Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 10
TÍMABUNDIÐ LEYFI TIL SÖLU SKOTELDA Í SMÁSÖLU OG LEYFI TIL SKOTELDASÝNINGA Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu og leyfis til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2020 til og með 6. janúar 2021. Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölu skotelda í smásölu í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum fyrir og eftir áramót 2020–2021, ber að sækja um slíkt leyfi til lögreglunnar á Suðurnesjum í síðasta lagi þriðjudaginn 1. desember fyrir kl. 15:00. Hægt er að nálgast umsóknirnar á logreglan.is og á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ að Hringbraut 130. Einnig á lögreglustöðinni í Grindavík, Víkurbraut 25. Leyfi eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda. Athugið: • Umsóknaraðilar skila inn umsókn í síðasta lagi 1. desember 2020, til lög- reglu að Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ. • Fylgigögn umsókna skulu berast slökkviliði viðkomandi sveitarfélags. • Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 1. desember 2020 verða ekki teknar til afgreiðslu. • Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyfin í hendur þriðjudaginn 22. desember 2020. • Óheimilt er að hefja sölu, nema söluaðilar hafi í höndum leyfisbréf frá lögreglu. • Söluaðilar sæki leyfisbréf á lögreglustöðina við Hringbraut þriðjudaginn 22. desember 2020, kl. 09:00. Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: 1. Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn viðkomandi slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaði. Einnig liggi fyrir leyfi lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef um- sækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun skotelda. 2. Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 15. desember 2020 svo lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 fermetrar og búnir samkvæmt kröfum slökkviliðs viðkomandi sveitarfélags. Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á skoteldum og hefur náð 18 ára aldri. Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2020 til og með 6. janúar 2021. Gjald fyrir sölustað skotelda í smásölu er kr. 6.000, skoteldasýningar er kr. 11.000 og greiðist við innlögn umsóknar hjá lögreglu. Reykjanesbær 5. nóvember 2020. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - Sími 444 2200 Lögreglan á Suðurnesjum HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Að vinna í fiski er eins og að vinna í lottó Blessaður október búinn og við tók nóvember, maður hefði nú haldið að hlutirnir myndu lagast – en nei, þetta blessaða Covid hefur heldur betur sett strik í reikning hjá ansi mörgum. Ferðaþjónustan alveg steindauð, ekkert um að vera. Mikið atvinnu- leysi, sundlaugar lokaðar og pirr- ingur í þjóðfélaginu eykst. Aftur á móti hefur sjávarútveg- urinn haldið sjó á þessum tímum og að vinna í fiski í dag er bara eins og að vinna í lottó, því núna er þó margt um betra að komast í að vinna í fiski en að vera atvinnulaus heima og geta lítið sem ekkert gert. Fiskvinnslufyrirtæki á Suður- nesjum standa nokkuð vel að vígi, þau eru kvótastór og hafa nokkuð öflugan flota en eru á sama skapi orði tæknivæddari og þurfa því færra starfsfólks en áður. Það er samt nokkuð áhugavert að skoða bæina og sjá þá að stærsti staðurinn á Suðurnesjum, Keflavík og Njarðvík sem mynda Reykja- nesbæ, er má segja öll fiskvinnsla hrunin og eftir standa bara tvö fyrir- tæki, Saltver ehf. sem gerir út Erling KE og Hólmgrímur Sigvaldason sem er með stóra saltfiskvinnslu úti á Vatnsnesi og gerir út fjóra báta. Sömuleiðis er lítil sem enginn fisk- vinnsla í Vogum en þar var í mörg ár fiskvinnslan Valdimar hf. sem átti meðal annars Ágúst Guðmundsson GK og Þuríði Halldórsdóttur GK. Það fyrirtæki rann saman við Þorbjörn ehf. og er fyrirtækið með smá starfs- stöð í Vogum en það er þó ekkert í líkingu við það sem áður var þar. Skoðum aðeins Keflavík/Njarðvík nánar. Hvaða fiskvinnslur voru þar fyrir 35 árum síðan eða árið 1985. Jú, t.d Hraðfrystihús Keflavíkur hf. sem meðal annars gerði út togarana Aðalvík KE og Bergvík KE. Hluta aflans sem Miðnesbátarnir og -togararnir veiddu og lönduðu í Sandgerði var ekið til vinnslu í Keflavík HF en eftir að Keflavík HF brann var aðeins lítill hluti af þeim fiski unnin í þeim hluta sem ekki brann. Fiskverkun Arnar og Þorsteins Erlingssonar sem vann síld t.d. af Erni KE og Búrfelli KE, síðan var Saltver ehf. líka til og vann meðal annars af Búrfelli KE. Fiskverkun Hilmars og Odds í Keflavík gerði út tvo báta, Vatnsnes KE og Stafnes KE. Stafnes KE er bátur sem margir þekkja og skip- stjórinn á honum, Oddur Sæ- mundsson, var mikill aflamaður og landsþekktur fyrir mikinn afla í net sem var það veiðarfæri sem hann notaði hvað mest. Sjöstjarnan hf. var stórt fyrirtæki sem gerði t.d. út togarann Dags- tjörnuna KE og var mjög stór í fryst- ingu á loðnu yfir vertíðina. Þegar að Faxaflóinn opnaði fyrir veiðar drag- nótabátanna þá var Sjöstjarnan eitt stærsta fyrirtækið sem tók á móti kola í vinnslu af bátunum, t.d. af Vikari Árnasyni KE og Reykjarborg RE svo dæmi séu tekin. Vonin HF vann fisk af sínum eigin bát sem hét Vonin KE. Axel Pálsson hf. var meðal annars í rækju og af sínum eigin bátum sem hétu Jöfur KE og Jarl KE. Baldur hf vann fisk af sínum báti, Baldri KE, ásamt fleiri bátum. Happasæll sf. vann fisk af bátnum Happasæli KE en það nafn þekkja allir, báturinn er enn til í dag og heitir Grímsnes GK. Norðurvör hf. vann t.d. fisk af afla- bátnum Bergþóri KE sem Magnús Þórarinsson var skipstjóri á. Sonur hans, Einar Magnússon, gerði síðan út bátinn Ósk KE í vel yfir tuttugu ár og var jafn fiskinn og faðir sinn ef þannig má orða hlutina. Heimir hf. var stórt fyrirtæki og gerði út nokkra báta, t.d. Helga S KE og Heimir KE. Fiskverkun Jóhannesar Jóhanns- sonar verkaði fisk t.d. af bátnum Jó- hannes Jónsson KE. Fiskverkun Hákonar E Reynalds var með Arnar KE og Þorstein KE Valfóður hf. var fiskimjölsverk- smiðja Bás hf. Keflavík var t.d. með Svein Guðmundsson GK og Búðanes GK frá Grindavík ásamt fleiri bátum. Síðan var það Brynjólfur hf. sem var staðsett í Innri-Njarðvík og húsin standa þar enn en eru notuð undir geymslur undir hús- bíla og tjaldvagna. Það fyrirtæki var nokkuð stórt en gerði þó enga báta út heldur var með báta í viðskiptum, t.d. Hraunsvík GK og Farsæl GK frá Grindavík og Sæljón RE frá Reykjavík ásamt því að vinna humar. Eins og sést á þessu voru ansi mörg fiskvinnslufyrirtæki í Keflavík/ Njarðvík fyrir 35 árum síðan en eru nú öll horfin nema Saltver og til við- bótar er, eins og áður segir, Hólm- grímur Sigvaldason sem merkilegt nokk er stærsti útgerðaraðilinn í Reykjanesbæ. Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is 10 // aFlaFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.