Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 4
Minna á að Suðurnesjabær fer með
skipulagsvald á lóð norðuráls í Helguvík
Bæjarráð Suðurnesjabæjar segist
fagna öllum hugmyndum og
áformum um atvinnustarfsemi
á því landi í Suðurnesjabæ sem
Norðurál hefur haft á leigu og byggt
mannvirki, eftir að Norðurál hefur
lýst því yfir að fyrirtækið muni
ekki hefja álbræðslu á svæðinu. Í
afgreiðslu bæjarráðs í síðustu viku
er minnt á að Suðurnesjabær fari
með skipulagsvald á lóðinni, sem
sé innan bæjarmarka Suðurnesja-
bæjar.
Þá segir að við þessa ákvörðun
Norðuráls þarf að leysa úr ýmsum
málum til þess að byggja megi upp
aðra atvinnustarfsemi á landinu og
er margt af þeirri vinnu lögfræðilegs
eðlis.
„Það eru miklir hagsmunir í húfi
fyrir Suðurnesjabæ. Umrætt land og
lóð Norðuráls er allt innan sveitar-
félagsmarka Suðurnesjabæjar og fer
Suðurnesjabær með skipulagsvald á
svæðinu. Hvort sem Samherji fisk-
eldi eða aðrir byggja upp atvinnu-
starfsemi á lóðinni liggur fyrir að
vinna þarf ákveðna skipulagsvinnu,
bæði aðalskipulag vegna markaðs
þynningarsvæðis vegna álbræðslu og
að deiliskipuleggja lóðina. Bæjarráð
telur eðlilegast að landeigandinn, Ka-
deco, í samstarfi við Suðurnesjabæ
annist þessa skipulagsvinnu,“ segir í
afgreiðslu bæjarráðs.
Þá segir að bæjarráð fagni hug-
myndum Samherja fiskeldis um
rekstur laxeldis á viðkomandi lóð
og lýsir vilja til samstarfs við fyrir-
tækið við að komast að niðurstöðu
um hvort af starfseminni verður.
DEKKJASKIPTI
VERÐ FRÁ 7.990 kr.
SLEPPTU BIÐINNI OG BÓKAÐU Á
WWW.BILAHOTEL.IS
ALHLIÐA BÍLAÞJÓNUSTA
GEYSIR - BOGATRÖÐ 11, ÁSBRÚ
SÍMI 455-0006
Álykta að flutningur Isavia til
Hafnar fjarðar sé bráðabirgðalausn
Fréttir af fyrirhuguðum flutningi á höfuðstöðvum Isavia til Hafnarfjarðar
koma bæjarráði Suðurnesjabæjar á óvart, að því að segir í afgreiðslu bæjar-
ráðs sem fundaði í síðustu viku. „Bæjarráð Suðurnesjabæjar gerir sér grein
fyrir því að mygla á vinnustað er alvarleg og getur kallað á að grípa þurfi
til aðgerða með hraði. Hins vegar getur bæjarráð ekki ályktað annað en
að flutningur til Hafnarfjarðar sé bráðabirgðalausn og þegar sé farið að
huga að uppbygginu höfuðstöðva Isavia við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í
samræmi við áform um þróun lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar,“ segir
orðrétt í afgreiðslu fundarins.
Það segir einnig: „Í nýlegu deiliskipu-
lagi Isavia fyrir vestursvæði Kefla-
víkurflugvallar er gert ráð fyrir mik-
illi uppbyggingu flugtengdrar þjón-
ustu og þar á meðal eru nokkrar lóðir
fyrir skrifstofubyggingar. Þá liggur
fyrir að aðstaða starfsfólks Isavia er
orðin þröng í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og jafnframt öryggisrök fyrir
því að stjórnsýsla flugvallarins sé í
húsnæði á svæðinu sem er ótengt
flugstöðinni. Því væri bæði rökrétt
og skynsamlegt skref hjá Isavia að
bregðast við húsnæðisvanda höfuð-
stöðva sinna með byggingu stjórn-
sýsluhúss við alþjóðaflugvöllinn
sem er hægt að sérsníða að þörfum
félagsins. Jafnframt má benda á það
hagræði sem myndi hljótast í rekstri
Isavia til lengri tíma með því að
hafa höfuðstöðvarnar á sama stað
og langmesta starfsemi fyrirtækisins
fer fram.
Samkvæmt nýlegri kynningu á
skýrslu Kadeco um uppbyggingu og
skipulag lands í nágrenni Keflavíkur-
flugvallar telur bæjarráð það rétta í
stöðunni að Isavia færi höfuðstöðvar
sínar á svæði Keflavíkurflugvallar.“
Í B Ú A R S U Ð U R N E S J A E R U 2 8 .1 6 5
Íbúar Reykjanesbæjar voru 19.609
þann 1. nóvember og hefur fjölgað
um 189 frá 1. desember 2019. Það
gerir 1,0% íbúafjölgun. Íbúar Suð-
urnesjabæjar voru 3.682 og hefur
fjölgað um 96 á sama tímabili. Það
gerir 2,7% íbúafjölgun á tímabilinu.
Grindvíkingar eru 3.546. Þeim
hefur fjölgað um 38 á tímabilinu eða
1,1%. Þá eru íbúar Sveitarfélagsins
Voga 1.3.28. Fjölgunin þar er tugt-
tugu manns á tímabilinu eða 1,5%.
Samtals eru íbúar Suðurnesja
28.165 talsins.
Reykjanesbær er enn fjórða
stærsta sveitarfélag landsins. Aðeins
Reykjavík, Kópavogur og Hafnar-
fjörður eru stærri. Akureyri er svo
næst á eftir Reykjanesbæ með 19.211
íbúa. Þeim hefur fjölgað um 187 á
tímabilinu sem er einum fleiri en
íbúum Reykjanesbæjar.
ÍBÚAR FÁI NOTIÐ HEILBRIGÐIS-
ÞJÓNUSTU Í SUÐURNESJABÆ
„Bæjarráð Suðurnesjabæjar beinir því til
heilbrigðisráðuneytis að íbúar Suðurnesja-
bæjar fái notið heilbrigðisþjónustu í sínu
sveitarfélagi. Á vegum ríkisins er engin
heilbrigðisþjónusta rekin í Suðurnesjabæ,
á meðan íbúar í öðrum sveitarfélögum
landsins búa að því að geta notið heilbrigð-
isþjónustu í sínum sveitarfélögum,“ segir
í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar
frá því í síðustu viku. Þar var heilbrigðis-
þjónusta í Suðurnesjabæ til umræðu.
Bæjarráð bendir á að í þessu felst mismunun gagnvart íbúum Suður-
nesjabæjar og hvetur heilbrigðisráðuneytið til þess að bæta hlut íbúa
sveitarfélagsins að þessu leyti og beiti sér fyrir fjárheimildum í fjárlögum
næsta árs í því skyni. Bæjarstjóra Suðurnesjabæjar er jafnframt falið að
óska eftir að forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja mæti til fundar
hjá bæjarráði Suðurnesjabæjar.
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár