Víkurfréttir - 04.11.2020, Page 14
Spenntir fyrir því að taka þátt í þriðju deildinni í vetur:
Þróttarar stofna meistaraflokk í körfubolta
Setja markið hátt og ætla að kynna körfubolta fyrir ungmennum í Vogum
Birkir Alfons Rúnarsson er formaður meistaraflokks Þróttar og í forsvari fyrir liðið.
Víkurfréttir spjölluðu við Birki í byrjun vikunnar til að heyra hvernig körfuboltinn í
Vogum færi af stað.
Þróttur sendir lið
til leiks í vetur
„Við höfum allir æft körfubolta upp
yngri flokka í Njarðvík eða Keflavík
og erum góðir félagar, nokkrir okkar
eru með sterka tengingu við Voga.
Það kom fyrir að við leigðum salinn
í Vogum og áður en við vissum
var Marteinn, framkvæmdastjóri
Þróttar, mættur á svæðið til að selja
okkur þessa hugmynd og tengja við
krakkana í Vogum á sama tíma,“ segir
Birkir aðspurður hvernig það hafi
komið til að Þróttur sendi körfubol-
talið til leiks í vetur.
– Hve eru margir að æfa hjá ykkur
og hver þjálfar liðið?
„Þetta eru í kringum fimmtán strákar
og ég sé um alla umgjörðina en
Arnór Ingi Ingvason þjálfar liðið. Svo
erum við að fá gestaþjálfara af og til,“
segir Birkir. „Frikki Rúnars mætti á
svæðið og við erum að reikna með
Hemma Hreiðars í heimsókn á næstu
dögum. Við erum alla vega búnir að
bjóða honum að koma þar sem við
erum í sama liði og hann.“
Sýna því skilning að
geta ekki æft
„Við hófum æfingar í júlí og það
hefur verið góður stígandi í þessu.
Við erum reyndar eini meistara-
flokkurinn á Suðurnesjum sem hefur
ekki æft frá því í byrjun október
vegna harðari sóttvarnarreglna í
Vogum en annars staðar. Það er
auðvitað fúlt að geta ekki æft eins og
hinir en við verðum að sýna þessari
stöðu skilning. Það hefur verið
frábær stemmning í hópnum og við
höfum spilað tvo æfingaleiki í haust,
báða gegn liðum í 2. deild, Reyni
Sandgerði og Leikni Reykjavík. Við
lærðum mikið af þessum leikjum og
þeir sýndu okkur að við getum vel
staðið í liðum sem eru í deild fyrir
ofan okkur svo það jók bara sjálfs-
traust og spenning fyrir að hefja
keppni.“
– Hver eru markmiðin í vetur?
„Við ætlum að hafa hrikalega gaman
af þessu í vetur og skemmta stuðn-
ingsmönnum. Eitt af þeim loforðum
sem við gáfum er að halda barna-
og unglinganámskeið í vetur fyrir
unga Þróttara, það verður efnt og
við ætlum að kynnast krökkunum
í bænum. Við ætlum að fylla Voga-
ídýfuhöllina og vera skemmtilegasta
félagið í deildinni – Vogamenn kunna
þetta, sjáið bara fótboltaliðið og
gleðina þar. Við vitum ekki mikið um
hin liðin en engu að síður er stefnan
sett á úrslitakeppni þriðju deildar í
vor.“
– Hvernig hafa bæjarbúar tekið
ykkur?
„Það er auðvitað nýtt fyrir þeim að
það sé körfuboltalið í Vogum og það
þarf að bera virðingu fyrir því. Við
erum mest í samskiptum við starfs-
fólk íþróttamiðstöðvarinnar. Starfs-
fólkið er fáránlega næs og vilja allt
fyrir okkur gera þannig að okkur líði
sem best. Auðvitað kemur ýmislegt
óvænt upp á þegar verið er að byrja
með nýja hluti. Þegar við vorum að
læra á stigatöfluna á dögunum þá
kom í ljós að taflan er biluð og engin
skotklukka í húsinu – en það er verið
að laga þessa hluti þannig að hægt
verði að spila heimaleikina í Vogum
þegar mótið hefst aftur eftir hlé.“
– Eitthvað í lokin?
