Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Síða 32

Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Síða 32
SKIPTIBEITARTILRAUN MEÐ HROSS OG SAUÐFÉ Anna Guðrún Þórhallsdóttir Inngangur Alla þessa öld og fram á áttunda áratuginn fór stór hluti sumarbeitar sauðfjár fram á afféttum landsins. Á síðastliðnum áratug hefur sumarbeit sauðfjár hins vegar verið að færast í æ ríkara mæli niður á láglendi. Kemur þar fleira en eitt til. Með mikilli fækkun sauðljár hefur kostnaður á kind við afréttanotkun víðast vaxið mjög mikið og getur svo farið að beií á mörgum afréttum leggist alfarið af á komandi árum. Umræða um gróður- og jarðvegsvemd hefur einnig farið vaxandi ásamt kröfiz um vistvænan landbúnað sem hefur leitt af sér lokun afrétta, eins og t.d. affétti Vestur-Eyfellinga. Útlit er fyrir að þessi þróun muni halda. Samfara þróuninni í sauðfjárrækt hefur hrossaeign landsmanna vaxið ört og er merkjanleg veruleg aukning beitarálags á láglendi af völdum lirossa á síðustu árum. Nýting láglendisins til beitar hefur þannig aukist mikið á síðasta áratug og er útlit fyrir að sú aukning muni enn halda áfram á komandi árum. I beitartilraunum Rala sem fóm ffam á fjölmörgum stöðum á landinu á tímabilinu 1975-1989 var beit sauðfjár, nautgripa og hrossa könnuð. Á nokkrum stöðum var blönduð beit sauöíjár og nauígripa (kálfa) rannsökuð en hvergi blönduð beit hrossa og sauðfjár. Skiptibeit, þar sem búfjártegundir skiptast á að bíta landið en bíta ekki samtímis, var ekki rannsökuð. Niðurstöður beitartilraunar Rala vom m.a. þær að vöxtur lamba víða á láglendi, sérstaklega á framræstum láglendis- mýrum væri engan veginn viðunandi og vemlegur munur væri á vexti lamba sem beitt væri á afréttum og þeirra sem beitt væri á láglendismýrar. Em það engin ný sannindi þar sem bændur hafa í áratugi kvartað yfir lélegum vexti lamba sem ekki fara á fjall. Ekki var unnt að skýra ástæður lélegri þrifa og vaxtar útfrá beitartil- raunum Rala og stendur það enn að þetta vandamál í íslenskum landbúnaði er óskýrt og óleyst. Skýringar þær sem nefndar hafa verið em jarðvegssveppir sem finnast ffekar á láglendi og hafi fukkalyfsáhrif á vambarflómna, jafiit fall meltanleika gróðurs á láglendi og þar af leiðandi minni möguleikar á vali, og fóðurleiði í einsleitu gróðurlendi láglendismýranna. Fleira mætti nefna en eflaust er engin ein skýring sú eina rétta heldur er um að ræða nokkra eða marga samverkandi þætti. Efitir stendur hins vegar að kaxma þá þætti nánar sem nefndir hafa verið sem hugsanlegir orsakaþættir. Á láglendi er gróður fljótari tií á vorin en á hálendi, en sprettur að jafnaði einnig fýrr úr sér. í ffamræstum mýrum á láglendi er tegundafjöldinn að jafnaði ekki mjög mikill og oftast örfáar tegundir ríkjandi. Þessar plöntur spretta að öllu jöfiiu nokkuð jafnt og fylgjast að í þroskastigi allt sumarið. Á afréttum aftur á móti, era aðstæður að mun fjölbreyttari, hæðamismunur mikill, grunnvatnsstaða og snjóa- lög breytileg svo og gróðurlendi. Á afféttum er því að finna gróður á mismun- 25

x

Rit Búvísindadeildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.