Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2020, Side 13

Víkurfréttir - 11.11.2020, Side 13
G A M A N A Ð V E R A Í N JA R ÐV Í K Knattspyrnudeild Njarðvíkur réði þá Bjarna Jóhanns- son og Hólmar Örn Rúnarsson til að taka við meistara- flokki Njarðvíkur í síðustu viku en það er fleira á döfinni hjá Njarðvíkingum. Framundan er metnaðarfull starf- semi að fara í gang með það að takmarki að Njarðvík skipi sér í hóp tuttugu bestu liða á Íslandi. Víkurfréttir ræddu við Gylfa Þór Gylfason, formann knattspyrnu- deildarinnar, skömmu eftir ráðningu nýrra þjálfara. „Reynslan sem þessir tveir búa yfir á eftir að nýtast öllum sem koma að félaginu og hef ég mikla trú á að þeir muni hjálpa félaginu að vera meðal tuttugu fremstu knattspyrnuliða á landinu,“ segir Gylfi bjartsýnn á framhaldið. „Knattspyrnudeildin ákvað að efla umgjörðina í yngri flokkum fyrir komandi tímabil og hefur aldrei verið jafn öflugur þjálfara- hópur í yngri flokkum félagsins. Að auki hófum við afreksæfingar sem er fyrst og fremst ætlaðar fyrir leik- menn í öðrum til fjórða flokki, eða leikmenn á aldrinum þrettán til nítján ára. Marc McAusland er yfir afrekshópum Njarðvíkur en reynslan sem hann býr yfir á svo sannarlega eftir að nýtast ungum og efnilegum knattspyrnumönnum. Við höfum trú á að afreksstarf okkar eigi eftir að skila fleiri Njarðvíkingum upp í meistaraflokk og vonandi atvinnu- mennsku þegar fram líða stundir. Við í Njarðvík eigum margt flott fót- boltafólk sem við komum vonandi til með að sjá meðal þeirra bestu á næstu árum – og jafnvel einn daginn slá leikjamet Njarðvíkingsins Óskars Arnar.“ Njarðvíkingurinn Óskar Örn Hauksson er fyrirliði karlaliðs KR í knattspyrnu. Hann er uppalinn hjá Njarðvík og lék með þeim til ársins 2003 en þá skipti Óskar yfir í Grindavík og hefur leikið í efstu deild síðan. Í síðasta mánuði varð Óskar leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi þegar hann lék sinn 322. deildarleik og sló met markvarðarins Birkis Kristinssonar frá árinu 2006. Óskar hefur leikið samtals 455 meistaraflokksleiki, tvo leiki með A-landsliðinu og þrettán með yngri landsliðum Íslands. – Hvað hafið þið í stjórninni verið að leggja áherslu á í ykkar starfi? „Núverandi stjórn hefur lagt mikið kapp í að efla félagsandann innan Njarðvíkur og efla umgjörðina. Í samfélagi eins og Reykjanesbæ er einnig mikilvægt að hafa öflugt íþróttastarf og viljum við í stjórn knattspyrnudeildarinnar leggja okkar að mörkum í því. Eftir að það verður búið að létta samkomutak- markanir þá stefnum við á að vera með getraunakaffi alla laugardaga þar sem Njarðvíkingar geta mætti í vallarhúsið okkar, spjallað um fót- bolta og haft gaman. Við viljum að það sé gaman að vera í Njarðvík, þannig fáum við fleiri til að aðstoða félagið enda byggist íslenskt íþrótta- starf fyrst og fremst upp á sjálfboða- starfi,“ sagði Gylfi að lokum. Njarðvík í nýja búninga Knattspyrnudeild UMFN hefur skrifað undir fjögurra ára samstarfs- samning við íþróttavörumerkið Macron. Macron opnaði nýverið verslun í Skútuvogi og eru einnig með öfluga vefverslun á macron.is þar sem m.a. er hægt að kaupa nýja Njarðvíkurbúninginn og bendir Gylfi á að hann sé „tilvalinn í jóla- pakkann“. Gylfi segir að Macron hafi verið stofnað árið 1971 á Ítalíu og upp- haflega framleitt vörur fyrir önnur merki eins og Nike, Adidas og Reebok en árið 2001 hafi orðið stefnubreyting hjá fyrirtækinu og lögð áhersla á hönnun og framleiðslu eigin íþróttafatnaðar. „Nýtískuleg og framúrstefnuleg hönnun hafa gert Macron að einum mest vaxandi íþróttavöruframleið- anda í Evrópu síðastliðinn áratug og leggur Macron mikið upp úr því að vera með góða þjónustu, gæði og gott verð. Við Njarðvíkingar bindum miklar vonir um farsælt samstarf og bjóðum Macron velkomið til liðs við okkur.“ Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Gylfi Þór, formaður Njarðvíkinga, „handsalar“ ráðningarsamninginn við þá Hólmar Örn Rúnarsson og Bjarna Jóhannsson, nýráðna þjálfara meistaraflokks. VSB verkfræðistofa er rótgróið fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum verkefnum tengdum mannvirkjagerð. Sem lið í aukinni þjónustu við viðskiptavini og starfsmenn VSB sem búsettir eru í Reykjanesbæ var nýlega opnuð starfsstöð á Iðavöllum 12 í Reykjanesbæ. VSB býður upp á þjónustu á eftirfylgjandi sviðum: • Hönnun bygginga • Burðarvirki • Lagna- og loftræsikerfi • Rafkerfi • Hönnun gatna- og veitukerfa • Framkvæmdaeftirlit og byggingarstjórn • Fasteignaviðhald • Verkefnastjórnun, þróun verkefna og gerð útboðsgagna Nýtt útibú í Reykjanesbæ Iðavöllum 12 230 Reykjanesbær www.vsb.is Bæjarhrauni 20 220 Hafnarfjörður www.vsb.is VSB verkfræðistofa veitir viðskiptavinum ráðgjöf með lausnum sem einkennast af hagkvæmni, fagmennsku og áreiðanleika. vÍKurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár // 13

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.