Það væri ekki hægt að koma svona
verkefni á laggirnar án stuðnings
þeirra fyrirtækja sem standa okkur
að baki, Bílasprautun Magga Jóns,
Nýsprautun og Jako hafa styrkt
okkur og við kunnum þeim bestu
þakkir fyrir það. Svo skorum við á
alla Vogabúa til að fjölmenna á leiki
liðsins þegar ástandið skánar, heima-
leikir okkar fara fram á laugardögum
miðað við núverandi mótaskrá.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Birkir með þeim Arnóri Inga Ingvasyni, þjálfara, og Róberti Smára
Jónssyni sem leika báðir með Þrótti í þriðju deildinni í vetur.
Birkir Alfons Rúnarsson er í forsvari fyrir
meistaraflokk Þróttar í körfubolta.
Við ætlum að fylla
Vogaídýfuhöllina og
vera skemmtilegasta
félagið í deildinni –
Vogamenn kunna
þetta, sjáið bara
fótboltaliðið og
gleðina þar ...
KYNNING TILLÖGU AÐ BREYTINGU Á AÐ-
ALSKIPULAGI SVEITARFÉLAGSINS VOGA
2008–2028 VEGNA ÍBÚÐARSVÆÐIS ÍB-3-1
OG TILLAGA AÐ BREYTINGU Á DEILISKIPU-
LAGI GRÆNUBORGAR
Sveitarfélagið Vogar kynnir hér með, skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr.
123/2010, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008–
2028 og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grænuborgar skv. 3. mgr. 40. gr.
sömu laga. Breytingarnar varða þéttleika og fjölda íbúða á skipulagssvæðinu
og kafla 2.1.1 um íbúðasvæði í greinargerð aðalskipulags. Sú breyting er gerð
að mögulegum íbúðum á svæðinu fjölgar um 400 og verður hverfið full-
byggt eftir breytingu með um 850–900 íbúðum, eða um 35–37 íbúðir á hvern
hektara. Breytingin er tilkomin vegna samkomulags landeigenda meginhluta
svæðisins og sveitarfélagsins um uppbyggingu svæðisins með íbúðafjölda í
samræmi við tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Fyrir utan breytingar þessar
gildir greinargerð Aðalskipulags Sveitarfélagsins Voga 2008–2028, sem sam-
þykkt var 23. febrúar 2010, m.s.br. Samhliða gerð breytingar á aðalskipulagi er
gerð breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðisins Grænuborgar (sem nær yfir um
helming íbúðarsvæðis ÍB-3-1) sem fellst m.a. í því að auka þéttleika byggðar á
svæðinu og fjölga mögulegum íbúðum.
Tillögurnar eru til kynningar frá og með 2. nóvember 2020 til og með 16. nóvember 2020
og eru aðgengilegar á vef Sveitarfélagsins Voga, þar sem má kynna sér þær á slóðinni: www.
vogar.is/is/thjonusta/skipulag/skipulag-i-kynningu
Tillögurnar verða einnig kynntar og til umræðu á almennum veffundi fimmtudaginn 5. nóv-
ember nk. kl. 17–18. Hlekkur á fundinn mun birtast á vef sveitarfélagsins www.vogar.is
Ábendingum vegna tillagnanna má senda skriflega til Sveitarfélagsins Voga með bréfi eða
tölvupósti á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en 16. nóvember 2020.
Að lokinni kynningunni verða endanlegar tillögur teknar til umfjöllunar hjá skipulagsnefnd
og að henni lokinni lagðar fyrir bæjarstjórn til samþykktar til formlegrar auglýsingu þeirra,
skv. 31. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar at-
hugasemdir við tillögurnar innan tilskilins athugasemdafrests.
Vogum, 2. nóvember 2020
Skipulags- og byggingarfulltrúi
14 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár