Rit Búvísindadeildar - 10.06.1997, Page 33
Jarðarberja- og hindberjarækt á Islandi
Það er líklegt að heimilisræktun á jarðarberjum eigi enn eftir að aukast á íslandi.
Ef berin eru ræktuð úti eða undir gróðurhlífum án upphitunar þá er rétt að nota
afbrigði, sem eru fljótvaxin og ekki næm fyrir sjúkdómum. Helst þurfa það að
vera afbrigði, sem eru upprunnin á svipaðri breiddargráðu og ísland. í þeim
athugunum, sem hér hefur verið fjallað um, hafa afbrigðin Glima og Jonsok gefið
góða raun. Hindberjaræktun tekur meira rými en jarðarberjaræktun og þess vegna
er ekki líklegt að hindber fái að vaxa í mörgum plastgróðurhúsum. Á stöku stað er
hugsanlega unnt að fá hindber af plöntum á víðavangi.
Það sem mælir með því að menn geri ræktun jarðarberja að atvinnu sinni, er
að berin eru vinsæl markaðsvara sem ekki þarf á kynningarátaki að halda. Hins
vegar eru flutt til landsins tiltölulega ódýr jarðarber, sem íslenskir framleiðendur
geta varla keppt við í verði. Tvennt hafa þó íslensku berin sér til ágætis, þau ættu
að vera ferskari en þau útlendu, vegna styttri flutningaleiða og líklegt er að minna
hafi verið notað af plöntuvamarefnum við ræktun þeirra. í Hollandi og Belgíu
hafa menn lengi ræktað jarðarber í upphituðum gróðurhúsum og nú eru Norður-
landabúar að fikra sig áfram við slíka ræktun. Jarðarberjaræktun í gróðurhúsum
byggist á því að vera með ber á þeim tímurn, sem ódýr jarðarber eru ekki á
markaði. Ef þessi ræktun tekst á hinum Norðurlöndum, þá ættu íslendingar einnig
að geta stundað hana.
ÞAKKARORÐ
Bændaskólanum á Hvanneyri eru fluttar þakkir fyrir starfsaðstöðu við
athuganimar. Bömunum á Hvanneyri ber að þakka það að láta aldrei freistast til
að fá sér ber úr tilraunum, sem þau hefðu þó auðveldlega getað gert. Öllu starfs-
fólki skólans, sem hefur unnið að berjaræktinni era fluttar þakkir. Sérstáklega er
Rögnu Hróbjartsdóttur þökkuð hennar störf, því segja má að hún hafi öll árin haft
aðalumsjón með berjaræktinni. Þá þakka ég Rögnu og Sigtryggi Bjömssyni fyrir
að lesa ritgerðina yfir, Hauki Gunnarssyni fyrir þýðingu á enska yfirlitinu og
Eddu Þorvaldsdóttur fyrir yfirlestur og ritstjóm.
28