Víkurfréttir - 04.11.2020, Page 1
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Á Suðurnesjum er stórt samfélag
Pólverja og vaxandi áhyggjur af
því að fjöldi Pólverja væri að
koma til landsins sýktir af kórón-
uveirunni voru ræddar á fundi
aðgerðarstjórnar almannavarna
á Suðurnesjum í síðustu viku.
Aðgerðastjórnina skipa fulltrúar
lögreglunnar á Suðurnesjum, frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg
og bæjarstjórarnir fjórir á Suður-
nesjum.
Fannar Jónasson, bæjar-
stjóri Grindavíkur, vakti máls
á áhyggjum fólks af fjölda Pól-
verja sem væru að koma sýktir til
landsins. Stórir hópar hafa komið
fá Póllandi undanfarnar vikur þar
sem margir einstaklingar hafa
reynst vera sýktir af kórónuveir-
unni og með virk smit.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, ræddi á
sama fundi að atvinnurekandi
hefði haft samband við sig fyrr í
sumar og hefði haft áhyggjur af
Pólverjum og afstöðu þeirra til
takmarkana sem gilda hér á landi.
Á fundi aðgerðarstjórnar Al-
mannavarna á Suðurnesjum í
þarsíðustu viku fór Sigurgeir
Sigmundsson, yfirlögregluþjónn
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar yfir
stöðuna í flugstöðinni. Sagði hann
miklar áhyggjur af hópum Pólverja
sem væru að koma úr orlofi eða fríi
þaðan og tveir stórir hópar höfðu
komið þaðan smitaðir þegar fund-
urinn fór framþann 19. október.
Hluti hópsins ákvað að fara í sýna-
töku. Hann sagði líka að það væru
stórir hópar að koma frá Póllandi
sem velja sóttkví í stað sýnatöku.
Hann hefði áhyggjur af því og
þetta eru einstaklingar sem búa
út um allt land. Sigurgeir sagði á
þeim fundi að hann ætlaði sér að
ræða þetta betur við almanna-
varnardeild Ríkislögreglustjóra og
sóttvarnalækni um hvernig eða
hvort hægt sé að bregðast við.
Jafnframt það að auka þurfi eftirlit
með þeim einstaklingum sem hafa
falið sóttkví og eru að koma frá
Póllandi.
Á Covid.is eru allar reglur pg
skilaboðin sem eru í gildi hverju
sinni á pólsku. Bent var á að búið
er að vekja ítrekaða athygli á þessu
við sóttvarnarlækni. Þá kom fram
að allir þeir sem koma til landsins
fái ítarlegar leiðbeiningar á pólsku
og þar er m.a. vísað á covid.is.
Áhyggjur af Covid-
sýktum Pólverjum
á leið til landsins
Umfangsmikilli loftrýmisgæslu
bandaríska flughersins er nýlokið
en flugsveitin hafði aðsetur á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflug-
velli. Þá fara nú fram áhafnaskipti
hjá kafbátaleitarsveit bandaríska
sjóhersins. Vegna sóttvarna þá taka
áhafnaskiptin langan tíma og því
eru hundruð liðsmanna kafbáta-
leitarsveita staddir í Reykjanesbæ.
Bandaríski flugherinn var með
fjórtán F-15 orrustuþotur á Kefla-
víkurflugvelli og þeim fylgdu 260
liðsmenn. Þá eru um 500 liðsmenn
með tólf bandarískum og tveimur
kanadískum kafbátaleitarvélum.
Þegar mest var voru hér yfir 700
erlendir liðsmenn erlendra herja
og flestir þeirra gistu á hótelum í
Reykjanesbæ. Þá var og er þessi
hópur með hundruð bílaleigubíla á
leigu.
Starfsemi Landhelgisgæslunnar
á öryggissvæðinu á Keflavíkurflug-
velli hefur mikil efnahagsleg áhrif á
Suðurnesjum. Í umfjöllun í Víkurf-
réttum í dag segir Jón B. Guðnason,
framkvæmdastjóri Landhelgisgæsl-
unnar í Keflavík, að jafnaði séu 50
til 100 manns á hótelum alla daga
ársins
Þegar mest var á svæðinu fór
fjöldi erlends liðsafla og sérfræðinga
yfir 700 en aðeins er hægt að hýsa
200 innan öryggissvæðisins. Það
var því óvenju fjölmennt, einnig á
hótelum í Reykjanesbæ, auk þess
sem bílaleigur og veitingastaðir
hafa notið góðs af. Eins og við var
að búast mun draga úr fjölda erlends
liðsafla á næstu dögum og vikum en
eins og áður þá er og verður alltaf
einhver fjöldi erlends liðsafla við
vinnu á öryggissvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli og annarra verktaka
og sérfræðinga og dvelur hluti þeirra
á hótelum utan öryggissvæðisins.
Landhelgisgæslan í Keflavík er því
að leigja hótelherbergi fyrir hundruð
milljóna króna á ári.
Nánar er fjallað er um verkefnin á
öryggissvæðinu í umfjöllun í blaðinu
í dag.
Gæslan leigir hótelherbergi fyrir
hundruð milljóna á Suðurnesjum
Breyttu Saltfisksetrinu í hryllilegt draugahús
Ungmenni í Grindavík breyttu Saltfisksetrinu í Grindavík í hryllilegt draugahús í tilefni af hrekkjavökunni sem
var síðasta laugardag. Menningarhúsið Kvikan í Grindavík iðaði af lífi alla síðustu viku þar sem ungmennin
hreiðruðu um sig og skemmtu sér í skugga kórónuveirufaraldurs. Allir nemendur Grunnskóla Grindavíkur
fengu tækifæri til að fara í gegnum draugahúsið og láta hræða sig örlítið áður en hrollurinn var svo dansaður
úr kroppnum á diskóteki. á vef Víkurfrétta má sjá innslag um draugahúsið og í rafrænni útgáfu Víkurfrétta
er nóg að smella á myndina hér að ofan til að spila myndskeiðið og sjá viðtöl við ungmennin.
Wizz Air flýgur milli Keflavíkurflugvallar og Póllands.
F-15 á flugi yfir Ósabotnum. Hafnir í baksýn.
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
659
kr/pk
169
kr/pk
179
kr/pk
GOTT VERÐ alla daga
Xtra eyrnapinnar
200 stk/pk
Coop bómullarskífur
120 stk/pk
Coop klósettpappír
Lúxus - 6 stk/pk
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
REYKJANESBÆ
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN KL. 15 - 16.
PÓSTHÚSSTRÆTI 5
Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000
Viltu að eignin þín sé
ÁBERANDI?
Skráðu hana hjá okkur!
MiðvikudaGur 4. nóveMber 2020 // 42. tbl. // 41. árG.