Víkurfréttir - 04.11.2020, Síða 20
„Þetta er stórkostlegt. Algjör himnasending til okkar og enda veitir ekki
af, staðan er þannig,“ segir Anna Valdís Jónsdóttir, forstöðukona hjá
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ um veglega gjöf frá fyrirtækinu
Ice-Group í Reykjanesbæ til Fjölskylduhjálpar Íslands. Fyrirtækið gefur
hjálparsamtökunum matargjafir að verðmæti samtals ein og hálf milljón
króna eða sem nemur hálfri milljón króna á mánuði í október, nóvember
og desember. Matvöruna í október keypti Ice-Group hjá Krónunni, Kjarna-
fæði og MS og fær veglegan afslátt í viðskiptunum sem skilar sér í meira
magni af keyptri nauðsynjavöru.
Anna Valdís hefur veitt Fjölskyldu-
hjálp Íslands í Reykjanesbæ forstöðu
í tólf ár og segir stöðuna aldrei hafa
verið verri en einmitt núna. „Það eru
svo margir atvinnulausir og að koma
í fyrsta skipti til okkar. Hingað eru
að koma Íslendingar sem eru án at-
vinnu og eru heldur ekki komnir á
bætur. Ég er að sjá hérna einstæða
feður sem eru með börn aðra hverja
helgi og eru ekki komnir með bætur.
Einnig eru að koma til okkar margir
einstaklingar sem eru með tíma-
bundið dvalarleyfi.“
Í síðustu úthlutun hjá Fjölskyldu-
hjálp Íslands í Reykjanesbæ voru
230 fjölskyldur og einstaklingar sem
fengu úthlutað. Í úthlutuninni þar á
undan voru yfir 300 og þá kláraðist
allur matur. „Nú eru jólin framundan
og það bætist alltaf í hópinn fyrir
jólin. En staðan er vægast sagt mjög
alvarleg hér á Suðurnesjum.“
— Hvernig eruð þið að framkvæma
þetta núna í þessu ástandi?
„Ég bað bæjarstjórann okkar að
koma hingað í síðustu úthlutun, sem
hann gerði. Við leyfðum honum að
sjá aðstæður hjá okkur, því við erum
ekki með stórt húsnæði til að veita
öllu þessu fólki skjól. Okkur finnst
hræðilegt að þurfa að láta allt þetta
fólk standa úti. Ég spurði bæjar-
stjórann hvort hann ætti fyrir okkur
húsnæði og hann talaði um að lána
okkur jafnvel gömlu rútustöðina í
Grófinni í desember því við komum
jafnvel til með að vera með fleiri
úthlutanir í desember, jafnvel viku-
lega. Þá mun sjálf jólaúthlutunin vera
framkvæmd á þremur dögum núna
en ekki á einum eins og áður, því við
getum ekki lagt þetta allt á sjálfboða-
liðana okkar.“
Allt gengur hægar fyrir sig
Í samkomutakmörkunum sem nú
eru gengur allt hægar fyrir sig í út-
hlutunum hjá Fjölskylduhjálp Ís-
lands. Vel er passað upp á tveggja
metra regluna og það kemur bara
einn inn í einu. „Þannig að þetta er
allt miklu seinvirkara. Við pössum
uppá að það komi enginn inn grímu-
laus, það er sprittað og við erum
með okkar varnir. Við þurfum að
passa vel upp á okkur, því við erum
í framvarðasveit að hjálpa fólki sem
á ekki neitt.“
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykja-
nesbæ hefur verið með úthlutanir
yfir allt Covid-tímabilið og þurft
að gæta að vörnum og ekkert smit
hefur komið upp í starfseminni
sem er umfangsmikil. Sem dæmi
um fjölda úthlutana þá voru 888
úthlutanir í septembermánuði og
1450 einstaklingar á bakvið þær út-
hlutanir. Þá voru jafnvel að koma 40
fjölskyldur á dag.
Talið berst aftur að gjöfinni frá
Ice-Group sem Jón Gunnarsson
stýrir. Fyrirtækið hefur undanfarin
fjögur ár gefið máltíðir fyrir jólin,
hangikjöt og allt meðlæti fyrir fjölda
manns. „Nú bætir það um betur og
gefur 500.000 krónur á mánuði í
þrjá mánuði. Við erum það passa-
samar hér og erum ekki að bruðla í
neitt og kaupum hagstætt og ódýrt.
Jón samdi svo við birgja um veru-
legan afslátt og getur því keypt meira
fyrir sitt framlag í heildsölu,“ segir
Anna Valdís.
Það eru fleiri að koma að matar-
gjöfum til Fjölskylduhjálpar Íslands
nú fyrir jólin, því Kaupfélag Skagfirð-
inga hefur nýlega gefið 40.000 mál-
tíðir og hluti þeirrar gjafar kemur til
Suðurnesja. „Þetta er besta sending
sem við höfum fengið því við höfum
aldrei fengið svona stóra hjálp eins
og þessar gjafir. Gjöfin frá Ice-Group
er stærsta gjöf sem við höfum fengið
og yndislegt hvernig þau eru að
hugsa til okkar.“ Aðspurður sagði Jón
Gunnarsson að eigendur Ice-Group
væru ekki mikið fyrir að auglýsa
svona aðstoð, en nú væri ástandið
orðið það alvarlegt að nauðsynlegt
væri að fá fleiri fyrirtæki í lið með
Fjölskylduhjálpinni og hann vonaðist
til þess að umfjöllun nú skilaði fleiri
höndum á dekk.
