Rit Búvísindadeildar - 20.04.1998, Qupperneq 47
ÁHRIF DAGSBIRTU Á PÖRUNARTÍMA HJÁ
ÍSLENSKUM MINKUM Verkefni LOÐ 1-97
Siguijón Bláfeld og Bjami Ólafsson
1. Yfirlit
í skýrsluhaldi loðdýrabænda hjá Bændasamtökum íslands hefur komið í ljós að
heppilegustu pörunardagamir hjá minkum em nokkm fyrr á árinu en almennt er
talið vera best meðal bænda. Samkvæmt skýrsluhaldinu lítur út fyrir að byija eigi
pörun á minkum 5-7 dögum fyrr en gert er og 7-9 dögum fyrr en ráðlagt er á
Norðurlöndum. Þessi pörunartilraunin er gerð í þeim tilgangi að finna bestu
pörunardagana fyrir íslenska aliminka, miðað við birtumagn og birtulengd.
Byijað var á tilrauninni 16. febrúar 1997 og er áætlað að henni ljúki eftir 5
pömnartímabil eða 15. maí 2001. Að þeim tíma liðnum eiga að liggja fyrir nægi-
legar upplýsingar um pörunarmynstur íslenskra minka, samhliða uppsöfhuðum
birtumælingum hjá Veðurstofii íslands. Allir útreikningar varðandi fylgni á milli
pömnar dýranna og dagsbirtu verða byggðir á þeim mælingum. Þær niðurstöður
sem nú verður sagt frá em niðurstöður fyrsta árs. Tilraunin var gerð á loðdýrabúi
Bændaskólans á Hvanneyri og var tilraunadýrunum, 110 að tölu (55 Scanblck- og
55 Scanbrownlæðum) skipt upp í 5 jafnstóra hópa. Til að finna best út pömnar-
vilja (eða pörunarkúrfu) dýranna vom hópamir látnir hefja pömn með 5 daga
millibili. Þannig var byrjað að para 1. hópinn 16/2, 2. hópinn 21/2, 3. hópinn
26/2, 4. hópinn 3/3 og 5. og síðasta hópinn 8/3, svo öll pörunarkúrfan næðist.
Allir hópamir höfðu sama fóður og aðbúnað á tilraunatímanum.
2. Helstu niðurstöður tilraunarinnar
• Læðuhópurinn sem byijað var að para 16/2 hafði lægstu pömnarprósentuna
ásamt hópnum sem byijaði 8/3 eða 77%, hæstu geldprósentuna, næst fæstu
hvolpa á gotna læðu og langfæstu hvolpa á paraða læðu.
• Hópur II sem byijað var að para 21/2 hafði næst hæstu pörunarprósentuna eða
95%, næst minnstu geldprósentuna ásamt hópnum sem byijaði 26/2, og næst
flestu hvolpa á gotna- og paraða læðu.
• Læðuhópur III sem byijað var að para 26/2 var með 100% pömn og næst
minnstu geldprósentuna, stystu meðgönguna og flesta hvolpa á gotna- og paraða
læðu.
• Hópur IV sem hóf pömn 3/3 var með 82% pömn en fæstar læður geldar, næst
fæstu hvolpa á gotna læðu og þriðju fæstu á paraða.
• Fimmti og síðasti hópurinn sem byijað 8/3 var með lélegustu pömnarprósentuna
ásamt fyrsta hópnum frá 16/2 eða 77% pörun, næst hæstu geldprósentuna, fæsta
hvolpa á gotna læðu og næst fæstu hvolpa á paraða læðu.
• Við þær aðstæður sem em hér á Hvanneyri benda fyrsta árs niðurstöður til að
0,14 hvolpar á læðu tapist fyrir hvem dag sem dregið er að para minkana eftir
26. febrúar og ffarn til 8.mars.
40