Víkurfréttir - 04.11.2020, Qupperneq 22
Pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ er nú haldin í þriðja sinn. Um fimmt-
ungur allra íbúa Reykjanesbæjar er af pólskum uppruna og þykir því vel
við hæfi að fagna þeim fjölbreytileika sem felst í mannlífi Reykjanesbæjar
með því að fá innsýn í pólska menningu með skemmtilegum hætti.
Pólsk menningarhátíð er viðburður
sem gleður augu, eyru og maga.
Ávallt hefur verið lögð rík áhersla á
sjónlist, tónlist og matarupplifun. Sú
áhersla heldur sér þó hátíðin sé með
breyttu sniði í ár, eins og annað. Hún
teygir sig yfir heila viku og verða
allir viðburðir
hátíðarinnar að-
gengilegir á sam-
félagsmiðlum
sveitarfélagsins
og vefsíðu við-
burðarins.
Saman í krafti
fjölbreytileikans
er yfirskrift há-
tíðarinnar í ár
enda s jaldan
mikilvægara að
standa saman.
Í b ú a r e r u
hvattir til þess
að ganga um sveitarfélagið og njóta
útiverunnar um leið og þeir skoða
listsýningar sem verða í verslunar-
gluggum á Hafnargötunni og sér-
stakt veggjalistaverk verður sett á
vegginn aftan við gömlu sundhöllina.
Á föstudagskvöldið verður hægt
er að skella sér í bílabíó og njóta
pólskrar kvikmyndamenningar. Við
fáum öll tækifæri til þess að læra að
elda framandi mat og þá verður sér-
stök barnadagskrá á Facebook-síðu
Bókasafnsins.
Reykjanesbær hvetur alla til þess
að leggja sig fram um að láta sig aðra
varða og gefa meðborgurum sínum
tækifæri til þess að vera hluti af sam-
félagsheildinni okkar. Sýnum hlýlegt
viðmót og alúð,
ræktum jákvæð
tengsl við þá
s e m s t a n d a
okkur nærri og
stuðlum þannig
að hamingju
okkar og vel-
líðan sem og
annarra.
Pólsk menn-
ingarhátíð veitir
fullkomið tæki-
færi til þess að
draga andann
djúpt, slaka á og
njóta útveru. Gleðja augu, eyru og
maga og njóta sín með öllum skiln-
ingarvitunum!
Verum saman, verum samstíga,
einblínum á það sem við eigum öll
sameiginlegt og stuðlum að vellíðan
og gleði.
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir,
verkefnastjóri fjölmenningarmála
Razem, bo w różnorodności siła
Festiwal Kultury Polskiej w Reykjanesbær 2020
Festiwal Kultury Polskiej w Reykjanesbær odbywa się już po raz trzeci. Około jedna piąta wszystkich
mieszkańców Reykjanesbær jest pochodzenia polskiego, dlatego też chcemy uczcić różnorodność, która
towarzyszy życiu w Reykjanesbær.
Festiwal Kultury Polskiej to wydarzenie, które za-
chwyca oczy, uszy i żołądek. Zawsze duży nacisk kła-
dziono na sztukę, muzykę i doznania kulinarne. Nacisk
pozostaje ten sam, chociaż festiwal wygląda zupełnie
inaczej niż poprzednio. Trwa przez cały tydzień, a
wszystkie wydarzenia festiwalowe będą dostępne w
mediach społecznościowych oraz na stronie interne-
towej wydarzenia.
Tegoroczny festiwal „Razem, bo w różnorodności
siła”, bo teraz bardziej niż zawsze - trzeba być razem.
Mieszkańców zachęca się do chodzenia po gminie i
spędzania czasu na świeżym powietrzu, oglądając pla-
katy, które będą się odbywać w witrynach sklepowych
na Hafnargata, a na ścianie za starą halą pływacką
zostanie umieszczony mural.
W piątek wieczorem będzie można wybrać się do
kina samochodowego i poznać polską sztukę filmową.
Wszyscy mamy okazję nauczyć się gotować polskie
potrawy, proponujemy specjalny program dla dzieci,
który ukaże się na stronie Biblioteki na Facebooku.
Reykjanesbær zachęca wszystkich, aby troszczyli
się o dobro innych i czuli się częścią naszej społecz-
ności jako całości, biorąc pod uwagę obecną sytuację.
Okazujmy sobie nawzajem ciepło i wyrozumiałość,
pielęgnujmy pozytywne relacje z bliskimi nam oso-
bami, a tym samym promujmy zadowolenie i dobre
samopoczucie.
Festiwal Kultury Polskiej to doskonała okazja, aby
odetchnąć, zrelaksować się i cieszyć się świeżym po-
wietrzem. Rozkoszuj się i ciesz się wszystkimi zmy-
słami!
Bądźmy razem, bądźmy zjednoczeni, skupmy się na
tym, co nas wszystkich łączy i promujmy pomyślność
i radość.
Saman í krafti
fjölbreytileikans
P Ó LS K
M E N N I N G A R H ÁT Í Ð
Í R E Y K JA N E S BÆ
2020
Fjölbreytt dagskrá á
pólskri menningarviku
„Viljum tengja þjóðirnar betur saman,“ segja þær
Monika og Marta, pólskir verkefnastjórar hátíðarinnar.
„Við erum að fylgja eftir pólskum
menningarhátíðum í Reykjanesbæ
undanfarin tvö ár en auðvitað
hefur Covid-19 mikil áhrif á það
hvernig við stillum henni upp. Við
erum búnar að gera margar útgáfu
því reglurnar vegna veirunnar hafa
stöðugt verið að breytast síðustu
vikurnar. En við höldum að þetta
verði nú samt skemmtilegt og fróð-
legt,“ segja Pólverjarnir Monika
Dorota Kruś og Marta Magdalena
Niebieszczanska en þær eru verk-
efnastjórar þriðju pólsku hátíðar-
innar sem nú fer fram dagana 1.-8.
nóvember í Reykjanesbæ.
Þær Monika og Marta segja verk-
efnið hafa verið mjög skemmtilegt
þrátt fyrir margar áskoranir vegna
veirunnar. Búið sé að setja upp dag-
skrá með tilliti til þeirra takmarkana
sem eru vegna Covid-19. „Saman í
krafti fjölbreytileikans“ er yfirskrift
hátíðarinnar þar sem nú sem fyrr
er lögð áhersla á að tengja þjóðirnar
betur saman en um fjórðungur íbúa
í Reykjanesbæ er af erlendum upp-
runa og stærstur hluti hópsins eru
Pólverjar.
Tengjum saman þjóðirnar
Við viljum virkja okkar fólk betur
og kynna ýmislegt fyrir þeim sem
er í gangi hér á Suðurnesjum. Þá
viljum við líka kynna Pólland betur
fyrir Suðurnesjamönnum. Það er
eitthvað skemmtilegt í gangi alla
dagana sem hátíðin stendur yfir og
margar skemmtilegar hugmyndir
hafa komið upp á borð. Við virkjum
leikskólana, fáum leiðsögn um merki-
lega staði og fólk á svæðinu, bjóðum
upp á myndlist og bílabíó og svo
er ýmislegt sem tengist mat líka á
dagskránni. Ekki má heldur gleyma
veglegri barnadagskrá,“ segja þær en
Monika hefur búið í Reykjanesbæ í
fimm ár og hefur m.a. verið leið-
beinandi hjá Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum. Marta sem hefur
búið á Íslandi í þrettán ár hefur
verið dugleg við að tengja þessar
vinaþjóðir saman, m.a. með því að
halda úti vefsíðu með fréttum frá Ís-
landi á pólsku. Allir viðburðir á há-
tíðinni verða til að mynda í boði á
samfélagsmiðlum, Facebook-síðum
Reykjanesbæjar og Bókasafns
Reykjanesbæjar.
Monika segir að þær hafi haft
samband við leikskólana í bænum
og beðið þá um að gera eitthvað með
krökkunum en fjöldi barna á leikskól-
unum eru pólsk. „Pólverjar eru mjög
ánægðir með leikskólana og það
er mikið leitað til mín um þau mál.
Í Póllandi eru starfandi leikskólar
fyrir börn frá þriggja ára aldri en
dagmæður taka yngri börn.“ Monika
segir að þær hafi fengið skemmtilegt
myndskeið frá Tjarnarseli þar sem
börnin og starfsmenn syngja saman
á pólsku. „Fimm ára dóttir mín er þar
í vistun og hún kom hlægjandi heim
á föstudaginn og sagði að það hafi
verið skemmtilegt að syngja saman
á pólsku.“ Það verður eitthvað fyrir
krakka flesta daga á Bókasafni
Reykjanesbæjar.
Plaköt og bílabíó
Meðal þess sem í boði er á hátíðinni
er sérstök sýning þar sem plaköt
með ýmsum upplýsingum um Pól-
landi er að finna. Hugmyndin er að
Pólverjar sem og Íslendingar geti
notið fróðleiks og fengið enn meira
en stendur á plakötunum með því
að smella á svokallaðan QR-kóða
á plakötunum. „Margir Pólverjar
hér á Suðurnesjum sakna heima-
haganna og þeir geta þarna yljað sér
við þessar upplýsingar. Um leið geta
Suðurnesjamenn kynnt sér betur
hvað er í boði í landi sem er með
annan menningarkúltúr og auðvitað
eru margir fallegir og áhugaverðir
staðir í Póllandi. Þarna bendum
við til dæmis á marga staði sem eru
ekki mjög þekktir en eru mjög áhuga-
verðir,“ segir Marta.
Stórt vegglistaverk
Þá verður málað vegglistaverk á
stóran vegg aftan við gömlu Sund-
höll Keflavíkur.
Á síðustu menningarhátíðum hafa
Pólverjar boðið Suðurnesjamönnum
í matarveislu en af því getur ekki
orðið núna. Þess í stað verða sýnd
myndbönd þar sem bæði Suður-
nesjamaður eldar pólskan mat og
Pólverji eldar íslenskan fisk.
Á föstudagskvöld verður svo
bílabíó á Ásbrú. Þrjá sýningar verða
í boði þar sem sýndar verða myndir
sem hafa vakið athygli en þessi fram-
kvæmd er í samstarfi við Bíó Paradís.
Myndirnar sem verða sýndar eru
„Cold war“, Panic attack og Mug og
verða þær sýndar kl. 17, 19 og 21.
Í tilefni af pólsku menningarhátíðinni hafa börniná leikskólanum Tjarnar-
seli skapað listaverk innblásin af pólskri menningarhefð. Verkin eru nú til
sýnis í gluggum Tjarnarsels.
Eldri börnin hafa líka verið að læra lagið höfuð, herðar, hné og tær á pólsku
sem hefur verið einstaklega skemmtilegt. „Pólsku nemarnir okkar eru enn að
jafna sig eftir hlátursköstin við að sjá kennarana sína brasa við að syngja á
pólsku en þau hljóta að jafna sig á því blessuð börnin,“ segir á Fésbókarsíðu
Tjarnarsels en þar má líka sjá myndbandið með söngnum.
https://www.facebook.com/Leiksk%C3%B3linn-Tjarnarsel-144586655714415/
Monika Dorota
Kruś og Marta
Magdalena
Niebieszczanska
en þær eru
verkefnastjórar
PÓLSK STEMMNING Á TJARNARSELI
22 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár