Víkurfréttir - 04.11.2020, Síða 23
Lokun hár- og snyrtistofa um allt land í annað skiptið 2020
Aldrei hefði okkur dottið það í hug þegar við opnuðum Hárfaktorý árið
2012 að heimsfaraldur myndi skella öllu í lás hjá okkur. Þetta eru búnir
að vera mjög skrítnir tímar, sérstaklega síðustu vikur. Við hér utan höf-
uðborgarsvæðisins máttum vera með opið en ekki stofurnar í bænum.
Enda stoppaði síminn ekki ... við fengum alveg að heyra það, sagt að við
værum að mismuna fólki, að þetta mætti ekki og svo kom það alveg fyrir
að fólk laug sem eru mjög leiðinlegar aðstæður. Fólk var að nýta sér það
að vinna t.d. hér suðurfrá en býr í bænum – en við spurðum alla sem voru
ekki skráðir í bókunarkerfi hjá okkur hvort þeir byggju í bænum. Því við
ákváðum strax að sýna samhug með stofunum í bænum. Við viljum líka
koma fram þakklæti til allra sem hafa sýnt tillitssemi og beðið þolinmóð
eftir nýjum tímum. Sérstaklega eftir að við opnuðum í fyrstu bylgjunni
og vonum að það verði eins núna. Það vilja flestir komast að á fyrsta
opnunardaginn en við höfum bara tvær hendur og komum því miður ekki
öllum að á þeim degi.
Auðvitað er erfitt að loka, sérstak-
lega á þessum tíma árs þar sem
margir af kúnnum hjá okkur, bæði
í klippingu/litun og í snyrtingu hjá
Gerðu, eru mjög skipulagðir og löngu
búnir að plana tímana sína fram að
jólum ... en svona er þetta bara og í
staðinn kemur bara frekar löng en
pottþétt mjög skemmtileg jólatörn
hjá okkur.
Kannski upplagt líka að segja frá
því að nýr hárgreiðslusveinn er að
byrja hjá okkur einmitt núna en það
er hún Vala. Valgerður sem vann
lengi á Hárgreiðslustofu Reykjavíkur
en hún og fjölskyldan hennar voru
að flytja í Reykjanesbæ og vonum
við að allir taki vel á móti henni
og skelli sér á tíma í klippingu eða
klippingu og lit hjá henni þegar við
opnum aftur.
Þetta ástand kennir okkur líka
ýmislegt, t.d. að vinnan er ekki sjálf-
sagður hlutur og auðvitað að heilsan
er númer eitt, tvö og þrjú. Án hennar
er maður ekkert. Við erum þakklátar
fyrir að geta unnið og ef smá hárrót
eða loðnir leggir eru mestu áhyggj-
urnar sem við höfum erum við ótrú-
lega heppin.
Vonandi sjáum við fram á bjartari
tíma núna í lok árs og að allir geti
notið aðventunnar og jólanna með
sínu nánasta fólki. Við þurfum bara
öll að standa saman í þessu núna
næstu tvær, þrjár vikurnar svo það
sé mögulegt.
Baráttukveðjur til ykkar allra.
Sendum rafrænt knús og kærleika á
ykkur öll og hlökkum til að sjá ykkur
sem flest í jólatörninni á Hárfaktorý.
Lilja, Gauja, Jóhanna, Fanney og
Vala, klipparar, og Gerða Arndal,
snyrtifræðingur.
Kristinn Guðni Ragnarsson – minning
Kristinn Guðni Ragnarsson, pípulagn-
ingameistari, fæddist í Vestmannaeyjum
8. desember 1962. Hann lést á heimili
sínu 25. október 2020.
Foreldrar hans voru Ragnar Guðnason,
sjómaður frá Steini (f. 7. janúar 1942 í
Vestmannaeyjum) og Ásta Kristinsdóttir
(f. 8. ágúst 1942 frá Skjaldbreið í Vest-
mannaeyjum).
Kristinn Guðni átti eina systir, Guðrún
Bjarný (f. 6. október 1959 í Vestmanna-
eyjum). Eiginmaður hennar var Þor-
varður Vigfús Þorvaldsson (f. 20. nóv-
ember 1956, d. 9. janúar 2015).
Kristinn Guðni giftist Sesselju Birgisdóttir (f. 24.
janúar 1962 í Keflavík), foreldrar hennar voru Guðrún
Guðnadóttir, húsmóðir í Keflavík (f. 3. september
1932, d. 2. apríl 1982), og Birgir Axelsson, fiskverkandi
í Keflavík (f. 21. ágúst 1932, d. 14. desember 2001).
Babú-babú öskruðu peyjarnir í Eyjum hlaupandi í
halarófu gólandi í takt við sírenur slökkviliðsbílanna
þegar kviknaði í og brunalúðurinn ómaði í fjöllunum
svo það fór ekki framhjá neinum hvað var í gangi.
Kiddi var ekki hár í loftinu þegar hann var farinn að
elta slökkviliðið þegar það var kallað út en afi hans
og nafni, Kiddi á Skjaldbreið, var slökkviliðsstjóri í
Eyjum. En það var ekki fyrr en Kiddi var kominn til
sjós og léttlyndu félagarnir búnir að stofna ærsla-
félagið Klakabandið að þeir fóru að kalla hann Kidda
babú. Það þekkja fáir Eyjamenn Kristinn Guðna en
nær allir vita hver Kiddi babú er. Þannig verða viður-
nefnin að aðalnöfnum. Ég hef stundum verið að segja
gömlum Eyjamönnum að Kristinn Guðni sé sonur
hans Ragga í Steini og Ástu frá Skjaldbreið. Menn
stand alveg á gati og kannast ekki við neinn Kristinn
Guðna. Á hann Raggi í Steini peyja, ja hérna. Svo þegar
maður segir: „Já, hann Kidda babú.“ „Já, þú meinar.
Auðvitað veit ég hver hann er.“ Babú-inn, það þekkja
hann allir. Þetta er stutta lýsingin á viðurnefnaút-
gáfu Eyjamanna. Klakabandið var ekki klúbbur
kórdrengja. Nei, það var félagsskapur harðduglegra
sjómanna, Eyjapeyjar og -pæjur sem kunnu tökin á
lífinu þegar hart var sótt á sjóinn, tekjurnar miklar
og skemmtanalífið í stórskalaútgáfu sem passaði vel
við tekjurnar á sjónum. Þar var töluð hrein íslenska
og engum hlíft og alls ekki þeim sem átti afa sem
slökkviliðsstjóri. Austur-Þýskur Trabant var kostu-
legur bíll og Klakabandið pantaði sjö slíka
til Eyja. Það mátti ekki minna vera. Þegar
þeir höfðu keypt steríógræjur í bílanna
kostuðu þeir tvöfalt verð því græjurnar
voru dýrari en bílarnir – en þrátt fyrir
dugnað á sjónum og mikilfenglegt Klaka-
bandið gleymdi Kiddi ekki að undirbúa
sig fyrir lífið. Hann náði að mennta sig
sem pípulagningamaður milli úthalda og
varð meistari í greininni 1988. Ég man
vel eftir Kidda á þessum árum þó vinátta
okkar hafi skotið rótum í Keflavík. Hann
var ótrúlega mikill Eyjamaður í sér og frá
fyrstu kynnum fann ég hversu traustur
maður hann var. Kiddi var öruggur með sig enda mikill
verkmaður og hafði góða yfirsýn yfir verkefni sín sem
pípulagningarmaður. Ég held að allt neftóbakið sem
hann mokaði í fíngert nefið hafi opnað beina leið upp
í heila, beint í æð fyrir hreina og klára hugsun. Hann
tók samt stundum gömla Klakabandsfílinguna á þetta
og við vinirnir áttum það sameiginlegt að vera stöðugt
að taka á lífinu okkar, styrkleikum sem veikleikum.
Kiddi bætti meiru í nefið þegar hann átti í vök að
verjast í baráttunni við krabbann. Hann mætti þjáður
til vinnu og mundaði rörtöngina með samanbitnar
varir og svaraði verkjunum með stærri skömmtum
af neftóbaki að hætti Týrara. Hann ætlaði að klára
stóra verkið sem hann tók að sér hjá Bygg hvað sem
það kostaði, hann var jaxlalegur í vinnugallanum
með neftóbakstaumana niður á höku og var að gera
bestu vertíðina í lífinu. Hann var alltaf klár í fyrstu
bauju en það var ekki nóg því baráttan við veikindin
var barátta upp á líf og dauða. Síðustu dagarnir voru
heima í faðmi fjölskyldunnar. Börnin hans öll elskuðu
hann og yngstu peyjarnir kölluðu hann alltaf afa babú.
Kiddi var stoltur af viðurnefninu, ánægður með gömlu
vinina og fjölskylduna alla sem elskaði hann. Þegar við
tókumst í hendur í síðasta skipti sagði hann: „Þetta
er allt aftur á bak Ási minn.“ En ég held að nú keyri
hann Trabantinn með himinskautum, fulllestað nefið
af tóbaki, steríógræjurnar í botni og tekur gömlu sír-
enuna á þetta og kallar út í kosmóið babú-babú.
Ég votta Sesselju, foreldrum Kidda og fjölskyldunni
samúð.
Ásmundur Friðriksson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi, sonur, bróðir, mágur og frændi
KRISTINN GUÐNI RAGNARSSON
pípulagningameistari
frá Vestmannaeyjum
til heimilis að Faxabraut 7 Keflavík
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu sunnudaginn 25. október.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju Kirkjulundi
miðvikudaginn 4. nóvember kl. 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
verða viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á
www.facebook.com/groups/2803581819879035/
Fjölskyldan þakkar heimahjúkrun HSS fyrir alla hjálpina
og yndislegt viðmót.
Fyrir hönd aðstandenda
Sesselja Birgisdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
KRISTJÁN H. ERLENDSSON
Hátúni 2, Reykjanebæ,
varð bráðkvaddur laugardaginn 17. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigurbjörg Hallsdóttir
Sædís Kristjánsdóttir Ómar Ingi Tryggvason
Björgvin Kristjánsson
Arnór Darri, Sölvi Freyr og Eydís.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUÐJÓN ÞORGILS KRISTJÁNSSON
fyrrverandi skólastjóri
Ásabraut 11, Sandgerði
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 25. október.
Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju föstudaginn 6. nóvember klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu ættingjar vera viðstaddir
útförina.
Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/08bJF9XZYMM
Ólöf Björgvinsdóttir
Björgvin Guðjónsson Margrét Lind Steindórsdóttir
Sæunn Guðrún Guðjónsdóttir Guðmundur Rúnar Jónsson
Kristján Þorgils Guðjónsson Hildur Hilmars Pálsdóttir
og barnabörn.
vf isÞú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á
Gauja og Lilja, eigendur Hárfaktorý,
og Gerða Arndal, snyrtifræðingur og
eigandi snyrtistofu Gerðu Arndal.
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár // 23