Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2020, Page 17

Víkurfréttir - 11.11.2020, Page 17
Viðtökurnar eru með ólíkindum og við erum endalaust með mjög svo ánægða viðskiptavini. Salan hefur aukist í hverri viku. Þetta er allt á réttri leið. Aðalmarkhópurinn er ekki á svæðinu eins og er og styttist í að hann komi en reikna má með að af þeim 22.000 Norður- landabúum sem búa hér mestan hluta úr ári, en eru núna í sínum heimalöndum, munu 65% skila sér alveg á næstunni og þá bætist hressilega í kúnnahópinn. Þannig að hér er bara bjartsýni í kortunum og skemmtilegir hlutir að takast á við. Ég vissi að til að þetta gengi upp þyrfti ég að að fá vinkonu mína með í dæmið og kæmi hún inn með sína þekkingu, kæmi framleiðslunni af stað og kenndi okkur hinum handtökin og út- sjónarsemina varðandi það sem þarf að hafa í huga myndi þetta ganga vel. Ég komst að því að þetta er ekki „bara að smyrja brauð“ frekar en „málning er bara málning“. Það er vandasamt að mála vel og vanda- samt að gera „smørrebrød“ svo vel sé og allt sem er í kringum það. Maður þarf að gera þetta með hjartanu og aldrei slaka á gæðakröfum.“ Roastbeef og rauðsprettan vinsælast „Vinsælast er Roastbeef og þar á eftir er rauðspretta en það er gaman að segja frá því að við erum með tvær útgáfur af henni, annars vegar með majónesi, rækjum og svörtum kavíar ásamt gúrku, tómat og sítrónu sem samlandarnir eru hrifnari af og hins vegar með remúlaði, gúrku, tómat og sítrónu sem Svíar og Danir velja frekar. Þar á eftir kemur lifrarkæfa með söltuðu nautakjöts- sneiðum yfir, kjötsoðshlaupi og rauð- lauk sem danskurinn kallar „Dyrlæ- gens natmad“ (næturmáltíð dýra- læknisins). Marineruð síld, steikt síld, purusteik og lax koma svo þar á eftir en við erum með fimmtán mismunandi tegundir eins og er. Við fáum allt hráefni frá Danmörku, t.d. glútenfrítt rúgbrauð, lifrarkæfu, Roastbeef, remúlaði, rauðsprettu, rækjur og lax en laxinn er norskur og rækjurnar eru veiddar við Græn- land. Kál, tómatur, gúrka og annað grænmeti ásamt ostum er héðan.“ – Hvenær fluttir þú til útlanda og af hverju. Það gerðist allt mjög hratt eftir að ég sá fram á að þessi hugmynd gæti orðið að veruleika. Ég fékk hug- myndina 10. júlí 2019 og þremur vikum seinna, 31. júlí, sagði ég upp vinnunni. Svo í framhaldinu fór ég út í hverjum mánuði í misjafnlega langan tíma, stofnaði fyrirtækið, skoðaði fjöldan allan af húsnæði og keypti fyrirtækjabíl og fleira. Eins og ég sagði í upphafi þá var ég ekkert að hugsa um að flytja út en langaði að framkvæma þetta strax. Ég sagði Vigfúsi yfirmanni mínum í Flügger frá þessu og fékk mikinn stuðning og leyfi til að vera frá vinnu af og til svo framarlega sem allt væri í „orden“ í búðinni eins og hann orðaði það. Það má segja að Bubbi sé smá áhrifavaldur en ég er Bubba-fan og er með húðflúr á handleggnum með textanum „Lífið er aðeins dagurinn í dag og dagurinn á morgun ekki til“ úr laginu „Við vatnið“. Hef farið svo- lítið eftir þessu og langar að segja að ef einhver hefur löngun í að gera eitthvað svipað og sér möguleika á því að gera það að veruleika, þá láta vaða. Hafa þó eitt í huga sem ég hug- leiddi mikið, um bæði fjárhagslegu hliðina og önnur mál. Að ég væri tilbúinn til að taka áhættu en þó ekki meiri en ég gæti ráðið við. Ég flutti svo út 30. nóvember og Covid-19 kom svo nokkru seinna og riðlaði öllu en sem betur fer lítur þetta allt vel út og er bjart framundan.