Víkurfréttir - 04.11.2020, Qupperneq 13
KEFLAVÍK HEFUR STOFNAÐ RAFÍÞRÓTTADEILD
Í síðustu viku var rafíþróttadeild formlega
stofnuð innan Keflavíkur, íþrótta- og ung-
mennafélags. Rafíþróttadeildin hefur starfað
undir merkjum knattspyrnudeildar um tíma
en með stofnun hennar eru nú níu deildir
starfræktar innan félagsins.
Stofnfundurinn var fámennur enda sam-
komutakmarkanir í gildi og var aðgengi að fund-
inum haldið í lágmarki. Einar Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri og formaður aðalstjórnar, stýrði
fundinum og íþróttastjóri félagsins, Hjördís
Baldursdóttir, var ritari.
Tillaga um fyrstu stjórn deilarinnar var ein-
róma samþykkt og hana skipa Arnar Már Hall-
dórsson, formaður, Ólafur Þór Berry, Elvar
Bjarki Friðriksson, Birna Ármey Þorsteinsdóttir,
Jónas Guðni Sævarsson, Davíð Stefánsson,
Sindri Kristinn Ólafsson og Nacho Heras Ang-
lada.
Einar bar nýstofnaðri deild góðar kveðjur að-
alstjórnar og með kveðjunni fylgdi styrkur upp á
500 þúsund, þá bauðst aðalstjórn að veita deild-
inni lán til að standa straum að tölvukaupum
til að hægt verði að koma starfi deildarinnar í
gang sem fyrst.
Rafíþróttir hafa verið að ryðja sér til rúms á
undanförnum árum og fjölmargir spila tölvu-
leiki sér til ánægju. Meðal verkefna rafíþrótta-
deildarinnar verður að stýra æfingum faglega
þannig að iðkendur fái leiðbeiningar aðila sem
þekkja vel til. Þá verður lögð áhersla á forvarnir,
börnum kennt að temja sér hóf við tölvunotkun
og foreldrar virkjaðir til þátttöku í tómstundum
barna sinna en þeir hafa oft litla hugmynd um
hvað tölvuleikir barnanna snúast um.
Rafíþróttadeildin mun vera með æfingaað-
stöðu í 88 húsinu þar sem búið er að útbúa sér-
hannað rými fyrir hana. Að hafa deildina inn í
félagsmiðstöð sveitarfélagsins hefur sína kosti
en sá aldurshópur sem sækir Fjörheima (88
húsið) er mjög virkur í rafíþróttum og tölvu-
leikjum. Því er heppilegt að hvetja þá sem eru
heima í tölvunni að mæta á skipulagðar æfingar,
hitta sína jafnaldra og eiga samskipti sín á milli.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
komu upp meiðsli hjá Frans og Kian,
alltaf stigu menn inn, Adam Pálsson
var seldur og Ari Steinn steig þá
upp á kantinum. Við vorum mjög
ánægðir með það að menn stigu inn
í hlutverkin sín þegar á þurfti.“
Eyddu miklum
undirbúnings tíma
í sóknarleikinn
Keflvíkingar byrjuðu á að leggja
áherslu á sóknarleikinn í undir-
búningi tímabilsins, að æfa hann
og móta. Þegar átti að fara að taka
varnarleikinn í gegn kom Covid í veg
fyrir það.
„Eins og sést kannski þá skoruðum
við 57 mörk í deildinni, þrjú mörk að
meðaltali í leik, en fengum kannski
aðeins of mörg mörk á okkur,“ segir
Siggi. „Við vorum nálægt því að slá
markametið í deildinni.“
„Ég hef nú sagt að ef einhver
heldur því fram að við höfum
sloppið auðveldlega, af því að mótið
var flautað af, þá held ég að við
höfum frekar verið stoppaðir af í að
ná sögulegu markameti,“ segir Ey-
steinn. „Ég hefði ekki verið hræddur
við að spila áfram en ég held að
þetta hafi verið rétt ákvörðun. Ég
held að það hafi verið sanngjarnara
að láta þessa tuttugu leiki telja
heldur en að fara að spila eitthvað
allt annað mót, með allt öðrum leik-
mönnum hjá meirihluta liðanna.
Það hefði skekkt þetta allt of mikið
að mínu mati.“
„Nú tökum við alla vega einn
mánuði í frí,“ segir Siggi. „Þetta er
búið að vera ofboðslega langt og
strangt tímabil. Hefur reynt mikið
á hugarfar leikmanna og þolin-
mæði, erlendu leikmennirnir eru
búnir að vera lengi í burtu frá fjöl-
skyldum sínum og kærustum.
Við búum við lengsta undirbún-
ingstímabil í heimi hér á Íslandi,
það verður alveg nógu langt á
næsta tímabili líka. Við gerum
ráð fyrir að vera með flesta leik-
mennina okkar áfram svo liðið
á að vera ágætlega mótað og ég
held að þeir verði vel undirbúnir
fyrir næsta ár.“
Ekki missa af Suðurnesja-
magasíni vikunnar þar sem
þeir Eysteinn og Sigurður
Ragnar gera upp knattspyrnu-
tímabilið og ræða fótboltann
á þessum undarlegu tímum
kórónu veirunnar.
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Anton Guðlaugsson leysti
varnarhlutverk sitt vel í
fjarveru fyrirliðans.
Fyrsta stjórn rafíþróttadeildar Keflavíkur. Davíð Stefánsson,
Birna Ármey Þorsteinsdóttir, Elvar Bjarki Friðriksson, Jónas Guðni
Sævarsson, Sindri Kristinn Ólafsson og Arnar Már Halldórsson.
Á myndina vantar þá Ólaf Þór Berry og Nacho Heras Anglada.
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár // 13
Ari Steinn Guðmundsson átti góða
innkomu í lið Keflavíkur í sumar.