Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 12
Þeir Eysteinn Húni Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrðu í sameiningu karlaliði Keflavíkur
í Lengjudeildinni í ár og það er óhætt að segja að samstarf þeirra hafi skilað frábærum árangri því
Keflavík stóð uppi sem deildarmeistari og vakti athygli fyrir beittan og skemmtilegan sóknarleik í
sumar. Þótt þeir hafi stundum haft misjafnar skoðanir á hlutunum voru þeir á einu máli um að þeir
yrðu að vera sammála um þær ákvarðanir sem voru teknar. Víkurfréttir tóku tal af þeim félögum
eftir að ljóst var að Keflvíkingar munu leika í efstu deild karla að nýju á næsta ári.
„Þetta ár hefur verið einstakt og verður ábyggilega lengi talað um það í
sögunni sem skrýtið – og við þurftum að takast á við það,“ segir Eysteinn.
„Það tókst ekki verr en svo að við vorum efstir þegar mótinu var slaufað.“
Lögðu áherslu á
skemmtilegan sóknarbolta
„Við höfum heyrt það víða að fólk
hafi haft gaman að þeim bolta sem
við spiluðum. Við vildum spila djarft
og skoruðum mörg mörk, fengum í
staðinn kannski fleiri mörk á okkur
en hin toppliðin – en við vildum spila
fótbolta sem fólk vill koma að horfa
á, að það þurfi ekki að draga það á
völlinn.“
– Hvernig gekk undirbúningurinn
fyrir tímabilið?
„Hann gekk ofboðslega vel alveg
frá byrjun,“ svarar Sigurður Ragnar.
„Við unnum flesta okkar leiki í vetur
og spiluðum gegn nokkrum Pepsi
Max-deildarliðum. Það fór að fún-
kera mjög fljótt hvernig við vildum
spila. Reyndar vantaði okkur fram-
herja, við vorum meira og minna að
spila með kantmenn frammi í allan
vetur en samt vorum við að vinna
leiki, spila sóknarbolta og skora
mörk. Við vissum að ef við myndum
finna réttu framherjana til að styrkja
liðið þá yrði það bara ennþá sterkara
og það tókst. Útlendingarni þrír
pössuðu vel inn í það sem við vorum
að gera og við urðum öflugri eftir því
sem leið á undirbúnings- og keppnis-
tímabilið. Við vorum að spila okkar
besta fótbolta undir lokin.
Við höfðum góða breidd í hópnum
miðað við Lengjudeildarliðin, það
verður erfiðara í Pepsi Max-deild-
inni þar sem flest liðin eru með mjög
mikla breidd og við höfum kannski
úr minna fjármagni að moða þannig
að við verðum að standa okkur vel á
leikmannamarkaðnum. Vonandi vilja
einhverji ganga til liðs við okkur og
taka þátt í að byggja upp og búa til
gott lið.“
– Þið eruð ekkert að missa leik-
menn frá ykkur, er það?
„Það gætu kannski orðið einhverjar
breytingar,“ segir Siggi og Eysteinn
bætir við: „Þetta er allt á svolítið
gráu svæði fyrst eftir tímabil, ein-
hverjir að klára samninga og aðrir
eftir næsta. Þá er reynt að tryggja þá
til lengri tíma. Þetta er suðupottur
núna hjá öllum félögum.
Svo erum við með nokkra unga
og góða eins og Davíð Snæ sem
hafa öðlast mikilvæga reynslu eftir
að hafa fengið tækifæri 2018 þegar
margir lykilleikmenn duttu út. Fengu
mikla eldskírn þá og búa að því í dag.
Nú svo eru strákar að ganga upp úr
öðrum flokki sem hafa verið í æf-
ingahóp hjá okkur og það er stefnan
hjá okkur að ef strákar á þessum
aldri hafa rétt hugarfar og eitthvað
til brunns að bera þá fá þeir tækifæri,
í það minnsta til að æfa með liðinu.
Svo er þetta bara hörð samkeppni,
það fær enginn neitt gefins.“
„Við notuðum 27 leikmenn í
sumar sem er nokkur fjöldi,“ segir
Siggi. „Meðal þeirra voru nokkrir
strákar úr öðrum flokki sem fengu
tækifæri til að koma inn á í Lengju-
deildinni – sem er jákvætt. Svo má
ekki gleyma að við erum með mjög
ungt lið, undanfarin ár hafa ungir
leikmenn fengið tækifæri með
Keflavík og náð að vaxa og þroskast
eins og Eysteinn var að segja um
Davíði Snæ. Þetta er þriðja tímabilið
hans og hann er að spila nánast alla
leiki.“
Maður í manns stað
Eysteinn og Siggi segja á að álagið
hafi verið mikið á leikmenn í sumar,
þeir hafi verið að leika allt að sjö leiki
á fjórum vikum, og það hafi verið
gott að búa að góðum undirbúningi
til að halda mönnum í standi – og
þegar menn duttu út þá komu aðrir
inn sem náðu að valda hlutverkinu.
„Maggi, fyrirliðinn okkar og sá sem
var valinn besti leikmaður liðsins í
fyrra, meiðist í fyrsta leik sumarsins
og er meira og minna frá í allt sumar,“
bendir Siggi á. „Hann kom ekki inn
fyrr en í restina – en það kom maður
í manns stað og Anton Guðlaugs
stóð sig mjög vel í þeirri stöðu. Það
Þurftum
að vera
sammála
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
... ef einhver heldur
því fram að við höfum
sloppið auðveldlega,
af því að mótið var
flautað af, þá held ég
að við höfum frekar
verið stoppaðir af
í að ná sögulegu
markameti ...
Keflavík lék leiftrandi sóknarbolta í sumar og ástralinn Joey Gibbs reyndist
mikill happafengur. Hann varð markahæstur í deildinni og átti ekki langt í land
með að slá markamet sem hefur staðið síðan 1976. VF-myndir: Hilmar Bragi
12 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár