Víkurfréttir - 04.11.2020, Qupperneq 16
Þrátt fyrir farsóttina og strangar sótt-
varnir á öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli hefur tekist að framkvæma
öll helstu öryggis- og varnartengd
verkefni sem voru á áætlun í ár, þ.m.t.
loftrýmisgæsluverkefnin og hluta
af skipulögðum æfingum. Varnar-
æfingunni Norður-Víkingi, sem átti að
vera í maí síðastliðnum, var hins vegar
frestað til síðari tíma.
Haustið hefur verið óvenju anna-
samt þar sem saman hafa farið mörg
verkefni sem tekið hafa lengri mun
tíma en venjulega vegna sóttvarna.
Starfsfólk Landhelgisgæslu Íslands
á öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli og verktakar sem sjá um
öryggisgæslu (Securitas), þrif (HR-
þrif) og rekstur mötuneytis (Soho)
hafa staðið vaktina dag og nótt en til
viðbótar hefðbundnum verkefnum,
eins og svæðis- og öryggisgæslu,
loftrýmiseftirliti, gistiríkjastuðn-
ingi, viðhaldi mannvirkja og kerfa,
hefur teymi starfsmanna séð um að
sóttvarnareglum sé framfylgt og á
hópurinn samráð við heilbrigðisyfir-
völd, lögreglu og landamæraeftirlit
oft á dag alla daga vikunnar. Til að
mæta tímabundnu álagi hefur þjón-
ustuverktökum, verið fjölgað tíma-
bundið.
Í haust hafa verið við vinnu á ör-
yggissvæðinu liðsmenn bandaríska
sjóhersins við rekstur á stjórnstöð
fyrir kafbátaeftirlit og við eftirlit og
æfingar á hafinu sem er framkvæmt
með nýju P-8A kafbátaeftirlitsflug-
vélunum. Hafa verið tólf kafbátaleit-
arflugvélar á Keflavíkurflugvelli frá
bandaríska sjóhernum, auk tveggja
frá kanadíska flughernum.
Loftrýmisgæsla Atlantshafs-
bandalagsins var framkvæmd af
bandaríska flughernum í Bretlandi
í október og lauk gæslunni síðasta
föstudag. Orrustuþoturnar eru
farnar aftur til Bretlands en liðs-
mennirnir eru þó flestir enn á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli
og á hótelum í Reykjanesbæ.
„Bandaríkjamenn voru hérna um
260 talsins frá flughernum. Því til
viðbótar hafa verið hér 500 aðrir
erlendir liðsmenn frá bandaríska sjó-
hernum við kafbátaeftirlit og áhafna-
skipti sem hafa tekið óvenju langan
tíma út af sóttvörnum,“ segir Jón B.
Guðnason, framkvæmdastjóri Land-
helgisgæslunnar í Keflavík, í samtali
við Víkurfréttir.
Fjórtán orrustuþotur
– Suðurnesjamenn og aðrir hafa
orðið varir við þotugný. Hafa verið
óvenju margar vélar hér undan-
farið?
„Já, undanfarin ár hafa verið hér frá
fjórum og upp í fjórtán orrustuþotur
við loftrýmisgæsluna hverju sinni.
Þær voru fjórtán núna og þessi stífa
austanátt sem verið hefur undan-
farna daga hefur verið þess valdandi
að íbúar Reykjanesbæjar hafa orðið
meira varir við vélarnar en venjulega
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Framkvæmdir hafa verið í gangi við flugskýli 831 en það er verið
að breyta því fyrir nýju kafbátaleitarflugvélarnar.
ERILSAMT HAUST
MILLJARÐA FRAMKVÆMDIR
Á ÖRYGGISSVÆÐINU
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
SMELLTU Á MYNDSKEIÐIÐ TIL AÐ HORFA OG HLUSTA
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
Jón Björgvin Guðnason, framkvæmdastjóri
Landhelgisgæslunnar í Keflavík.
Viðtal við Jón er í Suðurnesjamagasíni
vikunnar á Hringbraut og vf.is .
16 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár