Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 11
DEKKJASKIPTI
OLÍUSKIPTI
ALÞRIF
SLEPPTU BIÐINNI OG BÓKAÐU Á
NETINU WWW.BILAHOTEL.IS
ALHLIÐA BÍLAÞJÓNUSTA
GEYSIR - BOGATRÖÐ 11, ÁSBRÚ
SÍMI 455-0006
LÖGREGLAN RAK KYLFINGA HEIM ÚR LEIRUNNI
Lögreglumenn á Suðurnesjum mættu á Hólmsvöll í Leiru þar sem fjöldi kylfinga
var við leik á laugardag og vísaði þeim heim. Samkvæmt hertum sóttvarnarreglum
Almanna varna eru íþróttir, bæði keppni og æfingar, ekki heimilar til 17. nóvember.
Tveir lögreglumenn mættu út á
Hólmsvöll og gengu nokkrar brautir
og ræddu við fjölda kylfinga sem
voru við leik. Margir voru að leika
golf í haustblíðunni í Leirunni og
fleiri mættu á svæðið, á meðan lög-
reglan var á staðnum, og voru á leið
í golf en urðu frá að hverfa.
Það var ekki gott hljóð í kylfingum
sem eru margir hissa á þessum
reglum. Þeir megi fara út að ganga
en ekki fara í golf úti á golfvelli.
Knattspyrnan 2020:
Bæði lið Keflavíkur leika í
efstu deild á næsta tímabili
– Grindvíkingar deildarmeistarar í 2. deild kvenna en Víðismenn féllu
Knattspyrnusamband Íslands ákvað í síðustu viku að hætta allri keppni í knattspyrnu, var
sú ákvörðun tekin í framhaldi ákvörðunnar sóttvarnaryfirvalda að herða sóttvarnarreglur
vegna kórónuveirunnar.
Lengjudeild karla:
Í Lengjudeild karla eru Keflvíkingar
deildarmeistarar og leika í efstu deild
að ári en Grindvíkingar munu leika
annað tímabil í Lengjudeildinni.
Lengjudeild kvenna:
Það var orðið ljóst að Keflavík endar
í öðru sæti Lengjudeildar kvenna og
leika þær einnig í efstu deild á næsta
ári.
2. deild kvenna:
Grindvíkingar urðu deildarmeistarar
í 2. deild kvenna, þær voru tveimur
stigum á eftir HK þegar leik var
hætt en áttu leik til góða. Grindavík
fer því í efsta sæti með fleiri stig að
meðaltali en HK.
2. deild karla:
Í 2. deild enda Þróttarar í þriðja sæti
og Njarðvíkingar í því fjórða. Þróttur
var hársbreidd frá því að komast upp
í næstefstu deild en liðið gerði jafn-
tefli í síðasta leik og missti þar með
Selfoss því upp fyrir sig. Víðismenn
ljúka því miður leik í ellefta sæti og
leika því í 3. deild á næsta ári.
3. deild karla:
Reynismenn voru þegar búnir að
tryggja sér sæti í 2. deild og enda í
öðru sæti 3. deildar.
Sveindís Jane Jónsdóttir varð
Íslandsmeistari með kvennaliði
Breiðabliks en hún var, eins og
flestir vita, á láni frá Keflavík í
sumar.
Sveindís átti frábært tímabil
í sumar og lék m.a. sína fyrstu
A-landsleiki í byrjunarliði.
Á myndinni sést Sveindís Jane
fagna marki gegn Val sem var
helsti keppinautur Breiðabliks um
Íslandsmeistaratitilinn í sumar.
Mynd: Fótbolti.net
GOLFSAMBANDINU ÞÓTTI
REGLUR ÓSKÝRAR
Viðbragðshópur Golfsambands Íslands óskaði eftir nánari útskýr-
ingum á því hvort 6. mgr. 5. gr. reglugerðar um hertar aðgerðir í
sóttvörnum ætti við um golfiðkun. Óskaði viðbragðshópurinn eftir
skýrari skilgreiningu á orðalagi en að mati hópsins var ekki nægur
samhljómur á milli þess að segja annars vegar að íþróttir (þar með
talið æfingar og keppni) utandyra án snertingar væru óheimilar og
hins vegar leyfa „einstaklingsbundnar æfingar án snertingar, svo sem
útihlaup eða sambærilega hreyfingu“ sem sannarlega ætti við um golf.
Þórólfur Guðnason, sóttvarna-
læknir, og Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn almannavarnarsviðs
ríkislögreglustjóra, svöruðu erindi
GSÍ á laugardag og var skilgreining
þeirra afdráttarlaus. Þeir sögðu
golf falla undir það ákvæði að allar
æfingar og keppnir í íþróttum séu
nú óheimilar enda um skipulagt
íþróttastarf að ræða. Í samræmi
við þær útskýringar lokaði Golf-
klúbbur Suðurnesja vellinum um-
svifalaust fyrir allri golfiðkun.
Tveir lögregluþjónar örkuðu
hálfan Hólmsvöll og gerðu
kylfingum grein fyrir því
að öll íþróttastarfsemi
væri bönnuð. VF-mynd: Pket
Í sporti Víkurfrétta þessa vikuna er rætt við þjálfara karlaliðs Keflvíkinga
um þetta undarlegasta knattspyrnutímabil sögunnar.
MiðvikudaGur 4. nóveMber 2020 // 42. tbl. // 41. árG.sport