Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 2
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Prentun:
Landsprent
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís
Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Útlit og umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Hilmar Bragi Bárðarson
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
Nettó veitir milljónum
til góðgerðarmála
– óskað eftir tillögum frá viðskiptavinum
Nettó hefur hrint verkefninu
Notum netið til góðra verka úr
vör og óskar eftir tillögum frá við-
skiptavinum um hvaða góðgerðar-
samtök eigi að styðja við. Verkefnið
felur í sér að 200 krónur af hverri
sendingu úr netverslun Nettó munu
renna til góðra málefna. Netverslun
Nettó er langstærsta netverslun
landsins með matvöru og gæti
upphæðin því hlaupið á milljónum
króna.
„Eftir að hafa velt fyrir okkur
mörgum góðum og verðugum sam-
tökum tókum við ákvörðun um að
óska eftir hugmyndum frá viðskipta-
vinum okkar. Þannig getum við tekið
þetta allt saman og séð hvar þörfin
er mest eða hvaða málefni á best
við samfélagsstefnu okkar. Okkar
von er að sem flestar ábendingar
berist því þetta er hvorki fyrsta né
síðasta verkefnið af þessu tagi sem
Nettó ræðst í,“ segir Gunnar Egill
Sigurðsson, framkvæmdastjóri versl-
unarsviðs Samkaupa, í tilkynningu
frá fyrirtækinu.
Nettó hefur undanfarin ár verður
fastur styrktaraðili Rauða krossins,
Fjölskylduhjálpar Íslands og Mæðra-
styrksnefndar.
„Sala í netverslun Nettó hefur
margfaldast síðan að kórónuveirufar-
aldurinn fór af stað og þetta er því
tækifæri fyrir okkur að gefa til baka.
Því varð slagorðið Notum netið til
góðra verka fyrir valinu. Hægt er að
panta úr netverslun Nettó á öllum
svæðum sem við starfrækjum versl-
anir og því getur meirihluti þjóðar-
innar látið gott af sér leið,“ segir
Gunnar.
Verkefnið stendur út nóvember
og geta viðskiptavinir valið úr mál-
efnum eða tilnefnt góðgerðarsamtök
á heimasíðu Nettó.
Nettó rekur sautján verslanir um
land allt og er hægt að panta mat-
vöru af netinu í fjórtán þeirra. Nettó
var fyrsta lágvöruverslunin til að
opna netverslun fyrir matvörur á
Íslandi í september 2017 og er sama
verð netversluninni og í verslunum
Nettó.
Grímuskylda er komin á í strætó í Reykjanesbæ fyrir
alla níu ára og eldri. Þetta kom fram á fjarfundi neyðar-
stjórnar Reykjanesbæjar sem fram fór á laugardaginn.
Hertar sóttvarnaraðgerðir eru nú í gildi. Að hámarki
mega tíu manns koma saman og aukin áhersla er lögð á
grímunotkun. Þá fellur allt íþróttastarf niður og takmark-
anir eru á skólastarfi. Íþróttahús og sundlaugar eru lok-
aðar fyrir almenning.
GRÍMUSKYLDA FYRIR ALLA
TÍU ÁRA OG ELDRI Í STRÆTÓ
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
Grindavíkurbæjar, afhenti for-
manni og varaformanni Björgunar-
sveitarinnar Þorbjarnar veglegan
blómvönd í tilefni 90 ára afmæli
hennar. Á þessum óvenjulegu
tímum var lítið um veisluhöld í til-
efni þess. Ýmislegt hafði þó verið í
undirbúningi sem mun bíða betri
tíma þegar takmarkanir vegna sótt-
varna verður aflétt.
Þeir Bogi Adolfsson, formaður
Slysavarnadeildarinnar, og Helgi
Einarsson, varaformaður, hafa báðir
unnið í fjölda ára innan deildarinnar.
Þeir voru sammála um að vinnan í
þágu deildarinnar væri áhugamál
og lítil kvöð þó það hafi alveg komið
upp í kollinn þeirra hvers vegna
þeir væru hreinlega að þessu. Alltaf
myndi félagsskapurinn og það að
vinna í þágu samfélagsins með
þessum hætti drífa þá áfram. Það
væri virkilega gaman að starfa innan
deildarinnar og félagsskapurinn þar
sé mjög góður.
Á spjalli við þá félaga barst í tal
fyrsta strandið sem sveitin kom að
en hún vann mikið björgunarafrek
þegar sveitin bjargaði 38 manna
áhöfn af CAP FAGNET þegar það
strandaði við Hraun í mars 1931.
Var þá fluglínutækið notað í fyrsta
sinn við björgun hér á landi. Það
sem margir kannski ekki vita er að
bæði skrúfa og varaskrúfa skipsins
eru staðsettar fyrir framan hús
deildarinnar en þeim var náð á land
eftir um áttatíu ár í sjónum. Þar má
sjá hvernig skrúfan hefur farið þegar
bátinn rak upp í fjöruna. Þar má líka
finna ankerið en það kom fyrr á land
en aðalskrúfan, segir á heimasíðu
Grindavíkurbæjar.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri
afhenti formanni og
varaformanni sveitarinnar
veglegan blómvönd í tilefni
dagsins. Á hinni myndinni
má sjá ankerið og skrúfuna
sem eru við húsnæði
björgunarsveitarinnar
í Grindavík.
Mynd: grindavik.is
Björgunarsveitin
Þorbjörn í Grindavík
fagnar 90 ára afmæli
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár