Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 8
Silja Dögg Gunnarsdóttir forseti Norðurlandaráðs:
Sérstakt að sitja fyrir framan
tölvuskjá og hafa allt þetta
fólk fyrir framan sig í beinni
„Forsetatíð okkar Oddnýjar varð nú með allt öðrum hætti en við bjuggumst við þegar við
stóðum þarna með blómvendina í fanginu í Stokkhólmi fyrir ári síðan, þá nýkjörnar for-
seti og varaforseti Norðurlandaráðs,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona um störf
hennar og Oddnýjar Harðardóttur í Norðurlandaráði.
Þingmenn Norðurlandaráðs funduðu
með öllum forsætisráðherrum Norð-
urlandanna og aðalritara Sameinuðu
þjóðanna, Antonio Guterres í síðustu
viku. Umræðuefnið var Covid, við-
brögð við farsóttinni, hugsanlegar
afleiðingar og hvernig við gætum
brugðist við.
Rafrænt Norðurlandaráð
„Þrátt fyrir að starfsemi Norður-
landaráðs hafi verið römmuð inn
á annan hátt en áður þá hefur hið
pólitíska starf innan ráðsins ekki
raskast að neinu ráði, ef þá nokkuð.
Við höfum lagt mikla áherslu á
samþykkta stefnu Norðurlandaráðs
um samfélagslegt öryggi sem og að
komið verði á fót ráðherranefnd
um samgöngur. Að auki höfum við
verið í öflugu alþjóðlegu samstarfi,
m.a. átt fundi með forseta skoska
þingsins, forseta pólska þingsins og
stjórnarandstöðunni þar, tekið þátt í
þingmannaráðstefnum Eystrasalts-
ríkja og Benelux-ríkja, tekið þátt
í málþingum um falskar fréttir og
fundað með forystufólki stjórnar-
andstöðunnar í Hvíta-Rússlandi svo
eitthvað sé nefnt. Á dagskrá þessara
funda hafa áherslur verið á lýðræði,
mannréttindi og réttarríkið en það
eru þau gildi sem starfsemi Norður-
landaráðs og norrænnar samvinnu
grundvallast á.“
Silja segir að fjarfundaformið hafi
reynst vel, að vísu hafi smá tækni-
legir hnökrar verið til að byrja með.
„Bæði voru kerfin ekki gallalaus og
notendur ekki vanir að nota slík kerfi
og voru jafnvel ekki með þann búnað
sem til þurfti eða nógu góðar net-
tengingar. Við erum auðvitað búin
að læra margt og mikið á þessum
tíma, hvað varðar fjarfundi og fjar-
fundatækni, því hún er allt öðruvísi
en á venjulegum fundum. Verklagið
er öðruvísi og innra skipulag þegar
um er að ræða fjölmenna alþjóðlega
fundi.“
Hápunktur ársins
Silja segir að síðastliðin vika hafi
án efa verið hápunktur ársins hjá
Norðurlandaráði, eða hefðbundin
þingvika Norðurlandaráðs.
„Vegna Covid var ekki um eigin-
legt þing að ræða en það hefði átt að
fara fram í Hörpunni í Reykjavík og
verðlaunaafhending Norðurlanda-
ráðs einnig. Í staðinn funduðum við
sleitulaust á fjarfundum, nefndir
Norðurlandaráðs, flokkahóparnir og
svo átti forsætisnefnd fundi með for-
sætisráðherrum allra Norðurlanda,
varnarmálaráðherrum, utanríkis-
ráðherrum og að lokum þeim ráð-
herrum sem hafa almannavarnir í
sínum ráðuneytum. Þessir fundir
voru lokaðir en forsætisnefnd og
forsætisráðherrar Norðurlanda,
funduðu einnig með framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, Antonio
Guterres. Þeim fundi var streymt
víða um heim.
Ég var gestgjafi fundarins og hélt
smá ræðu áður en ég gaf Guterres
orðið. Ég verð viðurkenna að það
var sérstök tilfinning að sitja fyrir
framan tölvuskjá og hafa allt þetta
fólk fyrir framan sig í beinni, Gu-
terres og svo alla forsætisráðherra
Norðurlanda. Það var heldur ekki
hlaupið að því að fá Guterres á fund
okkar í Norðurlandaráði, og því var
þetta alveg einstakur viðburður sem
vakti heimsathygli en fundinum var
streymt í beinni um allan heim. Sam-
einuðu þjóðirnar eru 75 ára á þessu
ári og Norðurlöndin áttu ríkan þátt
í að þeim var komið á fót á sínum
tíma. Fyrstu tveir aðalritarar Sam-
einuðu þjóðanna voru frá Norður-
löndum, þ.e. fyrst Trygve Lie frá
Noregi til 1952 og síðan Dag Hamm-
arskjöld frá Svíþjóð til 1961. Þess
vegna skipti þessi fundur líka miklu
máli, þ.e. að undirstrika þessa sterku
tengingu SÞ og Norðulandanna, sögu
okkar og sameiginleg grunngildi.“
Í ræðu sinni sagði Guterres m.a.:
„Við reiðum okkur á Norðurlönd.
Þið hafið um langa hríð verið öflugir
talsmenn metnaðarfullra aðgerða í
loftslagsmálum. Heimurinn þarf
meira á forystu ykkar að halda nú
en nokkru sinni fyrr.“
Mikilvægt að þetta raðirnar
Þingkonan er ekki í vafa um að þessi
reynslu muni hafa jákvæð áhrif á
starfsemi Norðurlandaráðs til lengri
tíma og norrænt samstarf almennt.
„Covid hefur sýnt okkur hversu
mikilvægt það er að þétta raðirnar
þegar á reynir. Við höfum tileinkað
okkur fjarfundatækni og í því felast
tækifæri til að fækka ferðum, fækka
kolefnissporum og efla samstarfið
enn frekar því slíkt bíður upp á
fjölgun funda þar sem afar einfalt
er að koma þeim á með skömmum
fyrirvara og lítill kostnaður. Saman
erum við sterkari,“ segir Silja Dögg.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Háaleitisskóli – Starfsmaður skóla
Velferðarsvið – Liðveisla
Reykjanesbær – Almenn umsókn
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn
á sama stað. Þeim er komið til stofnana
sem eru í leit að starfsfólki. Almennar
umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Pólsk menningarhátíð
Pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ er nú haldin
í þriðja sinn dagana 2. - 8. nóvember. Íbúar eru
hvattir til þess að ganga um sveitarfélagið og njóta
útiverunnar um leið og þeir skoða listsýningar
sem verða í verslunargluggum á Hafnargötunni og
sérstakt veggjalistarverk verður sett á vegginn aftan
við gömlu sundhöllina.
Á föstudagskvöldið verður hægt er að skella sér í
bílabíó og njóta pólskrar kvikmyndamenningar. Við
fáum öll tækifæri til þess að læra að elda framandi
mat og sérstök barnadagskrá verður á Facebook
síðu Bókasafnsins.
Prófkjör hjá Framsóknarfólki
í Suðurkjördæmi
Tuttugasta kjördæmisþing Kjördæmissambands Framsóknarfélag-
anna í Suðurkjördæmi (KSFS) var haldið í fjarfundi fimmtudaginn
22. október. Skráðir fulltrúar í þinginu voru rúmlega eitthundrað og
fór þingið vel fram við óvenjulegar aðstæður. Var þetta í fyrsta sinn
sem þing KSFS er haldið í fjarfundi auk þess sem kosningar voru
rafrænar. Var það mál fólks að þinghald hefði gengið vel undir styrkri
stjórn Söndru Ránar Ásgrímsdóttur, þingforseta, segir í tilkynningu.
Á þinginu var tillaga stjórnar
KSFS um að lokað prófkjör verði
haldið til að velja á lista Fram-
sóknarflokksins í Suðurkjördæmi
fyrir næstu alþingiskosningar
samþykkt með 78% atkvæða.
Kosið verður um sex efstu sæti
listans í Suðurkjördæmi sam-
kvæmt reglum flokksins þar um.
Kjördagur verður laugardagurinn
10. apríl 2021 og rétt til atkvæða-
greiðslu eiga flokksbundnir fram-
sóknarmenn sem eiga lögheimili í
kjördæminu 30 dögum fyrir próf-
kjörsdag.
Á þinginu var jafnframt sam-
þykkt tillaga frá Jóni Gautasyni,
formanni Guðna, félags ungra
Framsóknarmanna í Árnes- og
Rangárvallasýslu, að leitað yrði
leiða til að hægt verði að kjósa
með rafrænum hætti í próf-
kjörinu.
Björn Harðarson var endur-
kjörinn formaður KSFS á
þinginu en auk hans skipa stjórn
þau Magnea Herborg Björns-
dóttir, Gunnlaugur Hreinsson,
Gissur Jónsson, Jóhanna Ýr Jó-
hannsdóttir, Kristján Sigurður
Guðnason og Guðrún Sigríður
Briem.
Í kjörstjórn KSFS fyrir próf-
kjörið voru kjörin Magnea Her-
borg Björnsdóttir, formaður,
Karl Pálmason, Reynir Arnarson,
Sigrún Þórarinsdóttir, Friðrik
Björnsson, Gissur Jónsson og
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.
Silja Dögg í pontu norska þingsins (Stortinget).
á timarit.is
ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG
8 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár