Fréttablaðið - 11.12.2020, Page 26
FÆST Í VEFVERSLUN OKKAR
www.uglautgafa.is
fríheimsendingafsláttur25%
af viðburðaríkri ævi á miklum breyt inga tímum. Í lífi Vigdísar
Jack hafa sannarlega skipst á skin og skúrir, en upp úr stendur
æðruleysi, umhyggja og ævintýraþrá einstakrar dugnaðarkonu.
Einlæg og lifandi frásögn
Bókin í ár inniheldur 33 örsögur eftir ritlistarnema sem allar eiga það sam-
eiginlegt að falla undir eitt þema
og innihalda 92 orð. „Reglan er
þannig að á hverju ári er unnið
undir nýju þema sem verður titill
bókarinnar. Í ár rímar þemað og
nafn bókarinnar, Heima, vel við
ástandið í þjóðfélaginu þar sem
fólk er ítrekað hvatt til að halda
sig heima. Í fyrstu útgefnu jólabók
Blekfjelagsins voru orðin 100 og á
hverju ári er eitt orð skorið af orða-
fjöldanum. Núna fá þátttakendur
einungis 92 orð fyrir hverja sögu,“
segir Berglind Ósk Bergsdóttir rit-
listarnemi, en hún gegnir hlutverki
ritstjóra bókarinnar í ár.
„Við vöndum ávallt vel valið á
því hvaða örsögur eiga heima í
bókinni. Þá er hver saga lesin yfir
þrisvar af öðrum höfundum og
ritstjóri les einnig yfir og er með
heildaryfirsýn. Það er því í raun
heilmikið ritstjórnarferli á hverri
einustu sögu. Við leggjum líka
mikið upp úr bókarkápunni og
uppsetningu og erum svo heppin
að vera með frábæran grafískan
hönnuð í okkar hópi, hana Elínu
Eddu Þorsteinsdóttur, sem sá um
hönnun og umbrot bæði í ár og í
fyrra.“
Það er alls ekki úr vegi að birta
tvær stórskemmtilegar jólasögur
úr bókinni í ár sem, eins og áður
kom fram, ber nafnið Heima.
Die Alone
Höf. Örvar Smárason
„Home Alone og Die Hard eru
sama myndin,“ hvíslaði ég.
Árið var 1895 og snjórinn féll
mjúklega á timburhúsið okkar í
Smálöndunum.
„Börn tala oft tungum þegar
þegar þau eru með mikinn sótt-
hita,“ sagði læknirinn og setti
hlustunarpípuna ofan í slitna
leðurtöskuna.
„Ég bið algóðan Guð á
himnum að drengurinn nái
að lifa fram á jóladag,“ snökti
móðir mín og þurrkaði tárin.
„Hann ætti að tóra í nokkra
daga í viðbót,“ sagði læknirinn
hughreystandi.
„Kevin og McClane eru …“, ég
hóstaði og fann lungun fyllast
blóði, „… basically sami karakt-
erinn.“
Í fjarska ómuðu sleðabjöllur.
92 orð fylla hjartað af jólagleði
Jólabók Blekfjelagsins er fastur liður hjá mörgum í aðventunni en þessi litla bók kemur út árlega í
desember á vegum Blekfjelagsins, nemendafélags meistaranema í Ritlist við Háskóla Íslands.
Berglind rit-
stýrir jólabók
Blekfjelagsins,
Heima, í ár og
segir sögurnar
hver annarri
skemmtilegri.
Elín Edda Þorsteinsdóttir, grafískur hönnuður og ritlistarnemi, sá um það
vandasama verkefni að brjóta um bókina og hanna skemmtilega kápu.
Hawaiian Tropic
Höf. Kristín Nanna Einarsdóttir
Um sexleytið hneppi ég síðustu
tölunni á bleikmynstraðri
stuttermaskyrtu. Undir venju-
legum kringumstæðum væri
ég að handfjatla drykkjarseðil á
hótelbarnum, enda er tímamis-
munurinn tvær klukkustundir
á þessum tíma árs. Una cerveza
por favor!
Ég tylli uppáhaldsderinu
á kollinn og dreifi sólkremi
á handleggi og nefbrodd.
Hátíðarilmur fyllir vitin. Við
fjölskyldan ákváðum að halda í
hefðirnar og höfum slegið upp
kokteilakvöldi með suðrænu
ívafi. Konan fjárfesti í ljósakorti
á aðventunni og við reynum
bara að gera gott úr hlutunum.
Það brakar í sandölunum
þegar ég tipla niður stigann
og hækka hitastigið á öllum
ofnum.
Frábær tækifærisgjöf
Fjórir höfundar sem eiga örsögu
í bókinni taka þátt í jólabóka-
flóðinu í ár. Þar má nefna Árna
Árnason með bókina Háspenna,
lífshætta á Spáni. Hinir þrír gáfu
út ljóðabækur á vegum Blekfje-
lagsins fyrr í vetur, en bækurnar
voru upprunalega skrifaðar sem
verkefni í náminu. Það eru þær
Stefanía dóttir Páls með Blýhjarta,
Rebekka Sif Stefánsdóttir með
Jarðveg og Sigrún Björnsdóttir
með Loftskeyti.
Að sögn Berglindar selst Jólabók
Blekfjelagsins vel á hverju ári enda
lítil, ódýr og falleg aðventugjöf eða
sem aukapakki með í jólapakk-
ann. „Í fyrra seldist bókin upp, en
þá voru prentuð 300 stykki. Þetta
er það góð tekjulind fyrir nem-
endafélagið að nemendur þurfa
ekki að greiða félagsgjöld.“
Vaninn hefur verið að halda
útgáfuteiti við útgáfu bókarinnar
þar sem bókin er öll lesin upp af
höfundum, en það er óljóst hvort
það verði af því í ár. „Við erum
að skoða hvort það sé mögulegt
að framkvæma það miðað við
samkomutakmarkanir en ég hvet
áhugasama um að fylgjast með
á Facebook-síðu Blekfjelagsins.
Einnig munum við deila rafrænum
upplestrum á @blekfjelagid á
Instagram. Þess má líka geta að
upplestur á bókinni frá því í fyrra
má finna á Blekvarpinu, hlaðvarpi
Blekfjelagsins á Spotify. Jólabók
Blekfjelagsins er nú komin í allar
helstu bókabúðir. Einnig verður
hægt að kaupa hana beint af okkur
í Blekfjelaginu.“
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RBÓKAJÓL