“ Lítið um smit – Hvernig er lífið þarna úti á Spáni, með tilliti til Covid-19 og svoleiðis? „Það hafa verið fyrirsagnir í blöð- unum heima um neyðarástand, útgöngubann og lokanir á ýmsum rekstri. Þetta er rétt en þó villandi, svipað eins og þegar hlutir eru teknir úr samhengi en á Alicante-svæðinu á margt af þessu ekki við. Flatarmál Spánar er rúmlega 500.000 ferkíló- metrar með tæpar 48 milljónir íbúa og er virkilega slæmt ástand í norð- urhlutanum þar sem meirihlutinn býr en Alicante-svæðið er grænasta svæðið á landinu og mjög lítið um smit. Hér í bænum var eitthvað um smit og var t.d. verið að slaka á með því að opna leiksvæði sem voru lokuð. Hér eins og annars staðar nota allir grímur og hendur spritt- aðar áður en farið er inn í allar versl- anir og alla aðra staði og hefur svo verið síðan í mars. Sett var á bann við að fara á milli sýslna til að koma í veg fyrir að fólk sé að ferðast inn á þetta svæði með hugsanlegt smit. Annars gengur lífið sinn vanagang og lítið rætt um Covid og að setja á sig grímu er jafn sjálfsagt og að setja á sig öryggisbelti og maður hefur lent í því að keyra með grímuna í fimmtán, tuttugu mínútur án þess að taka eftir því. Útgöngubannið, frá miðnætti til sex á morgnana, hefur ekki áhrif á neinn nema þá sem ætluðu sér á djammið eftir miðnætti. Væri líklega einnig til gagns annars staðar en mikið af smitunum í Ma- drid í byrjun þriðju bylgjunnar voru einmitt rakin til skemmtistaða sem voru opnir fram á nótt.“ – Það væri nú gaman að fá snittur á Suðurnesin. „Já, það er eitthvað til að pæla í – í framtíðinni. Þetta er svo gott og ég veit að það er margir sem eru sólgnir í danskt „smørrebrød“ og gætu hugsað sér að fá sér af og til. Við erum alltaf með ferskt, nýsmurt brauð á hverjum degi og seljum aldrei frá deginum áður. Það er oft eitthvað eftir og hef ég borðað tvo til þrjú brauð á nær hverjum degi í fjóra mánuði og verð eiginlega svekktur ef það klárast allt og ég fæ ekkert. Það væri nú gaman að geta boðið upp á þetta í heimabænum, hver veit? Þó ekki væri nema nokkra daga á ári til að byrja með,“ segir Einar og hlær. „Ég á miða á tón- leika með Bubba 21. apríl 2021 og hver veit nema verði boðið upp á „smørrebrød“ frá Snitten 22. og 23. apríl á einhverjum veitingastaðnum heima. Ég tek á móti pöntunum á www. snittenonline.com,“ sagði Einar að lokum. ... ég er Bubba-fan og er með húðflúr á handleggnum með textanum „Lífið er aðeins dagurinn í dag og dagurinn á morgun ekki til“ Roastbeef og rauðspretta eru vinsælustu snitturnar. Íslendingar hafa verið dug- legir að heimsækja Einar en Norðurlandabúar voru hvatinn að stofnun fyrirtækisins. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Velferðarsvið – Liðveisla Reykjanesbær – Almenn  umsókn Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum. Viðburðir í Reykjanesbæ Menningarverðlaun Reykjanesbæjar Að þessu sinni verður Súlan afhent í beinni útsendingu á Facebook síðu Reykjanesbæjar, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18:00. Bátavefur Gríms Karlssonar Fimmtudaginn 12. nóvember verður bátavefur Gríms Karlssonar opnaður á vefsvæði Byggðasafnsins. Þá gefst áhugasömum kostur á að skoða sögu hvers báts með vönduðum myndum af hverju módeli. Rafræn leiðsögn á sýningu Daða Föstudaginn 13. nóvember klukkan 12:00 verður birt Facebook síðu Listasafn Reykjanesbæjar rafræn leiðsögn á yfirstandandi sýningu Daða Guðbjörnssonar. vÍKurFrÉttir á SuðurneSJuM Í 40 ár // 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.