Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.11.2020, Síða 18

Víkurfréttir - 04.11.2020, Síða 18
Vínleit.is Leitarvél sem auðveldar val á víni fyrir öll tilefni Hafliði Már Brynjarsson og Helgi Már Vilbergsson eru ungir áhugamenn í Reykja- nesbæ um léttvín og áhuginn leiddi þá út í að hanna leitarvél sem hjálpar notendum að velja vín við hæfi. Vefurinn heitir Vínleit.is (vinleit.is) og er settur upp af forritar- anum Hinriki Snæ sem er einnig frá Reykjanesbæ. Við erum matgæðingar með mikinn áhuga á víni og vínmenningu ásamt því að vera virkir meðlimir í vín- klúbbi með fyrrverandi vinnufé- lögum úr víndeild Fríhafnarinnar. Við höfum sótt fjölmörg námskeið og kynningar í gegnum árin ásamt því að hafa verið duglegir að smakka hin ýmsu vín heimshorna á milli og safna upplýsingum í okkar eigin gagnagrunn með einkunnagjöf. Okkur fannst vera pláss á íslenskum markaði fyrir áreiðanlega og hlut- lausa vínumfjöllun á mannamáli sem allir geta skilið og tengt við,“ segja þeir félagar um ástæðu þess að þeir réðust í þetta verkefni. „Helgi hafði verið með þetta í hausnum lengi og í mars 2019 heyrði hann í forritara og við höfum verið að vinna í þessu síðan,“ segir Hafliði. „Ég fékk þessa hugmynd að útbúa þjónustusíða á netinu því við höfðum báðir unnið í Fríhöfninni þar sem við vorum í sífellu að leiðbeina fólki um val á víni,“ bætir Helgi við. „Leitarvélin auðveldar fólki, byrj- endum sem lengra komnum, valið á víni og getur líka bent á þeim sam- bærileg vín sem gætu verið hag- kvæmari – þar sem fólk fær meira fyrir aurinn, ef svo má segja.“ Notendur hafa lokaorðið Helgi bendir á að í byrjun gefa þeir Hafliði víninu þá einkunn sem þeir eru sammála um en svo er einkunn- argjöfin lifandi því fólk getur sjálft gefið víninu sína einkunn. „Síðan er búin að vera í þróun í eitt og hálft ár, einkunnir eru hlut- lausar og við höfum prófað öll vínin sjálfir – þarna fara bara inn vín sem við höfum smakkað,“ segir hann. „Við setjum einkunnirnar inn í byrjun en svo eru það notendurnir sem koma til með að hafa áhrif á ein- kunnargjöfina eftir því sem fleiri gefa sitt mat á því. Það eru margir sem hafa smakkað sömu vín þarna úti og þeir eru ekki endilega sammála okkur, þá tekur einkunnargjöfin mið af því,“ segir Hafliði. Helgi segir að þeirra einkunn hafi meira vægi í byrjun og það sé gert til að einkunnin rokki ekki of mikið upp og niður. „En það jafnast út eftir því sem fleiri gefa einkunn.“ „Eins og er þá erum við með rauðvín og hvítvín þarna inni,“ segir Hafliði og bætir við: „Svo munum við bæta inn freyðivíni og rósavíni. Þarna er líka að finna fróðleikspistla um vín og við munum setja nýja pistla inn vikulega.“ Áhugamál – Er þetta bara áhugamál ykkar eða sjáið þið fram á að vefurinn muni borga sig? „Þetta hefur náttúrlega verið mikið áhugamál hjá okkur síðan við unnum í víndeild Fríhafnarinnar, þar sem voru vínkynningar í hverri viku,“ svarar Hafliði og Helgi skýtur inn: „Enn sem komið er hefur þetta bara verið kostnaður hjá okkur, dýrt áhugamál, en vonandi náum við einhverju inn á auglýsingum seinna meir til að hafa upp í kostnað.“ „Núna erum við með tæplega 130 vín í leitarvélinni og talsvert fleiri á kantinum sem við erum að fínpússa, auk þess eru pistlar í yfirlestri og svo ætlum við að setja staðreyndir á léttu nótunum eins og: „Vissir þú að það er til Spa í Japan þar sem þú getur synt í rauðvíni?