Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2020, Page 14

Víkurfréttir - 11.11.2020, Page 14
A landslið kvenna hélt til Grikklands á sunnudag – Þrír Keflvíkingar í hópnum Framundan er landsleikjagluggi hjá landsliði kvenna í körfuknattleik sem er liður í undankeppni EM, EuroBasket Women’s 2021, og undirbýr liðið sig eftir eins og hægt er fyrir brottför. Afingabann hefur gert allan undir- búning erfiðari en liðið hefur ekki náð að æfa saman síðan í ágúst vegna æfingabannsins. Liðið fékk undanþágu í síðustu viku til einstaklingsæfinga og fengu stelpurnar að í Smáranum hver með sinn bolta, ein og ein á körfu. Benedikt Guðmundsson, þjálfari landsliðsins, kallaði Salbjörgu Rögnu Sævarsdóttur frá Keflavík inn í þrettán manna hóp liðsins í stað Hildar Bjargar Kjartansdóttur úr Val sem er meidd en fyrir voru liðs- félagar hennar úr Keflavík í liðinu, þær Katla Rún Garðarsdóttir og Anna Ingunn Svansdóttir. Þær tvær eru nýliðar inn í landsliðið, Katla Rún er í leikmannahópnum en Anna var valin sem þrettándi leikmaður liðsins og mun hún æfa og ferðast með landsliðinu og vera til taks ef gera þarf breytingar á liðinu meðan á verkefninu stendur. Leikir Íslands fara fram fimmtu- daginn 12. nóvember og laugar- daginn 14. nóvember, báðir leikirnir hefjast klukkan 15:00 að íslenskum tíma og verða í beinni útsendingu á RÚV. Fyrri leikurinn er gegn Sló- veníu og sá seinni gegn Búlgaríu. Upphaflega áttu leikir hjá öllum liðum í nóvember að vera heima og að heiman en þeim var breytt fyrir alla riðla í einangraða leikstaði. Ís- land leikur í Heraklion á Grikklandi á eyjunni Krít í öruggri „búbblu“ sem FIBA setur upp fyrir öll liðin í A-riðli undankeppninnar og farið verður eftir ströngum reglum innan hennar með sóttvarnir. Liðið skipa eftirtaldir leikmenn: Bríet Sif Hinriksdóttir (Haukar, tveir leikir) Dagbjört Dögg Karlsdóttir (Valur, fjórir leikir) Eva Margrét Kristjánsdóttir (Haukar, nýliði leikir) Guðbjörg Sverrisdóttir (Valur, tuttugu leikir) Hallveig Jónsdóttir (Valur, 21 leikir) Isabella Ósk Sigurðardóttir (Breiðablik, fjórir leikir) Katla Rún Garðarsdóttir (Keflavík, nýliði leikir) Lovísa Björt Henningsdóttir (Haukar, tveir leikir) Salbjörg Ragna Sævarsdóttir (Keflavík,sex leikir) Sara Rún Hinriksdóttir (Leicester, England, nítján leikir) Sigrún Sjöfn Ámundadóttir (Skallagrímur, 53 leikir) Þóra Kristín Jónsdóttir (Haukar, sautján leikir) Anna Ingunn Svansdóttir (Keflavík, nýliði leikir) Salbjörg Ragna Sævarsdóttir var kölluð inn í landsliðið vegna meiðsla Hildar Bjargar Kjartansdóttur en Salbjörg á sex landsleiki að baki. Mynd: Karfan.is JÓN AXEL MEÐ 21 STIG Í TAPLEIK Grindvíkingurinn Jón Axel Guð- mundsson hefur byrjað vel með Fraport Skyliners í haustleikjunum en hann skoraði 21 stig í leik gegn Alba Berlín um síðustu helgi. Jón Axel tók líka tvö fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Það dugði þó ekki til sigurs því Alba Berlín vann nokkuð öruggan sigur, 79:66. Þetta var fyrsti leikur beggja liða í deildinni í Þýskalandi en átján lið leika í henni. Elvar Már fór mikinn í fyrsta sigrinum Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson fór mikinn með félögum sínum í litháenska liðinu Siauliai þegar það vann fyrsta sigur sinn í deildinni þar ytra um helgina. Elvar Már átti stórleik og skoraði 21 stig, gaf tólf stoðsendingar og reif niður fimm fráköst. Njarðvíkingurinn hefur leikið vel í upphafi móts þótt liðinu hafi ekki gengið nógu vel. Hann hefur skorað sautján stig og gefið átta stoðsendingar að meðaltali í vetur. Það er á brattann að sækja hjá Siauliai því liðið er í neðsta sæti með einn sigur. A R N Ó R I N G V I S V Í Þ J Ó Ð A R M E I S T A R I Verður ekki með landsliðinu vegna smits í Malmö Arnór Ingvi Traustason varð sænskur meistari með Malmö þegar liðið vann 4:0 sigur á Sirius í sænsku úrvalsdeildinni um helgina. Suðurnesjamaðurinn verður hins vegar ekki í lands- liðshópi Íslands, sem kemur saman á miðvikudag, vegna smits sem kom upp í leikmanna- hópi Malmö. KSÍ sendi frá sér tilfinningu þar sem sagt er frá því að ákveðið hafi verið að Arnór Ingvi verði ekki í leikmannahópnum. Ákvörðunin sé tekin til að gæta fyllstu varúðar í sóttvörnum íslenska liðsins fyrir mikilvæga leikinn gegn Ung- verjum. Arnór Ingvi átti að hitta hópinn í Augsburg í Þýskalandi. Hann hafði í tvígang fengið nei- kvætt úr skimunum fyrir veirunni en „Hlutirnir gerast hratt á Covid- tímum,“ segir í tilkynningu KSÍ. Arnór hefur verið í byrjunarliði Íslands í síðustu leikjum liðsins. Arnór lagði upp fjórða og síðasta mark leiksins í stórsigri Malmö sem er með tíu stigum meira en Elfsborg í sænsku deild- inni þegar þrjár umferðir eru eftir. Malmö er því búið að tryggja sér sigur í deildinni. Þetta er í annað sinn sem lands- liðsmaðurinn verður meistari með liði í Svíþjóð. Hann vann titilinn með Norrköping árið 2015. Sveindís Jane sú besta í Pepsi Max-deildinni Sumarið 2020 var sumar Sveindísar Jane Jónsdóttur, hún varð Íslandsmeistari með Breiðabliki og markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur liðsfélaga sínum í Breiðabliki, báðar skoruðu þær fjórtán mörk. Leikmenn liða Pepsi Max-deildar kvenna kusu Sveindísi Jane besta mann Íslandsmótsins. Sveindís Jane er komin aftur í Keflavík eftir að hafa verið á láni hjá Breiðablik í sumar og sagði í samtali við vef- miðilinn Fótbolti.net að það sé óvíst hvað hún geri á næsta ári, hún hafi úr nógu að velja: „En það er bara alveg óljóst hvað ég geri; hvort ég verði í Keflavík á næsta ári, fari í Kópavoginn eða þá út. Ég er bara ekki alveg búin að ákveða það.“ Atvinnumennska framundan? „Mig langar að verða atvinnumaður, fara út og spila með þeim bestu, komast í besta lið í heimi og gera vel. En ég veit ekki hvað ég geri akkúrat núna. Skammtímamark- miðið er að gera vel með landsliðinu í næstu leikjum,“ segir Sveindís einnig en hún átti frábæra innkomu í ís- lenska A-landsliðið fyrr í sumar. 14 // vÍKurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.