Fréttablaðið - 11.12.2020, Side 28
Margir bíða með
að panta bók á
safninu fyrir jól í von um
að fá ákveðnar bækur í
jólagjöf. Ef hún leynist
ekki í jólapakkanum
koma þeir á nýju ári.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Bókaforlagið Angústúra var stofnað haustið 2016 og hefur sett svip sinn á markaðinn
með útgáfu athyglisverðra bóka
fyrir börn og fullorðna. Stofn-
endur forlagsins eru þær María
Rán Guðjónsdóttir og Þorgerður
Agla Magnúsdóttir, sem báðar búa
yfir fjölbreyttri reynslu úr útgáfu-
heiminum. „Við höfum frá upphafi
lagt áherslu á þýðingar, bæði fyrir
börn og fullorðna, en gefum einnig
út einstakar bækur eftir íslenska
höfunda. Þar má meðal annars
nefna Hjörleif Hjartarson og Rán
Flygenring, Birtu Þrastardóttur,
doktor Ármann Jakobsson, Lani
Yamamoto og Soffíu Bjarna-
dóttur,“ segir Þorgerður Agla.
Vinsælar í jólapakkann
Angústúra gefur út bókaflokk
sem samanstendur af fjórum
þýðingum á ári sem hægt er að
vera áskrifandi að og er ársáskrift
vinsæl í jólapakkann að sögn
Maríu Ránar. „Þá gefur viðkom-
andi eina bók úr bókaflokknum og
gjafakort upp á þrjár til viðbótar
eða gjafakort upp á fjórar bækur.
Þetta eru áhugaverð verk frá
ýmsum heimshornum sem slegið
hafa í gegn í heimalöndunum og
víðar. Vandaðar þýðingar sem gefa
innsýn í ólíka menningarheima og
víkka sjóndeildarhringinn.“
Margverðlaunaðar bækur
Ársáskrift kostar aðeins 11.920
krónur með sendingarkostnaði.
„Snæfríð Þorsteins fékk tilnefningu
til Hönnunarverðlauna Íslands
fyrir hönnun bókanna og þýðend-
ur þeirra hafa fengið tilnefningar
Bókin stendur alltaf fyrir sínu
Það jafnast ekkert á við það að gleyma sér í lestri og láta bókina grípa sig heljartökum. Nú er
hægt að kaupa ársáskrift að gæðabókum hjá bókaforlaginu Angústúru til að gefa í jólagjöf.
María Rán Guð-
jónsdóttir og
Þorgerður Agla
Magnúsdóttir
eru stofnendur
Angústúru.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
til Íslensku þýðingaverðlaunanna.
Auk þess hafa bækurnar verið
valdar bestu þýddu bækur ársins
af bóksölum á Íslandi en í fyrra átti
Angústúra allar þrjár bestu þýddu
bækur ársins að þeirra mati: Glæp
við fæðingu eftir Trevor Noah,
Konu í hvarfpunkti eftir Nawal El
Saadawi og Hnitmiðaða kínversk-
enska orðabók fyrir elskendur eftir
Xiaolu Guo. Verkin hafa verið þýdd
á fjölmörg tungumál og hlotið virt
verðlaun og viðurkenningar víða
um heim. Það er því óhætt að segja
að áskrifendur okkar fái frábærar
bækur inn um lúguna,“ segir Þor-
gerður Agla.
Vinsælar í bókaklúbbum
Þær segja áskrifendum hafa
fjölgað jafnt og þétt á síðustu
þremur árum. „Þeir eru á öllum
aldri, frá tvítugu fólki og upp
í nírætt. Bækurnar eru mikið
lesnar í bókaklúbbum, enda eru
þetta magnaðar sögur sem opna á
fjölþætta umræðu eftir margverð-
launaða höfunda. Við vöndum
okkur mikið við val á verkum í
bókaf lokkinn og leitum fanga
víða. Einnig leggjum við mikla
áherslu á gæði því þótt innihaldið
sé það mikilvægasta skiptir
hönnun, pappír og persónuleg
þjónusta einnig máli. Að bókin sé
fallegur gripur sem fólk vilji hafa
heima hjá sér,“ segir María Rán.
Lestur virkjar ímyndunaraflið
Þrátt fyrir nær endalaust framboð
af ýmiss konar af þreyingu heldur
bókin svo sannarlega velli að
þeirra mati. „Bókin stendur alltaf
fyrir sínu. Bóklestur er einstakur
því hann virkjar ímyndunar-
af lið. Það jafnast eiginlega ekkert
á við það að gleyma sér í lestri,
láta bókina grípa sig heljartökum
og sleppa oft ekki fyrr en löngu
síðar,“ segir Þorgerður Agla.
