Fréttablaðið - 11.12.2020, Síða 8
Til stendur að hækka
verðskrána um rúmlega 13
prósent.
HEILBRIGÐISMÁL Landspítala er
ekkert að vanbúnaði að taka í
notkun DRG-fjármögnunarkerfi á
þessu ári ef það tekst að ná samn-
ingi við Sjúkratryggingar Íslands.
Samkvæmt áætlun heilbrigðisráðu-
neytisins munu Landspítalinn og
Sjúkrahúsið á Akureyri taka kerfið
að fullu í notkun í byrjun árs 2022,
ári síðar verði það komið til fram-
kvæmda á öðrum heilbrigðisstofn-
unum, þar á meðal einkareknum.
Árið 2030 verði allt heilbrigðis-
kerfið búið að taka kerfið í notkun.
Fram kemur í svari Landspítala
við fyrirspurn Fréttablaðsins að
stefnt sé að því að gera samning til
lengri tíma. Leysa þurfi þó fjölmörg
atriði, þar á meðal hvernig fjárhags-
legum samskiptum verður háttað.
Bolli Héðinsson hagfræðingur
segir það óréttlátt og óhagkvæmt
að opinberar heilbrigðisstofnanir
sitji ekki við sama borð og einka-
reknar heilbrigðisstofnanir. Spítal-
ar séu á föstum fjárlögum á meðan
einkareknar stöðvar fái greitt eftir
afköstum.
„Opinberu spítalarnir þurfa að fá
að búa við sama kerfi og einkageir-
inn, annað er ekki sanngjarnt. Þeir
eiga ekki að þurfa að búa við það að
vera á föstum fjárlögum. Ef það er
mikið að gera hjá þeim þá fá þeir
ekki meiri pening,“ segir Bolli. Telur
hann þetta jákvæðar breytingar í
átt frá stofnanamiðuðu kerfi í átt
að einstaklingsmiðuðu kerfi þar
sem fjármagn fylgi einstaklingnum
og heilbrigðisstofnanir hafi hag af
umönnun sjúklinga. Skipti þá ekki
höfuðmáli hvort notast sé við DRG
eða annað kerfi til að reikna út
kostnað við hvert viðvik.
„Það er mjög mikilvægt upp á
hagkvæmni að hægt sé að f letta
upp hvað hvert viðvik kostar, allt
frá umbúðum til launakostnaðar,“
segir Bolli. „Þarna breytist staða
heilbrigðisstofnana gagnvart fjár-
veitingarvaldinu. Þá er hægt að
leggja fram hvað er gert og hvað
það kostar. Það er allt önnur staða
en að fá eina upphæð fyrir árið og
vera síðan sagt að gera sitt besta.“
Það að borgað sé eftir afköstum
þýðir þó ekki að skrúfað sé frá
krana þar sem engar hömlur eru
á hversu mikið ríkissjóður greiðir
til heilbrigðismála. Segir Bolli að
Alþingi muni áfram fara með fjár-
veitingarvaldið, greitt sé til Sjúkra-
trygginga sem greiði svo heilbrigð-
isstofnunum eftir afköstum.
Slíkt kerfi þar sem greitt er eftir
af köstum og eftir því hvar lægsta
verðið er að fá þarf ekki að þýða að
skurðaðgerðir færist í meira mæli
til einkarekinna aðila. „Í dag tapar
spítalinn á því að gera fleiri aðgerð-
ir. Með svona kerfi skapast hvati til
að breyta skipulaginu, það kæmi
ekki á óvart þó að afköstin myndu
aukast umtalsvert.“
arib@frettabladid.is
Tapa á að gera fleiri aðgerðir
Hagfræðingur segir að með innleiðingu nýs fjármögnunarkerfis muni opinberar heilbrigðisstofnanir
sitja við sama borð og einkaaðilar. Muni það ekki koma á óvart að afköst spítala aukist umtalsvert.
Landspítalinn notar nú þegar DRG-kerfið í starfsemi sinni. Nú er unnið að samningi við Sjúkratryggingar til lengri tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í dag tapar spítal-
inn á því að gera
fleiri aðgerðir. Með svona
kerfi skapast hvati til að
breyta skipulaginu, það
kæmi ekki á óvart þó að
afköstin myndu aukast
umtalsvert.
