir upp, sem auðveldar berjatínslu.
Hindberjaafbrigðið Baldur
Baldur er norskt afbrigði af hindberjum, sem hlaut viðurkenningu í Noregi árið
1988. Redalen, G. (1989) segir að afbrigðið hafi reynst vetrarþolið og að berin
hafi þroskast snemma, miðað við önnur afbrigði af hindberjum. Það má segja að
athugunin á Hvanneyri hafi sýnt það sama. Redalen, G. (1989) telur að berin af
Baldri séu aðeins súrari en flest önnur hindber, en bragðgóð og fallega dökkrauð.
27