Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 6

Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 6
Kveðja frá Lionessu- klúbbi Keflavíkur Kæru velunnarar okkar! Vegna Covid-19 og sóttvarna- aðgerða getum við því miður ekki komið saman og hnýtt og selt sæl- gætiskransa fyrir jólin. Allur ágóði af sölunni hefur verið gefinn til líknarmála. Okkur þykir þetta mjög leitt því þörfin er sérlega mikil núna. Ef einhverjir vilja samt styrkja líknarsjóðinn með frjálsum fram- lögum þá er hægt að leggja inn á þennan reikning. Lionessuklúbbur Keflavíkur Kt. 510592-2639 Bankanr. 0121-26-11790 Þökkum veittan stuðning á liðnum árum. Við munum koma hressar til leiks á næsta ári. Förum öll varlega. Kærleikskveðja, f.h. Lionessuklúbbs Keflavíkur, Sigríður Gunnarsdóttir, formaður. Gunnþórunn Gunnarsdóttir, f.h. fjáröflunarnefndar, Steinunn Guðnadóttir, f.h. líknarnefnd. Lionessur hafa útbúið ófáa sælgætiskransa í gegnum árin sem þær hafa svo selt og látið allan ágóða renna til líknarmála. Allir með á aðventu Aðventan nálgast nú óðfluga og því styttist í annan endann á árinu 2020. Líklega munu fæstir sjá eftir þessu fordæmalausa ári sem þó hefur fært okkur nokkurn lærdóm, meðal annars um erfiðleika og óvissu en ekki síður um samstöðu og samkennd og hversu miklu máli það skiptir að við hlúum hvert að öðru og tökum tillit til hvers annars. Nú þegar skammdegið skellur á er mikilvægt að við gerum okkar besta til að lýsa það upp, bæði hið innra með góðum samskiptum við vini og fjölskyldu og hið ytra með ljósum og seríum sem gleðja lága sem háa. Bæjaryfirvöld vilja hvetja bæjarbúa til að bíða ekki með ljósaskreytingar heldur byrja fyrr en seinna að láta ljós sitt skína. Einnig eru íbúar hvattir til að taka virkan þátt í þeirri dagskrá sem boðið verður upp á aðventu. Jólagarðurinn og jólakofar Í ár hleypir bærinn af stokkunum nýju verkefni sem fengið hefur heitið Jólagarðurinn. Segja má að það verk- efni leysi af hólmi tendrun ljósanna á vinabæjartrénu frá Kristiansand en nú hefur formlegt vinabæjarsamstarf verið aflagt og því fáum við ekki sent tré í ár. Hugmyndin um Jólagarðinn gengur út á að skreyta Ráðhústorgið og skrúðgarðinn með fallegum ljósaskreytingum og setja upp jólakofa fyrir íbúa til að selja varning tengdan jólum. Þetta verkefni kallar því á gott samstarf og virkni bæj- arbúa og bæjaryfirvalda. Íbúar geta sótt um sölupláss í jólakofum og verður opnað fyrir umsóknir þann 10. nóv- ember á vef Reykjanesbæjar. Jólagarðurinn verður formlega opnaður laugardaginn 5. desember og verður opinn alla laugardaga til jóla svo og á Þorláksmessu og má reikna með ýmsum óvæntum uppákomum alla opnunardaga. Verkefnastyrkir Í tengslum við Jólagarðinn gefst áhugasömum einnig kostur á að sækja um styrki til viðburða eða verkefna á aðventunni. Verkefnin gætu t.d. verið uppákomur eða afþreying í Jólagarðinum og geta styrkirnir hentað vel félagasamtökum í fjáröflun eða öðrum þeim sem vilja hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd. Hægt verður að sækja um styrki á vef Reykjanesbæjar frá 10. til 20. nóvember og eru allir sem luma á skemmti- legum hugmyndum hvattir til að sækja um. Fyrirvari um samkomutakmarkanir Bæjaryfirvöld telja mikilvægt að halda í bjartsýnina eins og kostur er og hafa trú á því að á aðventunni verðum við komin á þann stað að hægt sé að halda úti þessari dagskrá en vera um leið tilbúin til að sveigja af leið og aðlaga okkur þeirri stöðu sem uppi er hverju sinni. Því er öll fyrrgreind dagskrá kynnt með fyrirvara um sam- komutakmarkanir og sóttvarnir. Nánari upplýsingar um Jólagarðinn og verkefnastyrki á reykjanesbaer.is og í gegnum netfangið sulan@reykja- nesbaer.is JÓLAGARÐURINN VERKEFNASTYRKIR Reykjanesbær hvetur íbúa til að taka höndum saman með virkri þátttöku í Jólagarðinum, nýju og spennandi verkefni á aðventunni. Skrúðgarðurinn og Ráðhústorg verða skreytt með fallegum jóla- skreytingum en vegna frábærra viðbragða við jólakofanum í fyrra verða fleiri slíkir settir upp til að skapa sannkallaða jólastemningu. Þá verða ýmsar óvæntar uppákomur á svæðinu. Í jólakofunum gefst tækifæri til að selja ýmislegt skemmtilegt tengt jólum svo sem handverk, smákökur, kerti, heitt súkkulaði, laufabrauð o.s.frv. Tilvalið fyrir félög, einstaklinga og jólasveina. Jólakofarnir bjóðast endurgjaldslaust. Jólagarðurinn verður formlega opnaður laugardaginn 5. desember  og verður opinn alla laugardaga til jóla og á þorláksmessu. Opið verður fyrir umsóknir um jólakofa á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is, frá 10.-20. nóvember. Í tengslum við Jólagarðinn gefst áhugasömum kostur á að sækja um styrki til viðburða eða verkefna á aðventunni. Verkefnin gætu t.d. verið uppákomur eða afþreying í Jólagarðinum. Ekki eru veittir styrkir vegna sölu í jólakofum. Styrkirnir geta t.d. hentað vel félagasamtökum í fjáröflun eða öðrum þeim sem vilja hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd. Opið verður fyrir umsóknir á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is, frá 10.-20. nóvember. Nánari upplýsingar um Jólagarðinn og verkefnastyrki á reykjanesbaer.is og í gegnum netfangið sulan@reykjanesbaer.is Öll fyrrgreind dagskrá er kynnt með fyrirvara um samkomutakmarkanir og reglur um sóttvarnir. VILT ÞÚ TAKA ÞÁTT Í SKEMMTILEGU JÓLAVERK- EFNI? 6 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.