Víkurfréttir - 04.11.2020, Side 17
en vonandi ekki of mikið. Hjá okkur
hafa einnig verið tveir fulltrúar eist-
neska flughersins sem hafa unnið
með sérfræðingum Landhelgisgæsl-
unnar í stjórnstöð Atlantshafsbanda-
lagsins á öryggissvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli. Þá hefur kanadíski
flugherinn einnig verið hér á landi
með tvær kafbátaeftirlitsflugvélar
og rúmlega 60 liðsmenn við kaf-
bátaeftirlit og æfingar. Danski flug-
herinn var að fara frá okkur en hann
hefur einnig verið hér frá lokum
september með allt að tuttugu liðs-
menn við viðhaldsskoðun á þyrlu
flughersins sem venjulega er stað-
sett um borð í herskipum danska
sjóhersins við Grænland. Viðhalds-
verkefninu er lokið, tókst það mjög
vel og hafa aðilar væntingar um að
viðhald og viðhaldsskoðanir verði
framkvæmdar á Keflavíkurflugvelli
í framtíðinni. Þyrlunni var flogið um
borð í herskip danska sjóhersins sem
nú er við Grænland.“
– Hvernig hafa þessi verkefni
gengið?
„Öll þessi verkefni hafa gengið vel.
Undanfarnar vikur höfum við verið
með upp undir 500 manns á hót-
elum, að mestu hér í Reykjanesbæ.
Einnig einhver hundruð bílaleigubíla
og önnur þjónusta og bæjarbúar hafa
alveg örugglega orðið varir við það.“
– Getum við sagt að þetta skipti
máli fyrir efnahagslífið á Suður-
nesjum og víðar?
„Ég ætla rétt að vona það. Í venju-
legu árferði er yfirleitt erfitt fyrir
okkar gesti að fá hótelgistingu hér
á svæðinu. Það var ekki eins erfitt í
ár. Við vonum að þetta hafi hjálpað
til og muni halda áfram. Það eru að
jafnaði 50–100 manns á hótelum hér
á svæðinu alla daga ársins.“
– Hvað er framundan í loftrýmis-
gæslu?
„Norðmenn koma hingað aftur og
verða hér í febrúar og mars. Banda-
ríkjamenn verða hér væntanlega
aftur í ágúst á næsta ári og svo
verður pólski flugherinn hér næsta
haust.“
Yfir 700 erlendir gestir og flestir
á hótelum í Reykjanesbæ
Þegar mest var á svæðinu fór fjöldi
erlends liðsafla og sérfræðinga yfir
700 en aðeins er hægt að hýsa 200
innan öryggissvæðisins. Það var því
óvenju fjölmennt, einnig á hótelum
í Reykjanesbæ, auk þess sem bíla-
leigur og veitingastaðir hafa notið
góðs af. Eins og við var að búast
mun draga úr fjölda erlends liðsafla
á næstu dögum og vikum en eins og
áður þá er og verður við vinnu á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli
alltaf einhver fjöldi erlends liðsafla
og annarra verktaka og sérfræðinga
og dvelur hluti þeirra á hótelum utan
öryggissvæðisins.
Umfangsmiklar
framkvæmdir
Á öryggissvæðinu á Keflavíkur-
flugvelli standa yfir umfangsmiklar
framkvæmdir á vegum Íslands, Atl-
antshafsbandalagsins og Bandaríkj-
anna. Helstu verkefni eru; viðhald og
breytingar á flugskýli 831, bygging
þvottastöðvar fyrir flugvélar, við-
hald og endurbætur á flughlöðum,
akstursbrautum flugvéla og tengdum
ljósakerfum. Nú síðast var gerður
samningur við ÍAV um stækkun og
bygging flughlaðs og undirstöðu fyrir
gámabyggð. Til viðbótar er fjöldi
annarra mannfrekra venjubundinna
verkefna til framkvæmdar.
Umfangsmiklum endurbótum á
ratsjárkerfum Atlantshafsbanda-
lagsins hér á landi er nýlokið en
verkefnið var framkvæmt af sér-
fræðingum Landhelgisgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli, Lockheed Martin
í Bandaríkjunum og Innkaupa-
stofnun Atlantshafsbandalagsins í
Lúxemborg.
„Það hafa verið framkvæmdir í
gangi við flugskýli 831 en það er
verið að breyta því fyrir nýju kaf-
bátaleitarflugvélarnar. Það er verið
að byggja þvottastöð fyrir flugvélar
á Háaleitishlaðinu. Það er verið að
vinna í og stækka flugvélastæði á
vestursvæðinu og gera breytingar
svo flugvélastæði uppfylli umhverfis-
kröfur ef upp kemur olíumengun og
fleira. Þá er verið að vinna í ýmsum
hliðartengdum verkefnum. Þetta
eru framkvæmdir fyrir á annan tug
milljarða króna og skapa vonandi
góða vinnu núna á þeim tíma sem
þörfin er mest. Sumum þessara
framvæmda er að ljúka en aðrar eru
að byrja og munu halda áfram næstu
árin.
