Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 6
Kveðja frá Lionessu-
klúbbi Keflavíkur
Kæru velunnarar okkar!
Vegna Covid-19 og sóttvarna-
aðgerða getum við því miður ekki
komið saman og hnýtt og selt sæl-
gætiskransa fyrir jólin.
Allur ágóði af sölunni hefur
verið gefinn til líknarmála. Okkur
þykir þetta mjög leitt því þörfin
er sérlega mikil núna.
Ef einhverjir vilja samt styrkja
líknarsjóðinn með frjálsum fram-
lögum þá er hægt að leggja inn á
þennan reikning.
Lionessuklúbbur Keflavíkur
Kt. 510592-2639
Bankanr. 0121-26-11790
Þökkum veittan stuðning á
liðnum árum. Við munum koma
hressar til leiks á næsta ári.
Förum öll varlega.
Kærleikskveðja,
f.h. Lionessuklúbbs Keflavíkur,
Sigríður Gunnarsdóttir,
formaður.
Gunnþórunn Gunnarsdóttir,
f.h. fjáröflunarnefndar,
Steinunn Guðnadóttir,
f.h. líknarnefnd.
Lionessur hafa útbúið ófáa
sælgætiskransa í gegnum
árin sem þær hafa svo
selt og látið allan ágóða
renna til líknarmála.
Allir með á aðventu
Aðventan nálgast nú óðfluga og því styttist í annan
endann á árinu 2020. Líklega munu fæstir sjá eftir
þessu fordæmalausa ári sem þó hefur fært okkur
nokkurn lærdóm, meðal annars um erfiðleika og óvissu
en ekki síður um samstöðu og samkennd og hversu
miklu máli það skiptir að við hlúum hvert að öðru og
tökum tillit til hvers annars. Nú þegar skammdegið
skellur á er mikilvægt að við gerum okkar besta til að
lýsa það upp, bæði hið innra með góðum samskiptum
við vini og fjölskyldu og hið ytra með ljósum og seríum
sem gleðja lága sem háa. Bæjaryfirvöld vilja hvetja
bæjarbúa til að bíða ekki með ljósaskreytingar heldur
byrja fyrr en seinna að láta ljós sitt skína. Einnig eru
íbúar hvattir til að taka virkan þátt í þeirri dagskrá sem
boðið verður upp á aðventu.
Jólagarðurinn og jólakofar
Í ár hleypir bærinn af stokkunum nýju verkefni sem
fengið hefur heitið Jólagarðurinn. Segja má að það verk-
efni leysi af hólmi tendrun ljósanna á vinabæjartrénu frá
Kristiansand en nú hefur formlegt vinabæjarsamstarf
verið aflagt og því fáum við ekki sent tré í ár. Hugmyndin
um Jólagarðinn gengur út á að skreyta Ráðhústorgið og
skrúðgarðinn með fallegum ljósaskreytingum og setja
upp jólakofa fyrir íbúa til að selja varning tengdan jólum.
Þetta verkefni kallar því á gott samstarf og virkni bæj-
arbúa og bæjaryfirvalda. Íbúar geta sótt um sölupláss í
jólakofum og verður opnað fyrir umsóknir þann 10. nóv-
ember á vef Reykjanesbæjar.
Jólagarðurinn verður formlega opnaður laugardaginn
5. desember og verður opinn alla laugardaga til jóla svo
og á Þorláksmessu og má reikna með ýmsum óvæntum
uppákomum alla opnunardaga.
Verkefnastyrkir
Í tengslum við Jólagarðinn gefst áhugasömum einnig
kostur á að sækja um styrki til viðburða eða verkefna á
aðventunni. Verkefnin gætu t.d. verið uppákomur eða
afþreying í Jólagarðinum og geta styrkirnir hentað vel
félagasamtökum í fjáröflun eða öðrum þeim sem vilja
hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd.
Hægt verður að sækja um styrki á vef Reykjanesbæjar
frá 10. til 20. nóvember og eru allir sem luma á skemmti-
legum hugmyndum hvattir til að sækja um.
Fyrirvari um samkomutakmarkanir
Bæjaryfirvöld telja mikilvægt að halda í bjartsýnina eins
og kostur er og hafa trú á því að á aðventunni verðum
við komin á þann stað að hægt sé að halda úti þessari
dagskrá en vera um leið tilbúin til að sveigja af leið og
aðlaga okkur þeirri stöðu sem uppi er hverju sinni. Því
er öll fyrrgreind dagskrá kynnt með fyrirvara um sam-
komutakmarkanir og sóttvarnir.
Nánari upplýsingar um Jólagarðinn og verkefnastyrki á
reykjanesbaer.is og í gegnum netfangið sulan@reykja-
nesbaer.is
JÓLAGARÐURINN
VERKEFNASTYRKIR
Reykjanesbær hvetur íbúa til að taka höndum saman með virkri
þátttöku í Jólagarðinum, nýju og spennandi verkefni á aðventunni.
Skrúðgarðurinn og Ráðhústorg verða skreytt með fallegum jóla-
skreytingum en vegna frábærra viðbragða við jólakofanum í fyrra
verða fleiri slíkir settir upp til að skapa sannkallaða jólastemningu.
Þá verða ýmsar óvæntar uppákomur á svæðinu.
Í jólakofunum gefst tækifæri til að selja ýmislegt skemmtilegt tengt
jólum svo sem handverk, smákökur, kerti, heitt súkkulaði, laufabrauð
o.s.frv. Tilvalið fyrir félög, einstaklinga og jólasveina. Jólakofarnir
bjóðast endurgjaldslaust.
Jólagarðurinn verður formlega opnaður laugardaginn 5. desember
og verður opinn alla laugardaga til jóla og á þorláksmessu.
Opið verður fyrir umsóknir um jólakofa á vef Reykjanesbæjar,
reykjanesbaer.is, frá 10.-20. nóvember.
Í tengslum við Jólagarðinn gefst áhugasömum kostur á að sækja
um styrki til viðburða eða verkefna á aðventunni. Verkefnin gætu
t.d. verið uppákomur eða afþreying í Jólagarðinum. Ekki eru veittir
styrkir vegna sölu í jólakofum.
Styrkirnir geta t.d. hentað vel félagasamtökum í fjáröflun eða öðrum
þeim sem vilja hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd.
Opið verður fyrir umsóknir á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is,
frá 10.-20. nóvember.
Nánari upplýsingar um Jólagarðinn og verkefnastyrki á
reykjanesbaer.is og í gegnum netfangið sulan@reykjanesbaer.is
Öll fyrrgreind dagskrá er kynnt með fyrirvara um
samkomutakmarkanir og reglur um sóttvarnir.
VILT ÞÚ
TAKA ÞÁTT Í
SKEMMTILEGU
JÓLAVERK-
EFNI?
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár