Víkurfréttir - 04.11.2020, Síða 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Það er draumur að vera
með dáta ... í hótelgistingu
Biðstofa dauðans
Ég las mjög áhrifamikla grein í vikunni sem skrifuð var árið 2017. Þar lýsir kona síðustu mánuðum í lífi foreldra
sinna, þeim mánuðum sem þau eyddu á biðstofu dauðans eins og hún kallar þá. Móðir hennar dvaldi síðustu
mánuði í lífi sínu á hjúkrunarheimilinu á Vífilstöðum en pabbi hennar náði aldrei að komast á hjúkrunarheimili,
biðin var of löng. Senda átti hann á hjúkrunarheimili á Akranesi þar sem ekkert pláss var í Reykjavík. Hann lést
því á Landspítalanum. Ég fékk smá hroll og tár í augun við lesturinn. Það eru þrjú ár síðan greinin var skrifuð
og nákvæmlega ekkert virðist hafa þokast í réttari átt í málefnum eldri borgara þó loforðin liggi sannarlega
alltaf í loftinu.
Mín fyrsta reynsla af hjúkrunar-
heimili var þegar móðuramma mín
flutti á hjúkrunarheimilið Garðvang
í Garðinum í kringum aldamótin.
Garðvangur þótti á þessum tíma ansi
nútímalegt í nálgun sinni á þeirri
þjónustu sem það veitti heimilis-
fólki. Gert var út á að hafa eitthvað
fyrir stafni fyrir gamla fólkið, það var
vel hugsað um það og því virtist ekki
líða illa. Amma var orðin mjög veik,
var með hægfara heilablæðingu. Hún
gat ekki búið einsömul en líkami
hennar var samt sem áður í góðu
ásigkomulagi. Á Garðvangi var hún
sem betur fer ein í herbergi. Mamma
og systkini hennar gerðu allt til þess
að vistarverur hennar væru með
besta móti, keyptu ný húsgögn og
reyndu að gera herbergið heimilis-
legt. Ég man alltaf eftir fyrstu heim-
sókn minni til ömmu á Garðvang.
Mér vöknaði um augun. Hvert var
ég komin og af hverju var amma
mín komin hingað? Mér fannst þessi
staður eitthvað sem ég gæti aldrei
hugsað mér að búa á. Fannst her-
bergið lítið og lyktin vond. Amma
lifði ekki lengi eftir að hún flutti á
Garðvang. Ég hafði alltaf á tilfinn-
ingunni að henni hafi hrakað mjög
fljótt við að búa í þessum aðstæðum.
Biðstofu dauðans.
Árið 2015 stóðum við fjölskyldan
frammi fyrir því að pabbi minn,
þá 67 ára að aldri, þurfti orðið á
stöðugri umönnun að halda. Pabbi
greindist með taugasjúkdóminn
MND árið 2008 og var á þessum
tíma orðinn mjög ósjálfbjarga við
daglegar athafnir. Móðir mín sá um
allar daglegar þarfir pabba og var í
fullri vinnu samhliða því, álagið var
því ansi mikið. Eina úrræðið sem
var í boði fyrir lamaðan föður minn
á þessum tíma var að fara á Nes-
velli, hjúkrunarheimili fyrir aldraða.
Við vorum samt sem áður þakklát
fyrir að pabbi fengi inni og í okkar
huga voru Nesvellir með því besta
sem í boði var. Glænýtt hjúkrunar-
heimili og aðstæður til fyrirmyndar.
Því miður gerir fallegt hús lítið eitt
og sér. Fjárframlög til rekstrar voru
af skornum skammti og þjónustan
litaðist af því. Það var fáliðað á Nes-
völlum og mamma var ennþá hans
helsti umönnunaraðili. Hún þurfti
að sjá um allt fyrir utan máltíðir.
Pabbi var reyndar mikill matmaður
og vildi heimalagaðan mat, þannig
að mamma kom yfirleitt með mat til
hans. Kvöldmaturinn á Nesvöllum
einkenndist af súpu eða graut og
brauði, öll kvöld. Að fá í gegn ein-
falda hluti eins og snúningslak tók
nokkrar vikur (snúningslak er notað
fyrir sjúklinga sem geta ekki sjálfir
snúið sér í rúminu). Pabbi var aldrei
sáttur við dvölina á Nesvöllum
en aldrei kvartaði hann. Hann fór
nánast aldrei út úr herberginu sínu
nema til þess eins að borða. Pabbi
dó ári seinna. Það er ömurlegt til
þess að hugsa að pabbi minn, sem
var harðduglegur til vinnu alla sína
tíð, rak sitt eigið fyrirtæki, greiddi
sína skatta og gjöld eins og auðvitað
öllum ber ásamt því að skila miklu til
samfélagsins, skuli hafa endað ævi-
skeið sitt með þessum hætti. Þetta
er í fyrsta skipti sem ég ræði þetta
en mér finnst ótrúlega mikilvægt að
koma því á framfæri að ég er ekki á
neinn hátt að gagnrýna starfsfólkið
sem vinnur við umönnun á Nes-
völlum né öðrum hjúkrunarheim-
ilum, það eru allir að reyna að gera
sitt besta. Veit ekki um marga sem
hafa góða sögu að segja af hjúkrunar-
heimilum í dag en kannski heyrir
maður frekar neikvæðu raddirnar.
Það breytir því samt ekki að betur
má ef duga skal.
Ég er þeirrar gæfu aðnjótandi
að hafa alist upp með bróður sem
er með Downs Syndrome. Ég veit
ekki hvernig líf mitt hefði orðið ef
hann hefði ekki verið hluti af því,
held það hafi gert okkur öll sem
eru í kringum hann að betri mann-
eskjum. Hann er 42 ára gamall í dag,
býr í sinni íbúð sem hann leigir af
Reykjanesbæ og búinn að gera í tæp
tuttugu ár. Við fjölskyldan erum svo
ótrúlega þakklát fyrir það að hann
eigi möguleika á að búa í sinni eigin
íbúð, að hann geti haldið sitt eigið
heimili og haft hlutina eins og hann
kýs. Þrátt fyrir það þá virðist eins og
fatlaðir einstaklingar eins og hann
séu pínulítið gleymdir í okkar sam-
félagi. Húsið sem hann býr í hefur
lítið verið haldið við í þau tuttugu
ár sem hann hefur búið þar fyrir
utan þau viðvik þar sem við höfum
ítrekað þurft að vera í sambandi við
bæjarfélagið út af; biluðu klósetti,
leka í svalahurð, leka í sturtu og þar
fram eftir götunum. Ímyndið ykkur
að búa við þessar aðstæður? Ég
sendi bæjarstjóra Reykjanesbæjar
bréf í maí síðastliðnum þar sem ég
fór yfir stöðu bróður míns, bæði
varðandi húsnæðið og umönnun
hans. Móðir mín sér alfarið um hans
daglegu umönnun fyrir utan þá mjög
takmörkuðu þjónustu sem hann fær.
Bæjarstjóri tók mjög vel í erindi mitt
og boðaði mig á fund, sem ég var
mjög þakklát fyrir. Það er sorglegt
að segja frá því að ekki hefur mikið
breyst í hans málum.
Í þessum skrifum mínum er ég
ekki að barma mér eða halda því
fram að við fjölskyldan höfum upp-
lifað verri hluti eða erfiðari en aðrir.
Ég er eingöngu að benda á það sem
tekur við þegar maður þarf að leita
á náðir velferðarkerfisins. Ég hef
miklar áhyggjur af þróun málefna
veikra, fatlaðra og aldraðra á Ís-
landi. Staðan á hjúkrunarheimilum
er slæm og hefur verið það í fjölda
ára. Þjóðin er að eldast og öldruðum
ekki aðeins að fjölga, heldur eru þau
að verða æ stærra hlutfall þjóðar-
innar. Á sama tíma eru fjárframlög til
málaflokksins ekki að fylgja þessari
þróun og nokkuð ljóst hvert stefnir
fyrir þennan hóp. Það er eins og mál-
efni þeirra sem hafa fáa málsvara séu
alltaf látin mæta afgangi. Erum við
endalaust að vinna í því að gera þá
ríku ríkari eða ætlum við að búa til
öflugt velferðarsamfélag þar sem það
er hreinlega öfundsvert að eldast?
Mamma mín er 72 ára í dag. Í mörg
ár hefur hún talað um það og tekið
af mér loforð um að ég komi henni
aldrei fyrir á hjúkrunarheimili. Hún
er brennd fyrir lífstíð. Hún er ekki að
gera kröfu um að ég hugsi um hana
en hræðist mest af öllu að daga uppi
á hjúkrunarheimili á Íslandi. Trúið
mér, ég mun aldrei senda móður
mína á hjúkrunarheimili eins og
staða þeirra er í dag, aldrei. Ég spyr,
af hverju erum við á sama stað ár
eftir ár í þessum málum, af hverju
gerist ekkert? Í þeirri efnahags-
kreppu sem nú blasir við veit ég að
þessi mál aldraðra og veikra eiga eftir
að fara enn neðar á listann hjá stjórn-
völdum en ég bind vonir við að það
birti til og við notum tækifærið til
að gefa til baka og leyft elsta fólkinu
okkar að eyða síðustu æviárunum á
fallegum og góðum stað þar sem vel
er hugsað um það. Við þurfum klár-
lega að endurhugsa hvernig við skil-
greinum hjúkrunar- og dvalarheimili
fyrir aldraða, fatlaða og mikið veika
einstaklinga. Við erum öll samfélag
og þessir einstaklingar eru hluti af
því. Heimili þeirra á ekki að vera bið-
stofa dauðans.
LO
KAO
RÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Loftrýmisgæslan
og þjálfarar Keflavíku
r
í þætti vikunnar!