Fréttablaðið - 11.12.2020, Page 18
FÓTBOLTI Meginmarkmið afreks
stefnu KSÍ er að skilgreina aðferða
f r æ ð i k n at t s py r nu s v ið s i n s .
Aðferðafræði afreksstefnunnar
leggur grunn fyrir afreksfólk
framtíðarinnar og gerir lands
liðum Íslands kleift að ná árangri
á alþjóðlegum mótum á vegum
UEFA og FIFA. Arnar Þór Viðarsson
var ráðinn yfirmaður knattspyrnu
sviðs þegar það var sett á laggirnar
vorið 2019.
Arnar Þór segir að vinna hafi
staðið yfir við að setja saman
afreksstefnuna frá því að hann
tók við en unnið hafi verið eftir
þeim gildum sem fram koma í
stefnunni og hugmyndafræðinni
sem hún byggir á allan þann
tíma sem hún var í smíðum.
„Þarna erum við komin með ákveð
inn vegvísi fyrir KSÍ sem unnið er
eftir í öllu starfi yngri landsliðanna
og í samskiptum við félögin.
Hugmyndin er svo að félögin
geti notað beinagrindina til þess
að hanna sína afreksstefnu en það
er alveg augljóst að einkenni félaga
hafa svo áhrif á það hvernig stefnu
þau hafa í mótun sinna leikmanna.
Þetta er ekki einhver biblía þar sem
er grafið í stein hvernig á að gera
hlutina heldur lifandi skjal sem
tekur breytingum eftir því hvernig
fótboltinn þróast,“ segir Arnar Þór í
samtali við Fréttablaðið um afreks
stefnuna.
Búa til landsliðsstiga
„Sem dæmi þá koma þarna fram
ákveðin gildi, hugmyndafræði og
verklag sem við krefjumst þess
að þjálfarar yngri landsliðanna
fari eftir. Þá er búið að búa til svo
kallaðan landsliðsstiga þar sem
við skilgreinum hvað á að kenna í
hverjum aldursf lokki og hvers er
krafist af leikmönnum þar. Það er
hins vegar undir hverjum þjálfara
komið hvaða leikkerfi hann spilar.
Ætlast er þó til þess að liðin geti
spilað bæði með þriggja manna
vörn og f jögurra manna vörn.
Við getum ekki kóperað afreks
stefnu hollenska knattspyrnusam
bandsins og unnið eins og þeir.
Farið fram á að yngri landsliðin
spili ákveðið leikkerfi og ég sem
yfirmaður knattspyrnusviðs get
ekki sett þá kröfu að þjálfarar yngri
landsliðanna skili mér ákveðnum
tegundum af leikmönnum. Við
getum verið með árganga þar sem
þrír bestu leikmennirnir eru kant
menn þannig að jafnvægið getur
verið þannig að þeir leikmenn sem
skila sér upp í U21 árs landsliðið og
svo Alandsliðið sé þannig að það sé
gat í ákveðnum leikstöðum. Þann
ig er bara landslagið á Íslandi og við
verðum að sníða okkur stakk eftir
vexti,“ segir Arnar Þór enn fremur.
Eftir að Arnar Þór tók við hafa
ýmis jákvæð skref verið tekin í
starfi yngri landsliðanna. Dæmi um
það er að fyrir ári hófust reglulegar
mælingar á öllum leikmönnum
yngri landsliða karla en það hefur
verið gert kvennamegin í sex ár.
„Við erum að mæla líkamlega og
andlega þætti hjá öllum leikmönn
um yngri landsliðanna bæði karla
og kvennamegin. Með þessu getum
við fylgst með þróun leikmanna og
gripið inn í ef þess þarf. Það er ekki
hægt að lesa mikið út úr gögnum
karlamegin á svona skömmum
tíma. Kvennamegin held ég að þess
ar mælingar hafi hjálpað til við að
þróa leikmenn á borð við Karólínu
Leu [Vilhjálmsdóttur], Alexöndru
[Jóhannsdóttur], Sveindísi Jane
[Jónsdóttur] og Hlín [Eiríksdóttur]
sem eru núna orðnar lykilleikmenn
í kvennalandsliðinu tvítugar,“ segir
hann.
Endurmetum stöðuna 2025
„Ástæðan fyrir því að afreks
stefnunni er settur ákveðinn tíma
rammi, það er til 2025, er að á þeim
tíma tel ég að það væri hollt að setj
ast niður og endurmeta stöðuna.
Meðal annars með tilliti til mælan
legra gagna um líkamlegt ástand,
stöðu á styrkleikalista FIFA og
hversu oft við komumst inn á loka
keppni yngri landsliða og Alands
liða,“ segir Arnar Þór.
„Við vitum að við erum eftir á
hvað líkamlega þáttinn varðar
með þá leikmenn sem æfa og spila
hér á landi og ég tel að næsta skref
hjá okkur sé að koma í gagnið töl
fræðiupptökuker f i sem getur
búið til miðlægan gagnagrunn
um hlaupatölur. Fyrr á þessu ári
settum við upp myndavélar sem
nýtast vel hvað leikgreiningu
varðar og næst á dagskrá er að bæta
okkur í öflun tölfræðilegra gagna.
Félögin eru mörg hver farin að
nota GPSmælingar við æfingar og
leiki en við verðum að geta borið
okkur saman við önnur lönd og
það er innan seilingar að semja við
fyrirtæki sem getur sett upp töl
fræðiupptökur hér á landi. Það er
mikilvægt upp á það að geta selt
leikmenn út að geta nálgast gögn
úr slíkum miðlægum gagnagrunni
um tölfræði,“ segir yfirmaður knatt
spyrnusviðs.