Fleiri leggja lið
Það eru fleiri að leggja Fjölskyldu-
hjálp Íslands í Reykjanesbæ lið. Sig-
urður Magnússon, sem á og rekur
Fiskbúð Reykjaness, kemur með
frosinn fisk til hjálparsamtakanna
alla föstudaga. Honum er safnað í
frystikistur og fyrir síðustu úthlutun
var hægt að veita öllum fisk. „Sig-
urður er drengur sem er nýbyrjaður
með sína fiskbúð og að geta gert
þetta er bara yndislegt. Hann gaf
einnig 40 gjafabréf, þannig að þær
fjölskyldur sem fengu þau gátu farið
og valið úr fiskborðinu hjá honum
og bara sagt hvað það væru margir
í mat. Við létum stærstu fjölskyld-
urnar sem koma til okkar njóta góðs
af því. Það er líka yndislegt fyrir
okkur að fá fisk, því hann er eitthvað
sem við getum ekki keypt, því hann
er dýrari en margt annað.“
Anna Valdís segir að það sem þessir
stuðningsaðilar Fjölskylduhjálpar
eru að gera nú fyrir jólin sé hvatning
til annarra fyrirtækja að láta gott af
sér leiða því staðan á Suðurnesjum
sé vægast sagt mjög slæm. Hún segir
að því miður hafi fyrirtæki hér syðra
ekki verið að bregðast nógu vel við
fram til þessa. Anna Valdís hvetur
t.a.m. fiskverkendur til góðra verka.
Það sé alltaf vel þegið að fá fisk í
matarpakkann.
Hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Reykja-
nesbæ eru starfandi þrettán sjálf-
boðaliðar en þeim er að fjölga um
þessar mundir. Fyrir jólaúthlutunina
þarf að vera tvöfalt teymi, annað á
Baldursgötu og hitt í Grófinni, ef
það húsnæði fæst til afnota. Þá hafa
Soroptimistakonur í Keflavík boðið
fram aðstoð sína í jólaúthlutuninni.
Anna Valdís segir að það verði
mikið álag í desember og því gott að
fá fleiri hjálparhendur til að leggja
starfinu lið.
Myndarlegar matargjafir til Fjölskylduhjálpar Íslands í Reykjanesbæ:
„Algjör himnasending til
okkar – enda veitir ekki af“
BREYTINGAR Á HÚSALEIGU ELDRI
BORGARA Í VÍÐIHLÍÐ Í GRINDAVÍK
Miðflokkurinn í Grindavík fagnar
því að samþykkt hafi verið á bæjar-
stjórnarfundi í gær að breyta leigu-
málum í Víðihlíð en þar eru íbúðir
fyrir eldri borgara. Árið 2018 voru
teknar í gagnið sex nýjar íbúðir í
Víðihlíð og eins og hefur tíðkast
í Grindavík sem og víða annars-
staðar var leiguverð og íbúðaréttur
reiknaður út frá stofnverði við-
byggingarinnar sem var dýr í bygg-
ingu og leiguverð því mjög hátt og
mun hærra á hvern fermeter en á
eldri íbúðum.
Undirrituð hefur tekið þetta mál
fyrir á fundum á kjörtímabilinu og
óskað eftir leiðréttingu sem loks
er komin í gegn. Á fundinum í gær
var samþykkt að breyta aðferðum
við útreikning leigunnar sem hefur
í för með sér að leiguverð lækkar
umtalsvert, þó mismikið, ásamt því
að fella niður íbúðarétt sem hefur
verið við lýði í mörg ár. Þessi nýja
samþykkt tekur gildi um áramót.
Þetta er gríðarlegt hagsmunamál
fyrir okkar dýrmætu þegna. Eldri
samningar með íbúðarétt, þar sem
eldri borgarar greiða lægri leigu,
munu þó halda sér nema þeir kjósi
að fara í nýja kerfið. Þetta er mikil
einföldun á kerfinu hjá okkur og var
þessi tillaga samþykkt samhljóða
eftir að vinnuhópur sem stofnaður
var um leigumál í Víðihlíð skilaði af
sér þessum tillögum.
Í síðustu kosningunum voru mál-
efni eldri borgara sett í forgang hjá
okkur í Miðflokknum í Grindavík og
var þetta eitt af þeim málum sem
við lofuðum að taka á, því er um
mikinn áfangasigur að ræða.
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir,
bæjarfulltrúi Miðflokksins í
Grindavík
Jón Gunnarsson frá IceGroup og Anna Valdís fyrir framan húsnæði Fjölskylduhjálpar Íslands.
20 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár