Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Á Suðurnesjum er stórt samfélag Pólverja og vaxandi áhyggjur af því að fjöldi Pólverja væri að koma til landsins sýktir af kórón- uveirunni voru ræddar á fundi aðgerðarstjórnar almannavarna á Suðurnesjum í síðustu viku. Aðgerðastjórnina skipa fulltrúar lögreglunnar á Suðurnesjum, frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og bæjarstjórarnir fjórir á Suður- nesjum. Fannar Jónasson, bæjar- stjóri Grindavíkur, vakti máls á áhyggjum fólks af fjölda Pól- verja sem væru að koma sýktir til landsins. Stórir hópar hafa komið fá Póllandi undanfarnar vikur þar sem margir einstaklingar hafa reynst vera sýktir af kórónuveir- unni og með virk smit. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri Reykjanesbæjar, ræddi á sama fundi að atvinnurekandi hefði haft samband við sig fyrr í sumar og hefði haft áhyggjur af Pólverjum og afstöðu þeirra til takmarkana sem gilda hér á landi. Á fundi aðgerðarstjórnar Al- mannavarna á Suðurnesjum í þarsíðustu viku fór Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar yfir stöðuna í flugstöðinni. Sagði hann miklar áhyggjur af hópum Pólverja sem væru að koma úr orlofi eða fríi þaðan og tveir stórir hópar höfðu komið þaðan smitaðir þegar fund- urinn fór framþann 19. október. Hluti hópsins ákvað að fara í sýna- töku. Hann sagði líka að það væru stórir hópar að koma frá Póllandi sem velja sóttkví í stað sýnatöku. Hann hefði áhyggjur af því og þetta eru einstaklingar sem búa út um allt land. Sigurgeir sagði á þeim fundi að hann ætlaði sér að ræða þetta betur við almanna- varnardeild Ríkislögreglustjóra og sóttvarnalækni um hvernig eða hvort hægt sé að bregðast við. Jafnframt það að auka þurfi eftirlit með þeim einstaklingum sem hafa falið sóttkví og eru að koma frá Póllandi. Á Covid.is eru allar reglur pg skilaboðin sem eru í gildi hverju sinni á pólsku. Bent var á að búið er að vekja ítrekaða athygli á þessu við sóttvarnarlækni. Þá kom fram að allir þeir sem koma til landsins fái ítarlegar leiðbeiningar á pólsku og þar er m.a. vísað á covid.is. Áhyggjur af Covid- sýktum Pólverjum á leið til landsins Umfangsmikilli loftrýmisgæslu bandaríska flughersins er nýlokið en flugsveitin hafði aðsetur á ör- yggissvæðinu á Keflavíkurflug- velli. Þá fara nú fram áhafnaskipti hjá kafbátaleitarsveit bandaríska sjóhersins. Vegna sóttvarna þá taka áhafnaskiptin langan tíma og því eru hundruð liðsmanna kafbáta- leitarsveita staddir í Reykjanesbæ. Bandaríski flugherinn var með fjórtán F-15 orrustuþotur á Kefla- víkurflugvelli og þeim fylgdu 260 liðsmenn. Þá eru um 500 liðsmenn með tólf bandarískum og tveimur kanadískum kafbátaleitarvélum. Þegar mest var voru hér yfir 700 erlendir liðsmenn erlendra herja og flestir þeirra gistu á hótelum í Reykjanesbæ. Þá var og er þessi hópur með hundruð bílaleigubíla á leigu. Starfsemi Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflug- velli hefur mikil efnahagsleg áhrif á Suðurnesjum. Í umfjöllun í Víkurf- réttum í dag segir Jón B. Guðnason, framkvæmdastjóri Landhelgisgæsl- unnar í Keflavík, að jafnaði séu 50 til 100 manns á hótelum alla daga ársins Þegar mest var á svæðinu fór fjöldi erlends liðsafla og sérfræðinga yfir 700 en aðeins er hægt að hýsa 200 innan öryggissvæðisins. Það var því óvenju fjölmennt, einnig á hótelum í Reykjanesbæ, auk þess sem bílaleigur og veitingastaðir hafa notið góðs af. Eins og við var að búast mun draga úr fjölda erlends liðsafla á næstu dögum og vikum en eins og áður þá er og verður alltaf einhver fjöldi erlends liðsafla við vinnu á öryggissvæðinu á Kefla- víkurflugvelli og annarra verktaka og sérfræðinga og dvelur hluti þeirra á hótelum utan öryggissvæðisins. Landhelgisgæslan í Keflavík er því að leigja hótelherbergi fyrir hundruð milljóna króna á ári. Nánar er fjallað er um verkefnin á öryggissvæðinu í umfjöllun í blaðinu í dag. Gæslan leigir hótelherbergi fyrir hundruð milljóna á Suðurnesjum Breyttu Saltfisksetrinu í hryllilegt draugahús Ungmenni í Grindavík breyttu Saltfisksetrinu í Grindavík í hryllilegt draugahús í tilefni af hrekkjavökunni sem var síðasta laugardag. Menningarhúsið Kvikan í Grindavík iðaði af lífi alla síðustu viku þar sem ungmennin hreiðruðu um sig og skemmtu sér í skugga kórónuveirufaraldurs. Allir nemendur Grunnskóla Grindavíkur fengu tækifæri til að fara í gegnum draugahúsið og láta hræða sig örlítið áður en hrollurinn var svo dansaður úr kroppnum á diskóteki. á vef Víkurfrétta má sjá innslag um draugahúsið og í rafrænni útgáfu Víkurfrétta er nóg að smella á myndina hér að ofan til að spila myndskeiðið og sjá viðtöl við ungmennin. Wizz Air flýgur milli Keflavíkurflugvallar og Póllands. F-15 á flugi yfir Ósabotnum. Hafnir í baksýn. Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar 659 kr/pk 169 kr/pk 179 kr/pk GOTT VERÐ alla daga Xtra eyrnapinnar 200 stk/pk Coop bómullarskífur 120 stk/pk Coop klósettpappír Lúxus - 6 stk/pk NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ SJÁVARSÍÐUNA REYKJANESBÆ OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN KL. 15 - 16. PÓSTHÚSSTRÆTI 5 Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000 Viltu að eignin þín sé ÁBERANDI? Skráðu hana hjá okkur! MiðvikudaGur 4. nóveMber 2020 // 42. tbl. // 41. árG.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.