Víkurfréttir - 04.11.2020, Blaðsíða 21
Hrekkjavaka og ungmennahús í Grindavík
– fjölbreytt félagsstarf í Grunnskóla Grindavíkur
Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur tóku Hrekkjavöku með stæl og settu
upp draugahús í Kvikunni. Nemendaráð vann undirbúningsvinnu og síðan
var fleiri bekkjardeildum boðið, bæði á ball og í draugahúsið. „Þetta er
toppurinn á árinu og gaman að halda þetta núna í Kvikunni, innan um
fljúgandi máva og gamla saltfiska,“ sögðu þau Tómas Breki Bjarnason og
Emilía Ósk Jóhannesdóttir í nemendaráði Grunnskóla Grindavíkur en þau
sýndu Víkurfréttamönnum draugahúsið. Suðurnesjamagasín spjallaði við
þau og myndaði draugahúsið. Þau Tómas og Emilía sögðu félagsstarfið í
skólanum vera mjög gott og það hafi gengið mjög vel á veirutímum.
Opnun ungmennahúss
Grindavíkurbæjar
Það hefur verið ákveðið að fara af
stað með opnun ungmennahúss í
Grindavíkurbæ sem verður fyrir
ungt fólk frá 16 aldri til 25 ára. Ung-
mennahúsið mun bera gamla heitið
„Laufin og spaðarnir“ sem fyrrum
Ungmennahús Grindavíkur bar áður.
Gamla Ungmennahúsið var stofnað í
desember 1997 af Hrafnhildi Björg-
vinsdóttur, en sonur hennar Hafliði
Ottósson féll frá fyrir eigin hendi í
desember árið 1996, þá aðeins 18 ára
gamall. Ungmennahúsið var opnað í
anda þess að búa til félagslegan vett-
vang án vímuefna fyrir ungt fólk eða
„gleymda hópinn“.
Elínborg Ingvarsdóttir forstöðu-
maður Þrumunnar og starfsmenn
hennar halda utan um starfsemina.
Þar mun standa ungmennum til
boða fjölbreytt starf í vímulausu og
öruggu umhverfi. Starfsemin mun
til að byrja með fara fram á fimmtu-
dagskvöldum frá klukkan 20:00
til 22:00 og mun nýta aðstöðu fé-
lagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar.
„Markmiðið er að bjóða ungu fólki
upp á jákvætt félagslegt umhverfi
ásamt því að sporna gegn félagslegri
einangrun og andlegum vanlíðan
ungmenna. Til dæmis verður boðið
upp á ýmis konar ráðgjöf eins og að-
stoð við atvinnuleit og úrvinnslu á
ferilskrá, tómstundaráðgjöf, félaga-
stuðning, aðstoð vegna vanlíðan úr
af félagslegri einangrun, sjálfsvígs-
hugleiðinga, einmanaleika eða ein-
hvers konar vanda og að leiðbeina
þeim á réttu staðina, vera til staðar
og hlusta. Starfsfólk Ungmenna-
hússins mun einnig aðstoða ungt
fólk í Grindavíkurbæ við að koma
góðum hugmyndum í framkvæmd
og veita aðstöðu fyrir starfsemina.
Til að mynda er möguleiki á því að
opna starfsemi fyrir ýmsa hópa og
klúbba og verður starfsemin með
tímanum mótuð af ungmenna-
hópnum sjálfum,“ segir Elínborg.
Hægt er að fylgast með starf-
seminni á instagram undir nafninu
„Ungmennahús Grindavíkurbæjar“.
Menningarhús
lokuð og Súlan
afhent rafrænt
Öll söfn og menningarhús
í Reykjanesbæ eru lokuð á
meðan hertar sóttvarnarað-
gerðir eru í gildi, eða til og
með 17. nóvember.
Til skoðunar er að setja upp
rafræna viðburðadagskrá og þá
verða menningarverðlaunin
Súlan afhent með rafrænum
hætti næsta fimmtudag.
Reykjanesbær
styrkir Samtökin ‘78
Bæjarráð Reykjanesbæjar
hefur samþykkt að styrkja
Samtökin ‘78 um 200.000
krónur fyrir starfsárið 2021.
Samtökin ‘78 bjóða upp á
víðtæka þjónustu þegar kemur
að fræðslu, ráðgjöf og rekstri
félagsmiðstöðva fyrir ung-
menni. Aukin aðsókn hefur
verið í þjónustu samtakanna
síðustu ár og stór hluti þeirrar
aukningar eru börn og ung-
menni.
Heimsóknir ekki
leyfðar á D-deild
HSS og í Víðihlíð
Um óákveðinn tíma eru heim-
sóknir á sjúkradeild Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja
(D-deild HSS) og Víðihlíð í
Grindavík ekki leyfðar sökum
fjölgunar Covid-smita í sam-
félaginu, meðal annars hjá
viðkvæmari hópum.
Aðstandendur sjúklinga/
íbúa eru hvattir til að nýta
sér rafrænar lausnir til að eiga
samskipti við sína nánustu og
hafa samband við starfsfólk
deildanna ef með þarf. Tækja-
búnaður er til staðar á HSS
fyrir þá sem þess þurfa, eftir
höfðinglegar gjafir til stofnun-
arinnar síðasta vor.
Þorgrímur Hálfdánarson er mikill jólastrákur og lætur sig ekki muna um
að koma upp jólaþorpi í stofunni heima hjá sér að Hólabraut 2 í Keflavík.
Hann viðurkennir að honum finnist skemmtilegt að taka jólin snemma og
segist vera að undirbúa sig leynt og ljóst allt árið.
„Jú, þetta tekur svolítinn tíma og
kostar líka peninga en er sannarlega
þess virði,“ segir Toggi og Auður
Helga Benediktsdóttir, eiginkona
hans tekur undir það. „Jú, jú, ég
neita því ekki að þetta er sameigin-
legt áhugamál hjá okkur. Svo hafa
börnin okkar svo gaman að þessu,“
segir hún.
Þau hafa safnað jólamunum á
síðustu árum en megnið er keypt
í Byko eða í jólabúðinni á Selfossi.
Einn af nýjustu hlutunum í jóla-
þorpinu er skíðalyfta en þegar Toggi
var spurður hvort hann væri skíða-
maður þá hló hann og sagði það af og
frá. Hefði farið eina ferð þegar hann
var unglingur.
Í Jólaþorpinu má sjá fallega vita
sem lýsa upp þorpið. Coca Cola
fær sitt auglýsingapláss í þorpinu
og en myndarleg járnbrautarlest
er merkt þessum þekkta drykk en
okkar maður hefði frekar viljað hafa
Pepsi á lestinni en fékk lítið við það
ráðið. „Ætli ég haldi ekki mest upp á
vitann með rauða ljósinu. Hann er
ansi flottur þarna,“ sagði Toggi.
Jólaþorpið stendur á borðum og
fleiri stoðum við stofugluggann
en þetta er í fyrsta skipti sem þau
hjónin setja upp þorp í heilu lagi,
áður var því skipt niður á tvo staði
í íbúðinni. En má ekki eiga von á
því að fólk fari að kíkja á gluggann
og kannski börnum í heimsókn?
„Barnabörnin eru alla vega búin að
koma og eiga eftir að koma aftur
og aftur,“ sögðu þau Þorgrímur og
Auður Helga sem sögðust ekki taka
jólaþorpið niður fyrr en eftir þret-
tándann.
Jólaþorpið í Keflavík
er komið upp
Toggi og Auður
Helga við jólaþorpið.
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár // 21