“ Þau geta orðið dýpri líka,“ segir Hafliði og hlær. – Er eitthvað sem þið viljið bæta við þetta? „Já,“ segir Helgi. „Þarna inni getur þú til dæmis valið þitt uppáhaldsvín og ef þú vilt prófa eitthvað sem er líkt því getur leitarvélin bent þér á eitthvað sambærilegt undir „Svipuð vín“. Þetta var mjög algeng spurning sem maður fékk í Fríhöfninni ef fólki langaði að prófa eitthvað nýtt en var ekki tilbúið að fara of langt frá því sem það hélt upp á. Þannig er kannski hægt að finna svipað vín í öðrum verðflokki sem dæmi.“ „Svo vil ég bæta við að síðan er aðgengileg og auðveld þannig að allir ættu að geta fundið rétta vínið fyrir hvert tilefni á innan við fimm mínútum,“ segir Hafliði að lokum og bætir við: „Þarna eru allar ein- kunnargjafir hlutlausar og birgjar hafa engin áhrif á þær.“ Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is KAPALVÆÐING BÝÐUR ÞJÓNUSTU UM LJÓSLEIÐARA GAGNAVEITA REYKJAVÍKUR Kapalvæðing og Gagnaveita Reykjavíkur (GR) hafa undirritað samkomulag þess efnis að Kapalvæðing leigi aðgang að ljósleiðarakerfi GR um opið net félagsins. Með samningnum mun Kapalvæðing geta aukið þjónustu og bandvídd við viðskiptavini sína á Reykjanesi yfir ljósleiðaranet GR. Unnið er að tæknilegum undirbúningi og stefnt að því að þjónusta Kapalvæðingar verði aðgengileg á ljósleiðara GR á næstu vikum. „Við fögnum þessum samning við Gagnaveituna en með honum munum við geta boðið þjónustu okkar til allra heimila sem ljósleið- arakerfi GR nær til. Þetta er stórt skref fyrir okkur þar sem við höfum ekki nýtt önnur ljósleiðarakerfi en okkar eigin og býður samningurinn okkur upp á nýja möguleika í þjón- ustu. Við erum byrjuð að taka á móti pöntunum,“ segir Börkur Birgisson, framkvæmdastjóri Kapal- væðingar. „Við höfum unnið að því að leggja ljósleiðara í Reykjanesbæ undan- farið og sjáum fram á að ljúka því verkefni á næstu árum og því fögnum við því að fá Kapalvæðingu inn á kerfið okkar. Það er sérstak- lega spennandi þar sem fyrirtækið er uppbyggt í Reykjanesbæ og starfsemin er þar. Þjónusta Kapal- væðingar verður í kjölfarið í boði á ljósleiðarakerfi GR sem mun ná til um 107 þúsund heimila í lok árs og eykur val neytenda. Samningurinn ýtir undir stefnu stjórnvalda um að Ísland verði áfram framarlega í notkun á ljósleiðara og tökum við fagnandi á móti nýjum þjónustuaðila á Ljósleiðaranum,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur. Upplýsingar um þjónustu Kapal- væðingar er að finna á www.kv.is. Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, og Börkur Birgisson, framkvæmdastjóri Kapalvæðingar, við undirritun samnings fyrirtækjanna. Bílbruni rannsakaður sem sakamál Bifreið brann á Ásbrú í Reykjanesbæ síðastliðið föstudagskvöld. Það var vegfarandi sem tilkynnti um brennandi bíl og þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögregla komu á staðinn var bifreiðin alelda og gjörónýt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rökstuddur grunur um að eldur hafi verið lagður að bílnum og er málið rannsakað sem sakamál. Myndirnar eru frá slökkvistarfi á vettvangi. VF-myndir: Hilmar Bragi 18 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.