Svo eru í umræðu milli stjórnvalda
aðrar framkvæmdir sem eru jafnvel
stærri. Það er áframhald á við-
haldi bygginga sem eru hér og ýmis
varnar- og öryggistengd verkefni.“
– Það er í umræðunni að flytja
skipaflota Landhelgisgæslunnar
til Njarðvíkur. Hvernig er það að
leggjast í mannskapinn?
„Bara vel. Við bíðum spennt eftir
því,“ segir Jón Guðnason, fram-
kvæmdastjóri Landhelgisgæslunnar
í Keflavík, í samtali við Víkurfréttir.
GANGA SKREFINU LENGRA MEÐ SÓTTVARNIR HJÁ
LANDHELGISGÆSLUNNI Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Marvin Ingólfsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri varnarmála-
sviðs, hefur yfirumsjón með sótt-
vörnum hjá Landhelgisgæslunni á
Keflavíkurflugvelli og mikið hefur
mætt á honum og hans mannskap
síðustu vikur og mánuði. Mikil
áhersla er á sótt- og smitvarnir
í tengslum við komur erlendra
gesta sem m.a. hafa annast loft-
rýmisgæslu frá Keflavíkurflug-
velli og skipað sveitir sem annast
kafbátaleit og aðra varnartengda
starfsemi.
„Við erum með mikinn mann-
skap sem er að koma úr ýmsum
áttum og þar að auki er þetta
fólk ekki að koma á sama tíma.
Þá eru mismunandi kröfur gerðar
innandyra hjá þessum gestum
okkar og því er óhætt að segja að
flækjustigið hafi verið og er hátt í
kringum þetta og því erum við hjá
Landhelgisgæslunni með fjögurra
til fimm manna teymi sem heldur
utanum þessi mál núna.“
– Hvernig er þetta gert?
„Við þurfum að uppfylla þær
kröfur sem eru gerðar hverju sinni.
Við höfum gengið skrefinu lengra
og verið með strangar kröfur á þá
erlendu liðsmenn sem hingað hafa
komið. Við förum fram á að allir
séu skimaðir tvisvar og þeir fari í
tveggja vikna B-sóttkví, sem er al-
gjört lágmark. Enginn fær að hefja
störf fyrr en hann hefur fengið
niðurstöðu úr fyrri skimun. Svo
eru þær reglur sem þeir setja fyrir
sína liðsmenn einnig strangari.
Það eru margir og flestir sem hafa
lokið tveggja vikna sóttkví er-
lendis og eru skimaðir 48 tímum
fyrir brottför áður en þeir koma
hingað og því óhætt að segja að við
séum bæði með belti og axlabönd
í þessum málum. Svo er hluti af
þeim mannskap sem hingað kemur
settur í tveggja vikna A-sóttkví
og eru því í algjörri sóttkví yfir
allt tímabilið og fara þar að auki í
skimun bæði fyrir og eftir sóttkví.“
Marvin segir að mikil vinna
felist í að halda utan um allan
þennan mannskap, hvar hann
sé staðsettur hverju sinni, og
þá þurfi að taka við heilsufars-
skýrslum daglega. Ef einhverjir fá
einkenni, sem hefur gerst en voru
bara flensueinkenni, þá þarf að sjá
til þess að brugðist sé við og við-
komandi skimaður, þannig að það
er töluverð vinna að halda utan
um þetta allt saman.
„Samstarf við yfirvöld hefur
verið til mikillar fyrirmyndar og
ekki hægt að segja annað en það
hafi gengið mjög vel og verið gott.
Sérstaklega hérna þegar kemur að
lögreglu, Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja og þeim sem sjá um skimun.
Samstarfið er til mikillar fyrir-
myndar og þau eiga mikið og gott
hrós skilið frá okkur. Þar að auki
má það koma fram að margir af
okkar liðsmönnum eru á hótelum
hér á svæðinu og samstarfið við
þá sem reka og eiga hótelin hefur
verið mjög gott. Það eru kröfur
settar á hótel sem eru að hýsa
fólk í sóttkví og við höfum verið
í góðu samstafi við hótelin þannig
að allt sé eftir bókinni. Liðsmenn
á okkar vegum hafa líka hrósað
hótelunum og sagt að komið sé
til móts við þá að öllu leyti. Þessir
hótelgestir okkar eru þar kannski
í tvær vikur og geta ekki farið út
af hótelunum og í verslanir til að
sækja nauðsynlega hluti og þar
hafa hóteleigendur komið sterkir
inn og heldur betur staðið sig á
vaktinni. Þetta hefur gengið mjög
vel til þessa og vonandi verður það
bara áfram. Þetta er búið að vera
lærdómsríkt en hefur gengið mjög
vel,“ segir Marvin Ingólfsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri varnar-
málasviðs, sem stýrir sóttvarna-
málum hjá Landhelgisgæslunni á
Keflavíkurflugvelli.
Marvin Ingólfsson hefur
yfirumsjón með sóttvörnum.
Fjórtán kafbátaleitarvélum voru á Keflavíkurflugvelli og hluti þeirra verður áfram.
Herþoturnar eru geymdar í þrettán sérhönnuðum
flugskýlum sem voru byggð á tímum kalda stríðsins.
Þotuskýlin eru þrettán talsins en það þrettánda er
númer 14. Bandaríkjamenn nota ekki númer 13.
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár // 17