Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 20
„Þetta er stórkostlegt. Algjör himnasending til okkar og enda veitir ekki af, staðan er þannig,“ segir Anna Valdís Jónsdóttir, forstöðukona hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ um veglega gjöf frá fyrirtækinu Ice-Group í Reykjanesbæ til Fjölskylduhjálpar Íslands. Fyrirtækið gefur hjálparsamtökunum matargjafir að verðmæti samtals ein og hálf milljón króna eða sem nemur hálfri milljón króna á mánuði í október, nóvember og desember. Matvöruna í október keypti Ice-Group hjá Krónunni, Kjarna- fæði og MS og fær veglegan afslátt í viðskiptunum sem skilar sér í meira magni af keyptri nauðsynjavöru. Anna Valdís hefur veitt Fjölskyldu- hjálp Íslands í Reykjanesbæ forstöðu í tólf ár og segir stöðuna aldrei hafa verið verri en einmitt núna. „Það eru svo margir atvinnulausir og að koma í fyrsta skipti til okkar. Hingað eru að koma Íslendingar sem eru án at- vinnu og eru heldur ekki komnir á bætur. Ég er að sjá hérna einstæða feður sem eru með börn aðra hverja helgi og eru ekki komnir með bætur. Einnig eru að koma til okkar margir einstaklingar sem eru með tíma- bundið dvalarleyfi.“ Í síðustu úthlutun hjá Fjölskyldu- hjálp Íslands í Reykjanesbæ voru 230 fjölskyldur og einstaklingar sem fengu úthlutað. Í úthlutuninni þar á undan voru yfir 300 og þá kláraðist allur matur. „Nú eru jólin framundan og það bætist alltaf í hópinn fyrir jólin. En staðan er vægast sagt mjög alvarleg hér á Suðurnesjum.“ — Hvernig eruð þið að framkvæma þetta núna í þessu ástandi? „Ég bað bæjarstjórann okkar að koma hingað í síðustu úthlutun, sem hann gerði. Við leyfðum honum að sjá aðstæður hjá okkur, því við erum ekki með stórt húsnæði til að veita öllu þessu fólki skjól. Okkur finnst hræðilegt að þurfa að láta allt þetta fólk standa úti. Ég spurði bæjar- stjórann hvort hann ætti fyrir okkur húsnæði og hann talaði um að lána okkur jafnvel gömlu rútustöðina í Grófinni í desember því við komum jafnvel til með að vera með fleiri úthlutanir í desember, jafnvel viku- lega. Þá mun sjálf jólaúthlutunin vera framkvæmd á þremur dögum núna en ekki á einum eins og áður, því við getum ekki lagt þetta allt á sjálfboða- liðana okkar.“ Allt gengur hægar fyrir sig Í samkomutakmörkunum sem nú eru gengur allt hægar fyrir sig í út- hlutunum hjá Fjölskylduhjálp Ís- lands. Vel er passað upp á tveggja metra regluna og það kemur bara einn inn í einu. „Þannig að þetta er allt miklu seinvirkara. Við pössum uppá að það komi enginn inn grímu- laus, það er sprittað og við erum með okkar varnir. Við þurfum að passa vel upp á okkur, því við erum í framvarðasveit að hjálpa fólki sem á ekki neitt.“ Fjölskylduhjálp Íslands í Reykja- nesbæ hefur verið með úthlutanir yfir allt Covid-tímabilið og þurft að gæta að vörnum og ekkert smit hefur komið upp í starfseminni sem er umfangsmikil. Sem dæmi um fjölda úthlutana þá voru 888 úthlutanir í septembermánuði og 1450 einstaklingar á bakvið þær út- hlutanir. Þá voru jafnvel að koma 40 fjölskyldur á dag. Talið berst aftur að gjöfinni frá Ice-Group sem Jón Gunnarsson stýrir. Fyrirtækið hefur undanfarin fjögur ár gefið máltíðir fyrir jólin, hangikjöt og allt meðlæti fyrir fjölda manns. „Nú bætir það um betur og gefur 500.000 krónur á mánuði í þrjá mánuði. Við erum það passa- samar hér og erum ekki að bruðla í neitt og kaupum hagstætt og ódýrt. Jón samdi svo við birgja um veru- legan afslátt og getur því keypt meira fyrir sitt framlag í heildsölu,“ segir Anna Valdís. Það eru fleiri að koma að matar- gjöfum til Fjölskylduhjálpar Íslands nú fyrir jólin, því Kaupfélag Skagfirð- inga hefur nýlega gefið 40.000 mál- tíðir og hluti þeirrar gjafar kemur til Suðurnesja. „Þetta er besta sending sem við höfum fengið því við höfum aldrei fengið svona stóra hjálp eins og þessar gjafir. Gjöfin frá Ice-Group er stærsta gjöf sem við höfum fengið og yndislegt hvernig þau eru að hugsa til okkar.