Þær eru því bjartsýnar á fram-
haldið. „Við ætlum að halda áfram
á sömu braut, gefa út góðar og
vandaðar þýðingar fyrir börn og
fullorðna en einnig eru nokkrar
spennandi bækur á útgáfulista
næsta árs eftir íslenska höfunda,“
segir María Rán.
Allar nánari upplýsingar á
angustura.is.Nýjasta bókin er skáldsaga frá Íran. Sérhönnuð kort fylgja hverri bók.
Guttormur segir að það hafi verið mikið pantað af nýju jólabókunum undanfarið
og langir biðlistar hafi myndast.
Vinsælustu höfundarnir eru með
lengstu listana en þar nefnir hann
Arnald Indriðason með Þagnar-
múr, Ólaf Jóhann Ólafsson með
Snertingu, Yrsu Sigurðardóttur
og bók hennar Bráðin, Ragnar
Jónasson með Vetrarmein, Auði
Öva Ólafsdóttur með Dýralíf
og Jón Kalman Stefánsson með
bókina Fjarvera þín er myrkur. Ein
bók hefur þó slegið þeim öllum við
núna og það er Gata mæðranna
eftir Kristínu Mörju Baldursdótt-
ur. „Síðan hef ég tekið eftir áhuga
á bókum sem ekki eru endilega
á metsölulistum eins og Apríl-
sólarkuldi eftir Elísabetu Jökuls-
dóttur, Hansdætur eftir Benný Sif
Ísleifsdóttur og Sykur eftir Katrínu
Júlíusdóttur,“ segir Guttormur.
„Umræða á samfélagsmiðlum
hefur töluverð áhrif á hvaða bækur
eru valdar í safninu höfum við
tekið eftir,“ bætir hann við.
„Spennubækur eru alltaf vin-
sælar auk nýrra skáldsagna. Ævi-
sögur hafa ekki eins mikinn lestur
og þær höfðu fyrir nokkrum árum.
Lestraráhugi hefur verið mikill
á þessu ári og ótrúlega margar
bækur hafa verið í útláni. Mér sýn-
ist að þótt safnið hafi verið lokað
á tímabili og svo einungis opið
hálfan dag þá hafi útlán ekkert
minnkað frá fyrra ári. Fólk hefur
verið að birgja sig upp og hefur
greinilega meiri tíma til lesturs.“
Hægt er að hafa nýjar bækur
að láni í tvær vikur en Guttormur
segir að flestir skili f ljótt aftur til
að ná sér í aðra bók. Allar bækur
eru sótthreinsaðar eftir notkun og
tímarit eru sett í sóttkví.
„Við fylgjum öllum sóttvarna-
reglum og sprittum allt yfirborð á
safninu. Hægt er að panta bækur í
gegnum netið og sækja. Fólk þarf
bara að skrá sig inn með leyni-
orðinu sínu á heimasíðu safnsins
en einnig er hægt að hringja til
okkar,“ segir hann.
„Gestir safnsins eru frekar í
eldri kantinum. Börn eru þó stór
hópur viðskiptavina og þau koma
yfirleitt með foreldrum sínum.
Nemendur hafa komið í safnið til
að glugga í skólabækur en minna
hefur verið um það á þessu ári
vegna takmarkana. Margir bíða
líka með að panta bók fyrir jól
með von um að fá ákveðnar bækur
í jólagjöf. Ef hún leynist ekki í jóla-
pakkanum koma þeir á nýju ári.“
Guttormur hefur starfað við
safnið frá árinu 2007 og líkað
vel. „Þetta er mjög fjölbreytt og
skemmtilegt starf. Ég hef verið
með leshring á vegum safnsins
og í honum lesum við að minnsta
kosti eina skáldsögu í mánuði
sem er mjög skemmtilegt,“ segir
hann. Guttormur segist sjálfur
lesa minna en hann langi til. Hans
uppáhaldsbækur eru vísinda-
skáldsögur og fræðibækur.
Biðlistar
eftir nýjustu
bókunum
Guttormur Þorsteinsson er sagn-
fræðingur að mennt en starfar sem
bókavörður hjá Borgarbókasafninu í
Kringlunni. Safnið er opið hálfan dag-
inn og margir eru orðnir lestrarþurfi.
Guttormur Þorsteinsson segir starf bókavarða mjög fjölbreytt og skemmti-
legt en hann hefur verið með leshring á vegum safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
6 1 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RBÓKAJÓLKYNNINGARBLAÐ