Bolli Héðinsson
hagfræðingur
Jólin eru hátíð ljósa og gleði. Fagnaðu á
öruggan og áhyggjulausan hátt með okkur.
Þú færð brunavarnapakka í nýrri
vefverslun okkar www.securitas.is/jolin
Öryggiskerfi
SAMSTARFSAÐILI
15:04 100%ÖRUGG
JÓL
SKEMMTUN „Það hefur verið svo-
lítið um það þótt það sé engin hol-
skefla,“ segir Hildur Sif Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri miðasölunnar
Tix, aðspurð hvort mikið sé um að
fólk nýti ferðagjöf stjórnvalda til að
kaupa aðgang að jólatónleikum.
Um síðustu mánaðamót höfðu
um 150 þúsund manns ekki nýtt
fimm þúsund króna ferðagjöfina.
Hægt er f lytja gjöfina yfir á aðra
og gefa sem jólagjöf. Nota má hana
til að kaupa ýmsa af þreyingu, til
dæmis aðgang að tónleikum sem
nú eru margir í boði.
Hildur segir að frá því í júní hafi
Tix í samstarfi við Ferðamálastofu
getað tekið við ferðagjöfinni við
kaup á aðgangi að viðburðum inn-
lendra listamanna. Það sé hugsað
sem stuðningur við íslenskt menn-
ingarlíf. Tix hafi ekki vakið sér-
staklega athygli á þessari aðferð
við miðakaup fyrir utan tölvupóst
til viðskiptavina í sumar. Það geti
því verið að einhverjir hafi ekki
áttað sig á þessum möguleika. „Fólk
sér það strax ef það er að kaupa sér
miða að hægt er að nota ferðagjöf-
ina sem greiðslu,“ segir hún.
Margir tónleikar eru í boði á
aðventunni í streymi í gegn um
vefinn og sjónvarpsveitur. Hildur
segir aðsóknina framar vonum.
„Jólagestir Björgvins eru lang-
stærstir,“ segir Hildur. „Sigga Bein-
teins var með streymi og svo er
náttúrlega Bubbi með Þorláks-
messutónleikana sem komnir eru í
sölu og einhverjir minni líka. „Fólk
tekur þessu mjög vel enda er verðið
sanngjarnt.“ – gar
Nota má ferðagjöf til að
kaupa miða á jólatónleika
Sviðið kannað fyrir Jólagesti Björgvins árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins hefur óskað eftir
því að hækka verðskrá sína um
rúmlega þrettán prósent. Var þetta
ákveðið á stjórnarfundi í nóvember
en stjórnir allra aðildarsveitarfélaga
þurfa að samþykkja skrána.
Tvær ástæður eru fyrir hækkun-
inni. Annars vegar til þess að mæta
áhrifum launahækkana á þessu ári
og því næsta. Hins vegar er þetta
gert til þess að gera Slökkviliðið að
minna aðlaðandi kosti til að sinna
ólögbundnum verkefnum.
Samkvæmt hinni nýju verðskrá
kostar grunneining lögbundinnar
þjónustu 16.830 krónur. Undir það
falla meðal annars öryggisvaktir,
lokanir mannvirkja og lokaúttektir.
Ólögbundin þjónusta myndi
kosta 22.721 krónu. Undir það hefur
fallið meðal annars verðmætabjörg-
un vegna vatnsleka, tækjaleigu,
fylgd sprengiefnaflutninga og við-
búnaður vegna mengunaróhappa.
„Mikilvægt þykir að gjaldtakan
sé þess eðlis að hún hvetji heldur
til þess að leitað sé til aðila á hinum
almenna markaði eftir þessari
þjónustu, sé þess kostur, þar sem
slökkviliðið eigi aldrei að vera eftir-
sóknarverður valkostur til að sinna
ólögbundnum verkefnum sem aðrir
geti hugsanlega sinnt,“ segir Jón
Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri
í bréfi til sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu. – khg
Vilja losna við
aukaverkefni
Slökkviliðsmenn hafa þegar í nógu
að snúast. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð