Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2020, Side 4

Víkurfréttir - 11.11.2020, Side 4
Áhyggjur af milljarða framkvæmd án þess að farið verði í greiningarvinnu „Við í minnihlutanum höfum áhyggjur af milljarða framkvæmd án þess að farið verði í greiningarvinnu og teljum að jafnt stórt verkefni eins og áfangi 2 er við Stapaskóla þá þurfi að velta öllum möguleikum á ódýrari útfærslum án þess að það komi niður á gæðum,“ segir í bókun sem Margrét Þórarinsdóttir, Miðflokki, lagði fram fyrir hönd bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins og Miðflokksins á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. „Ég vil undirstrika að við erum hlynnt þessari framkvæmd og gerum okkur grein fyrir nauðsyn hennar en undirbúningsvinnan þarf að vera betri. Við höfum lagt fram bókun í þessu máli á fyrri stigum. Við leggjum bókunina fram aftur og óbreytta,“ segir Margrét í bókuninni sem Margrét Sanders (D), Baldur Guðmundsson (D) og Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D) skrifa undir með henni. Bókunin sem lögð fram á bæjar- stjórnarfundi 20. október 2020 og var lögð fram aftur: „Fyrsti áfangi Stapaskóla hefur nú verið tekinn í notkun og þykir bygg- ingin afar glæsileg enda mun dýrari en sambærilegar byggingar. Áfangi 2 snýr að byggingu íþrótta- aðstöðu og upphafleg greining tók mið af þörfum skólabarna þar sem kennslulaug og einfaldur íþrótta- salur myndi duga. Á síðari stigum var viðruð sú hugmynd að íþrótta- salur nýttist sem löglegur körfuknatt- leiksvöllur og í sumar var ræddur sá möguleiki að setja upp aðstöðu fyrir rúmlega 1.000 áhorfendur og sund- laug yrði einnig stækkuð. Á síðasta bæjarráðsfundi voru lagðar fram skissur þar sem nokkrir valkostir voru kynntir ásamt grófri kostnaðaráætlun. Einföld útfærsla mun kosta rúman milljarð en ef farið yrði alla leið þá gæti kostnaður nálgast tvo milljarða. Við undirrituð treystum okkur ekki til að styðja auknar fjárfest- ingar um nærri milljarð króna án þess að frekari greiningarvinna fari fram. Í greiningunni komi fram hvernig íþróttahúsið og sundlaug muni nýtast í náinni framtíð, hvaða íþróttagreinar og félög myndu nota aðstöðuna og hvort það nýtist einnig til æfinga, hvort bílastæði séu nægj- anleg þegar kappleikir standa yfir, hvort sundlaugin verði notuð til æfinga eða hvort opið verði fyrir al- menning fram eftir kvöldi og fleira sem skiptir máli í þarfagreiningu. Nú þegar gróf kostnaðaráætlun hefur verið kynnt er nauðsynlegt að rýna þarfirnar áður en lengra er haldið. Við hönnunarvinnu verði leitast við að velta upp öllum möguleikum á ódýrari útfærslum án þess að það komi niður á gæðum.“ Margrét Sanders (D), Baldur Guð- mundsson (D) Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D) og Margrét Þórarinsdóttir (M). Sækja um lóðir undir BYKO Smáragarður ehf. óskar eftir að fá lóðunum að Fitjabraut 5–7 í Njarðvík úthlutað undir byggingarvöruverslun BYKO og mögulega aðra starfsemi sem fellur að þeim rekstri. „Náist samningar þar um er það ósk Smáragarðs að hefja þróun á reitnum sem fyrst í samráði við skipulagsyfirvöld bæjarins. Reiknað er með sameiningu lóð- anna tveggja og byggingarreita,“ segir í umsókninni. Lóðarumsókn samþykkt með fyrirvara um samþykki Reykja- neshafnar og afhendingarskilmála. Njarðvíkurskógar álitlegir fyrir nýtt tjaldstæði Reykjanesbæjar Miðað við úttekt skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar koma Njarðvíkur- skógar og Víkingaheimar best út fyrir nýtt tjaldstæði Reykjanes- bæjar hvað varðar staðsetningu, stærð og nálægð við þjónustu. Ókostur Víkingaheima er fjarlægð í alla afþreyingu og staðsetningu mögulegra viðburða. Njarðvíkurskógar eru þar skörinni hærra vegna möguleika á sveigjan- leika á stærð svæðisins og nálægðar við verslun og þjónustu, náttúru, íþróttamannvirki og Reykjanesbraut auk fjarlægðar frá næstu íbúabyggð, þó án þess að vera í jaðri byggðar. „Í Njarðvíkurskógum er gert ráð fyrir tjaldsvæði í aðalskipulagi og svæðið er spennandi útivistarsvæði í þróun sem býður upp á margvís- lega möguleika,“ segir í minnisblaði sem lagt var fyrir fund umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar 6. nóvember síðastliðinn. Hraða innleiðingu hringrásarhagkerfisins „Í tengslum við samstarf sveitar- félaganna á Suðurnesjum, Isavia, Kadeco og SSS um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna til eflingar samfélagsins á Suðurnesjum samþykkir bæjarráð Reykjanesbæjar að fela bæjarstjóra að undirrita sameiginlega yfirlýs- ingu allra fyrrgreindra aðila um að „Hraða innleiðingu hringrásarhag- kerfisins“. Í því felst að aðilar skuldbinda sig til þess að vinna áfram að aðgerðum til að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda, sameinist um aðgerðir gegn þeirri umhverfisvá sem plast í umhverfinu veldur, þ.e. að dregið verði úr notkun plasts, endurvinnsla plasts verði aukin, unnið verði gegn plastmengun í hafi og ráðist í aðgerðir gegn matarsóun.“ Þetta kemur fram í bókun um Heimsmarkmiðinm og Suðurnesja- vettvanginn sem bæjarráð Reykja- nesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum. Hringrásarhagkerfið sett á oddinn Sveitarfélög á Suðurnesjum, Isavia, Kadeco og SSS undirrita yfirlýsingu um að hraða innleiðingu hringrásar- hagkerfisins. • Í tilefni af umræðufundi um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna til eflingar samfélagsins á Suðurnesjum og að teknu tilliti til þeirrar um- ræðu sem hefur átt sér stað innan málefnahópa um stefnu- miðin þá er lagt til að bakhjarlar verkefnisins undirriti yfirlýsingu um að „Hraða innleiðingu hring- rásarhagkerfisins“. • Í því felst að aðilar skuldbindi sig til þess að vinna áfram að aðgerðum til að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsa- lofttegunda, sameinist um að- gerðir gegn þeirri umhverfisvá sem plast í umhverfinu veldur, þ.e. að dregið verði úr notkun plasts, aukin verði endurvinnsla plasts, unnið gegn plastmengun í hafi og ráðist í aðgerðir gegn matarsóun. Suðurnes ætla að taka forystu í þessari nálgun og kortleggja þessa framtíðarsýn á grunni þeirrar umræðu sem þegar hefur átt sér stað og þróa enn frekar. • Skipulagshópur innan Suður- nesjavettvangs mun halda utan um verkefnið í samræmi við samþykkta innleiðingaráætlun. • Við ætlum að snúa vörn í sókn á Suðurnesjum, efla atvinnulíf og styrkja innviði svæðisins. Öll sveitarfélögin fjögur, Isavia, Kadeco og SSS hafa tekið þátt í undirbúningi fyrir samráðs- fundinn þar sem Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hafa verið leiðarljós. Lóðirnar Fitjabraut 5–7 í Njarðvík. Njarðvíkurskógar þykja spennandi staðsetning fyrir tjaldsvæði.VF-mynd: Hilmar Bragi Bifreiðum lagt allan daginn í skammtímastæði við Hafnargötu Samtökin Betri bær hafa sent um- hverfis- og skipulagssviði Reykja- nesbæjar erindi þar sem óskað er eftir að bílastæði við Hafnargötu verði merkt sem skammtímastæði á meira áberandi hátt. Erindið hefur verið samþykkt og umhverf- issviði bæjarins falið að útfæra til- löguna. „Það eru merkingar á nokkrum staurum sem fólk virðist ekki taka eftir og eru lítið áberandi. Við erum ítrekað að lenda í því að bílum sé lagt jafnvel heilan dag fyrir utan verslanir okkar sem gerir okkur erfitt að taka á móti vörum og væntanlegum við- skiptavinum,“ segir í erindi Betri bæjar til bæjaryfirvalda. Mikill samdráttur í fjölda gistinátta Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum í september drógust saman um 96% á milli ára en ís- lenskum gistinóttum fjölgaði um 28%. Á Suðurnesjum er samdrátt- urinn í september 83%. Gistinætur keyptar á hótelum í september voru 7.154 en voru 41.329 í sama mánuði árið 2019. Samdráttur í hótelgistingu er alls staðar frá 70 til 90%. Samdráttur í hótelgistingum var einnig mikill á milli áranna 2018 og 2019 á Suðurnesjum eða 51%. Það var mesti samdrátturinn á landinu öllu en hann var annars staðar á landinu 45% að meðaltali. Verslunareigendur vilja að skammtímastæði verði betur merkt. VF-mynd: Pket 4 // vÍKurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.