“ Aðspurður sagði Jón Gunnarsson að eigendur Ice-Group væru ekki mikið fyrir að auglýsa svona aðstoð, en nú væri ástandið orðið það alvarlegt að nauðsynlegt væri að fá fleiri fyrirtæki í lið með Fjölskylduhjálpinni og hann vonaðist til þess að umfjöllun nú skilaði fleiri höndum á dekk. Fleiri leggja lið Það eru fleiri að leggja Fjölskyldu- hjálp Íslands í Reykjanesbæ lið. Sig- urður Magnússon, sem á og rekur Fiskbúð Reykjaness, kemur með frosinn fisk til hjálparsamtakanna alla föstudaga. Honum er safnað í frystikistur og fyrir síðustu úthlutun var hægt að veita öllum fisk. „Sig- urður er drengur sem er nýbyrjaður með sína fiskbúð og að geta gert þetta er bara yndislegt. Hann gaf einnig 40 gjafabréf, þannig að þær fjölskyldur sem fengu þau gátu farið og valið úr fiskborðinu hjá honum og bara sagt hvað það væru margir í mat. Við létum stærstu fjölskyld- urnar sem koma til okkar njóta góðs af því. Það er líka yndislegt fyrir okkur að fá fisk, því hann er eitthvað sem við getum ekki keypt, því hann er dýrari en margt annað.“ Anna Valdís segir að það sem þessir stuðningsaðilar Fjölskylduhjálpar eru að gera nú fyrir jólin sé hvatning til annarra fyrirtækja að láta gott af sér leiða því staðan á Suðurnesjum sé vægast sagt mjög slæm. Hún segir að því miður hafi fyrirtæki hér syðra ekki verið að bregðast nógu vel við fram til þessa. Anna Valdís hvetur t.a.m. fiskverkendur til góðra verka. Það sé alltaf vel þegið að fá fisk í matarpakkann. Hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykja- nesbæ eru starfandi þrettán sjálf- boðaliðar en þeim er að fjölga um þessar mundir. Fyrir jólaúthlutunina þarf að vera tvöfalt teymi, annað á Baldursgötu og hitt í Grófinni, ef það húsnæði fæst til afnota. Þá hafa Soroptimistakonur í Keflavík boðið fram aðstoð sína í jólaúthlutuninni. Anna Valdís segir að það verði mikið álag í desember og því gott að fá fleiri hjálparhendur til að leggja starfinu lið. Myndarlegar matargjafir til Fjölskylduhjálpar Íslands í Reykjanesbæ: „Algjör himnasending til okkar – enda veitir ekki af“ BREYTINGAR Á HÚSALEIGU ELDRI BORGARA Í VÍÐIHLÍÐ Í GRINDAVÍK Miðflokkurinn í Grindavík fagnar því að samþykkt hafi verið á bæjar- stjórnarfundi í gær að breyta leigu- málum í Víðihlíð en þar eru íbúðir fyrir eldri borgara. Árið 2018 voru teknar í gagnið sex nýjar íbúðir í Víðihlíð og eins og hefur tíðkast í Grindavík sem og víða annars- staðar var leiguverð og íbúðaréttur reiknaður út frá stofnverði við- byggingarinnar sem var dýr í bygg- ingu og leiguverð því mjög hátt og mun hærra á hvern fermeter en á eldri íbúðum. Undirrituð hefur tekið þetta mál fyrir á fundum á kjörtímabilinu og óskað eftir leiðréttingu sem loks er komin í gegn. Á fundinum í gær var samþykkt að breyta aðferðum við útreikning leigunnar sem hefur í för með sér að leiguverð lækkar umtalsvert, þó mismikið, ásamt því að fella niður íbúðarétt sem hefur verið við lýði í mörg ár. Þessi nýja samþykkt tekur gildi um áramót. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir okkar dýrmætu þegna. Eldri samningar með íbúðarétt, þar sem eldri borgarar greiða lægri leigu, munu þó halda sér nema þeir kjósi að fara í nýja kerfið. Þetta er mikil einföldun á kerfinu hjá okkur og var þessi tillaga samþykkt samhljóða eftir að vinnuhópur sem stofnaður var um leigumál í Víðihlíð skilaði af sér þessum tillögum. Í síðustu kosningunum voru mál- efni eldri borgara sett í forgang hjá okkur í Miðflokknum í Grindavík og var þetta eitt af þeim málum sem við lofuðum að taka á, því er um mikinn áfangasigur að ræða. Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík Jón Gunnarsson frá IceGroup og Anna Valdís fyrir framan húsnæði Fjölskylduhjálpar Íslands. 20 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.