Bið eftir næsta skrefi
Auk þess að vera yfirmaður knatt
spyrnuviðs er Arnar Þór þjálfari
U21 árs landsliðsins sem tryggði
sér á dögunum sæti í lokakeppni
EM 2021. Hann segir árangurinn
vissulega hafa aukið áhugann á
leikmönnum liðsins en til þess að
kveikja enn meiri eftirspurn þurfi
leikmennirnir svo að standa sig á
stóra sviðinu.
„Ég fann það alveg að njósnarar
frá félögum höfðu samband við mig
um ákveðna leikmenn þegar þeir
sáu að þeir gátu plumað sig á móti
ítalska liðinu til að mynda. Það er
hins vegar ekki þannig að síminn
stoppi ekki. Flestir leikmenn liðs
ins hafa tekið þetta milliskref að
vera komnir til liða á Norðurlönd
unum og eru að spila reglulega þar.
Þeir eru því á góðum stað og það
liggur ekkert á að taka næsta skref.
Til þess að njósnarar frá félögum
í stærri deildum fari að hafa sam
band þurfa þeir að sýna það og
sanna að þeir ráði við tempóið og
geti plumað sig á móti bestu leik
mönnum Evrópu í þeirra aldurs
f lokki næsta vor. Ef þeir standa
sig þar þá gæti það hæglega opnað
fleiri dyr,“ segir þjálfarinn um fram
haldið.
Ísland verður með Frökkum,
Dönum og Rússum í riðli í loka
keppni EM 2021 sem hefst í mars.
hjorvaro@frettabladid.is
Hugmyndin er svo
að félögin geti
notað beinagrindina til þess
að hanna sína afreksstefnu.
Arnar Þór Viðarsson,
yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá
KSÍ og þjálfari U21
ára liðs karla
Næsta skref að auka aðgengi
að tölfræði fyrir lið á Íslandi
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, kynnti á dögunum afreksstefnu sína en hún er afrakstur vinnu
knattspyrnusviðs sambandsins frá því í apríl árið 2019. Arnar Þór Viðarsson leiddi vinnuna við gerð af-
reksstefnunnar og segir hann mikilvægt að hún sé endurmetin eftir fimm ár til að skoða afraksturinn.
ÍÞRÓTTIR Samþykkt var í gær að
veita undanþágu til að leyfa félög
um í næstefstu deild á landsvísu
að hefja æfingar á ný ef gætt er að
reglum um sóttvarnir á æfingum.
Lið í Lengjudeildinni í knattspyrnu,
Grill 66deildinni í körfubolta og 1.
deildinni í körfubolta geta því hafið
æfingar á ný eftir langa pásu.
Fyrr í vikunni var ákveðið að
veita félögum í efstu deild og ein
staklingum í afreksíþróttum leyfi
til að hefja æfingar á ný. Sú ákvörð
un heilbrigðisy f ir valda vakti
óánægju enda fjölmörg dæmi á
Íslandi þar sem karla og kvennalið
félaganna leika ekki í sömu deild.
HSÍ, KKÍ og KSÍ sóttu því öll um
undanþágu til að heimila æfingar í
1. deild en lið í neðri deildum þurfa
að bíða lengur eftir að fá heimild til
æfinga á ný. – kpt
Rýmka leyfi til
æfinga á Íslandi
Blikakonur geta farið að æfa saman
á ný á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Landsliðsf yrirliðinn
Sara Björk Gunnarsdóttir var í 24.
sæti í vali breska fjölmiðilsins The
Guardian á hundrað bestu leik
mönnum heims. Sara hefur verið
fastagestur á listanum undanfarin
ár en tekur stökk upp um 28. sæti að
þessu sinni frá síðasta ári.
Hafnf irðingurinn samdi við
franska stórveldið Lyon í sumar
eftir fjögur farsæl ár í herbúðum
Wolfsburg sem innihélt fjóra þýska
meistaratitla. Sara skoraði þriðja
mark Lyon sem innsiglaði sigurinn
gegn Wolfsburg í úrslitaleik Meist
aradeildar Evrópu í sumar.
Með því varð Sara Björk annar
Íslendingurinn til að vinna Meist
aradeild Evrópu í knattspyrnu og sá
fyrsti til að skora í úrslitaleiknum
sjálfum.
Í umsögninni á vef The Guardian
kemur fram að Sara hafi átt frábært
ár og sagt að það séu fáir leikmenn
með jafn góðan leikskilning og
Íslendingurinn. Hæfileiki hennar
að lesa leikinn, brjóta upp sóknir
andstæðinganna og stýra miðjunni
geri það að verkum að hún eigi fylli
lega sæti skilið meðal bestu leik
manna heims. – kpt
Sara Björk ein
af þeim bestu
Sara hefur verið á lista
The Guardian yfir bestu
knattspyrnukonur heims öll
árin sem listinn hefur komið
út.
Sara varð fyrr á þessu ári leikjahæst
í sögu landsliðsins. MYND/VALLI
1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Árangur U21
ára liðs Ísland
hefur vakið
athygli liða í
Evrópu og fékk
Arnar nokkur
símtöl þar
sem spurst var
fyrir um fram-
tíðarleikmenn
karlalands-
liðsins. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI