Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2020, Side 2

Víkurfréttir - 11.11.2020, Side 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is Prentun: Landsprent Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson Hilmar Bragi Bárðarson Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Þarf að sporna við mesta atvinnuleysi Íslandssögunnar á Suðurnesjum Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sameinaðist í bókun við fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar þar sem m.a. er skorað á Alþingi og ríkisvald að tryggja fjárframlög til framkvæmda á Suðurnesjum. „Mikil óvissa er uppi í þjóðfélaginu og í heiminum öllum vegna alheims- faraldursins COVID-19. Mörg fyrirtæki á landinu, í ferðaþjónustu sem og öðrum atvinnugreinum, eiga í miklum rekstrarerfiðleikum þar sem gjaldþrot þeirra blasir jafnvel við. Þessum erfiðleikum fylgir atvinnuleysi og er atvinnuleysi nú á Suðurnesjum með því hæsta sem þekkst hefur í Íslandssögunni. Við þessari þróun þarf að sporna með framkvæmdum sem skapa störf tímabundið og til lengri tíma. Bygging þurrkvíar í Njarðvík Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefur hug á að efla starfsemi sína með byggingu nýrrar þurrkvíar á athafna- svæði sínu við Njarðvíkurhöfn. Sú uppbygging myndi strax skapa á annað hundrað bein og óbein störf og leiða til annarrar uppbyggingar með viðeigandi störfum en til að þessi áform gangi eftir þarf að ráðast í verulegar hafnarframkvæmdir í Njarðvíkurhöfn. Reykjaneshöfn, sem á og rekur Njarðvíkurhöfn, hefur á undan- förnum árum stefnt að endurbótum á hafnaraðstöðunni í Njarðvík, er varðar endurnýjun viðlegukanta, dýpkun og byggingu skjólgarðs. Þær framkvæmdir myndu nýtast vel til að skapa það umhverfi sem til þarf fyrir uppbyggingu Skipa- smíðastöðvar Njarðvíkur, auk þess að skapa möguleika á uppbyggingu á annarri hafnsækinni starfsemi á svæðinu. Viljayfirlýsing undirrituð Þann 19. ágúst síðastliðinn undir- rituðu Reykjanesbær, Reykjanes- höfn og Skipasmíðastöð Njarðvíkur viljayfirlýsingu um samræmt átak til að vinna framangreindum fram- kvæmdum brautargengi. Reykjanes- höfn og Skipasmíðastöð Njarðvíkur hafa kynnt fyrrnefnd uppbygg- ingaráform fyrir bæjarráðum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum ásamt stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og hafa viðkomandi aðilar lýst yfir stuðningi við áformin sem eru atvinnueflandi fyrir íbúa Suðurnesja. Fyrrnefndar endurbætur sem Reykjaneshöfn stefnir á í Njarð- víkurhöfn hafa í för með sér miklar framkvæmdir og eru kostnaðar- samar. Heimilt er samkvæmt Hafna- lögum nr. 61/2003 að styrkja slíka framkvæmd úr ríkissjóði í gegnum samgönguáætlun en forsenda þess að Reykjaneshöfn geti farið í þessa framkvæmd er að sá stuðningur sé til staðar. Fjárútlát Reykjaneshafnar verða þrátt fyrir það umtalsverð og mun Reykjanesbær styðja Reykja- neshöfn við þá fjármögnun. Áskorun á ríkisstjórn og Alþingi Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar hér með á ríkisstjórn og Alþingi að tryggja fjárframlög til ofangreindra hafnarframkvæmda í Njarðvíkur- höfn í samræmi við heimildir í Hafnalögum í gegnum samgöngu- áætlun eða aðra innviðafjárfestingu svo renna megi fleiri stoðum undir atvinnulífið á Suðurnesjum og skapa ný störf til framtíðar.“ Anna Sigríður Jóhannes- dóttir (D), Baldur Þ. Guð- mundsson (D), Díana Hilmars- dóttir (B), Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Jóhann Friðrik Friðriksson (B), Margrét A. Sanders (D), Margrét Þórarinsdóttir (M), Styrmir Gauti Fjeldsted (S) og Jasmina Vajzovic Crnac (Á). IceMar ehf. í Reykjanesbæ hefur gefið 3.000 máltíðir til Fjölskyldu- hjálpar Íslands og bætist þar í hóp annarra fyrirtækja á Suðurnesjum sem hafa látið gott af sér leiða á síðustu dögum og vikum með myndarlegum gjöfum til hjálpar- samtakanna. „Samfélagsleg ábyrgð er mikilvæg á öllum tímum, ekki síst á erfiðum tímum eins og núna. Við erum af- lögufær og viljum aðstoða fólk sem er í erfiðri stöðu. Við vonum að þessi styrkur hjálpi til en viljum einnig vekja athygli á þeirri fórn- fýsni og miklu umhyggju sem sjálf- boðaliðar í starfi Fjölskylduhjálpar Íslands hafa sýnt í störfum sínum. Sjálfboðaliðarnir eru hinar sönnu hetjur. Við eigum að hlúa vel hvert að öðru, sýna í verki að okkur er umhugað um náungann. Í slíku sam- félagi viljum við búa,” sagði Gunnar Örlygsson, forstjóri IceMar, þegar gjöfin var afhent. Oddfellowar á Suðurnesjum færðu Velferðarsjóði 3,2 milljónir króna Þann 5. nóvember síðastliðinn af- hentu deildir Oddfellowreglunnar I.O.O.F. í Reykjanesbæ styrk til Velferðarsjóðs Suðurnesja að fjárhæð 3,2 milljónir króna. Nú á þessum fordæmalausu tímum eru íbúar á Suðurnesjum að takast á við mikla erfiðleika og at- vinnuleysi hefur aldrei verið hærra. Á tímum sem þessum er áríðandi að samfélagið standi saman og hlúi að þeim sem minna mega sín. Vel- ferðarsjóður Suðurnesja hefur á undanförnum árum verið sá aðili sem hægt hefur verið að leita til eftir stuðningi og hefur sjóðurinn stutt börn og fullorðna með ýmsum hætti. Upphaf Oddfellowreglunnar á Suðurnesjum má rekja til ársins 1976 en eitt af grunngildum hennar er að líkna bágstöddum. Í Reykjanesbæ eru eftirtaldar Oddfellowregludeildir starfandi: Oddfellowstúkan Njörður, Rebekk- ustúkan Steinunn, Oddfellowbúð- irnar Freyr, Oddfellowstúkan Jón forseti og Rebekkustúkan Eldey. Frú Ragnheiður tekur á móti styrk Ladies Circle á Suðurnesjum færðu Frú Ragnheiði á Suðurnesjum 150.000 krónu styrk á dögunum. Rauði krossinn á Suðurnesjum færir þeim sínar bestu þakkir og vill jafnframt nýta tækifærið og þakka Suðurnesjabúum þá velvild sem verkefnið hefur fengið. Á myndinni eru: (frá vinstri) Íris Ósk Ólafsdóttir, Ladies Circle, Jó- hanna Björk Sigurbjörnsdóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar á Suðurnesjum, María Sigurðar- dóttir, Ladies Circle, og Gróa Ax- elsdóttir, Ladies Circle. 3.000 máltíðir frá IceMar til Fjölskylduhjálpar 2 // vÍKurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.