Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 18
Vínleit.is
Leitarvél sem auðveldar
val á víni fyrir öll tilefni
Hafliði Már Brynjarsson og Helgi Már Vilbergsson eru ungir áhugamenn í Reykja-
nesbæ um léttvín og áhuginn leiddi þá út í að hanna leitarvél sem hjálpar notendum
að velja vín við hæfi. Vefurinn heitir Vínleit.is (vinleit.is) og er settur upp af forritar-
anum Hinriki Snæ sem er einnig frá Reykjanesbæ.
Við erum matgæðingar með mikinn
áhuga á víni og vínmenningu ásamt
því að vera virkir meðlimir í vín-
klúbbi með fyrrverandi vinnufé-
lögum úr víndeild Fríhafnarinnar.
Við höfum sótt fjölmörg námskeið
og kynningar í gegnum árin ásamt
því að hafa verið duglegir að smakka
hin ýmsu vín heimshorna á milli og
safna upplýsingum í okkar eigin
gagnagrunn með einkunnagjöf.
Okkur fannst vera pláss á íslenskum
markaði fyrir áreiðanlega og hlut-
lausa vínumfjöllun á mannamáli sem
allir geta skilið og tengt við,“ segja
þeir félagar um ástæðu þess að þeir
réðust í þetta verkefni.
„Helgi hafði verið með þetta í
hausnum lengi og í mars 2019 heyrði
hann í forritara og við höfum verið
að vinna í þessu síðan,“ segir Hafliði.
„Ég fékk þessa hugmynd að
útbúa þjónustusíða á netinu því við
höfðum báðir unnið í Fríhöfninni þar
sem við vorum í sífellu að leiðbeina
fólki um val á víni,“ bætir Helgi við.
„Leitarvélin auðveldar fólki, byrj-
endum sem lengra komnum, valið á
víni og getur líka bent á þeim sam-
bærileg vín sem gætu verið hag-
kvæmari – þar sem fólk fær meira
fyrir aurinn, ef svo má segja.“
Notendur hafa lokaorðið
Helgi bendir á að í byrjun gefa þeir
Hafliði víninu þá einkunn sem þeir
eru sammála um en svo er einkunn-
argjöfin lifandi því fólk getur sjálft
gefið víninu sína einkunn.
„Síðan er búin að vera í þróun í
eitt og hálft ár, einkunnir eru hlut-
lausar og við höfum prófað öll vínin
sjálfir – þarna fara bara inn vín sem
við höfum smakkað,“ segir hann.
„Við setjum einkunnirnar inn í
byrjun en svo eru það notendurnir
sem koma til með að hafa áhrif á ein-
kunnargjöfina eftir því sem fleiri gefa
sitt mat á því. Það eru margir sem
hafa smakkað sömu vín þarna úti
og þeir eru ekki endilega sammála
okkur, þá tekur einkunnargjöfin mið
af því,“ segir Hafliði.
Helgi segir að þeirra einkunn hafi
meira vægi í byrjun og það sé gert til
að einkunnin rokki ekki of mikið upp
og niður. „En það jafnast út eftir því
sem fleiri gefa einkunn.“
„Eins og er þá erum við með
rauðvín og hvítvín þarna inni,“ segir
Hafliði og bætir við: „Svo munum
við bæta inn freyðivíni og rósavíni.
Þarna er líka að finna fróðleikspistla
um vín og við munum setja nýja
pistla inn vikulega.“
Áhugamál
– Er þetta bara áhugamál ykkar eða
sjáið þið fram á að vefurinn muni
borga sig?
„Þetta hefur náttúrlega verið mikið
áhugamál hjá okkur síðan við unnum
í víndeild Fríhafnarinnar, þar sem
voru vínkynningar í hverri viku,“
svarar Hafliði og Helgi skýtur inn:
„Enn sem komið er hefur þetta bara
verið kostnaður hjá okkur, dýrt
áhugamál, en vonandi náum við
einhverju inn á auglýsingum seinna
meir til að hafa upp í kostnað.“
„Núna erum við með tæplega 130
vín í leitarvélinni og talsvert fleiri á
kantinum sem við erum að fínpússa,
auk þess eru pistlar í yfirlestri og
svo ætlum við að setja staðreyndir
á léttu nótunum eins og: „Vissir þú
að það er til Spa í Japan þar sem
þú getur synt í rauðvíni?“ Þau geta
orðið dýpri líka,“ segir Hafliði og
hlær.
– Er eitthvað sem þið viljið bæta
við þetta?
„Já,“ segir Helgi. „Þarna inni getur
þú til dæmis valið þitt uppáhaldsvín
og ef þú vilt prófa eitthvað sem er
líkt því getur leitarvélin bent þér á
eitthvað sambærilegt undir „Svipuð
vín“. Þetta var mjög algeng spurning
sem maður fékk í Fríhöfninni ef fólki
langaði að prófa eitthvað nýtt en
var ekki tilbúið að fara of langt frá
því sem það hélt upp á. Þannig er
kannski hægt að finna svipað vín í
öðrum verðflokki sem dæmi.“
„Svo vil ég bæta við að síðan er
aðgengileg og auðveld þannig að
allir ættu að geta fundið rétta vínið
fyrir hvert tilefni á innan við fimm
mínútum,“ segir Hafliði að lokum
og bætir við: „Þarna eru allar ein-
kunnargjafir hlutlausar og birgjar
hafa engin áhrif á þær.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
KAPALVÆÐING BÝÐUR
ÞJÓNUSTU UM LJÓSLEIÐARA
GAGNAVEITA REYKJAVÍKUR
Kapalvæðing og Gagnaveita Reykjavíkur (GR) hafa undirritað samkomulag
þess efnis að Kapalvæðing leigi aðgang að ljósleiðarakerfi GR um opið net
félagsins. Með samningnum mun Kapalvæðing geta aukið þjónustu og
bandvídd við viðskiptavini sína á Reykjanesi yfir ljósleiðaranet GR. Unnið
er að tæknilegum undirbúningi og stefnt að því að þjónusta Kapalvæðingar
verði aðgengileg á ljósleiðara GR á næstu vikum.
„Við fögnum þessum samning
við Gagnaveituna en með honum
munum við geta boðið þjónustu
okkar til allra heimila sem ljósleið-
arakerfi GR nær til. Þetta er stórt
skref fyrir okkur þar sem við höfum
ekki nýtt önnur ljósleiðarakerfi en
okkar eigin og býður samningurinn
okkur upp á nýja möguleika í þjón-
ustu. Við erum byrjuð að taka á
móti pöntunum,“ segir Börkur
Birgisson, framkvæmdastjóri Kapal-
væðingar.
„Við höfum unnið að því að leggja
ljósleiðara í Reykjanesbæ undan-
farið og sjáum fram á að ljúka því
verkefni á næstu árum og því
fögnum við því að fá Kapalvæðingu
inn á kerfið okkar. Það er sérstak-
lega spennandi þar sem fyrirtækið
er uppbyggt í Reykjanesbæ og
starfsemin er þar. Þjónusta Kapal-
væðingar verður í kjölfarið í boði á
ljósleiðarakerfi GR sem mun ná til
um 107 þúsund heimila í lok árs og
eykur val neytenda. Samningurinn
ýtir undir stefnu stjórnvalda um
að Ísland verði áfram framarlega í
notkun á ljósleiðara og tökum við
fagnandi á móti nýjum þjónustuaðila
á Ljósleiðaranum,“ segir Erling Freyr
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Gagnaveitu Reykjavíkur.
Upplýsingar um þjónustu Kapal-
væðingar er að finna á www.kv.is.
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu
Reykjavíkur, og Börkur Birgisson, framkvæmdastjóri
Kapalvæðingar, við undirritun samnings fyrirtækjanna.
Bílbruni rannsakaður sem sakamál
Bifreið brann á Ásbrú í Reykjanesbæ síðastliðið föstudagskvöld. Það
var vegfarandi sem tilkynnti um brennandi bíl og þegar slökkvilið
Brunavarna Suðurnesja og lögregla komu á staðinn var bifreiðin
alelda og gjörónýt.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rökstuddur grunur um að
eldur hafi verið lagður að bílnum og er málið rannsakað sem sakamál.
Myndirnar eru frá slökkvistarfi á vettvangi. VF-myndir: Hilmar Bragi
18 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár