Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.11.2020, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 11.11.2020, Qupperneq 23
Víkurfréttir liggja frammi á eftirtöldum dreifingarstöðum á Suðurnesjum REYKJANESBÆR Landsbankinn, Krossmóa Olís Básinn BYKO, Víkurbraut Bókasafn Reykjanesbæjar Krambúðin, Hringbraut Sigurjónsbakarí, Hólmgarði Sundmiðstöð Keflavíkur Nettó, Krossmóa Nettó, Iðavöllum Nesvellir Kostur Njarðvík Krambúðin, Innri-Njarðvík GRINDAVÍK Nettó Verslunarmiðstöðin, Víkurbraut 62 VOGAR Verslunin Vogum / N1 GARÐUR Kjörbúðin Íþróttamiðstöðin SANDGERÐI Kjörbúðin Íþróttamiðstöðin FIMMTUDAG KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Már með nýja ábreiðu Veitingamenn á veirutímum Ívar skoðar Reykjanesskagann M E Ð A L E F N I S Í S U Ð U R N E S J A M A G A S Í N I Í Þ E S S A R I V I K U 1000 Mb/sek og 15 stjónvarpsstöðvar innifaldar „Ég er með (GÍG) 1000 mb/sek uppi á Ásbrú“ frá 10.590 kr/mán 24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Nautalund Þýskaland 3.599KR/KG ÁÐUR: 5.998 KR/KG Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 12.— 15. nóvember EITTHVAÐ FYRIR ALLA Í NETTÓ! Hamborgar- hryggur Með beini 999KR/KG ÁÐUR: 1.784 KR/KG -44% -40% Kiwi 299KR/KG ÁÐUR: 598 KR/KG -50% NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ SJÁVARSÍÐUNA REYKJANESBÆ OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN KL. 15 - 16. PÓSTHÚSSTRÆTI 5 Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000 Sú ákvörðun að lóga minkastofn- inum í Danmörku hefur mikil áhrif á Íslandi. Í Sandgerði rekur Skinn- fiskur fóðurverksmiðju og hefur framleitt fóður fyrir danska loð- dýrarækt með góðum árangri frá árinu 1997. „Þetta er stór bransi þarna úti og við erum með 2,5% markaðshlutdeild þar en framleiðsla á minkafóðri er aðalstarfsemi Skinnfisks svo þetta hefur gífurleg áhrif á okkur,“ segir Gulla Aradóttir, sölu- og gæðastjóri hjá Skinnfiski, í samtali við Víkur- fréttir. Skinnfiskur fær allt sitt hráefni til fóðurframleiðslunnar frá íslenskum fiskvinnslustöðvum en áður voru þessar aukaafurðir úr fiskvinnsl- unni annað hvort bræddar eða þær urðaðar. „Við munum byggja á áratuga- langri reynslu Skinnfisks til að finna hráefninu annan farveg svo ekki þurfi að urða hráefnið,“ segir Gulla. Markmið Skinnfisks frá stofnun hefur verið að fullnýta íslenskar sjávarafurðir. „Við erum stolt af því að hafa fundið hráefninu farveg í þessum mæli en því var áður að mestu fargað. Síðustu 23 árin höfum við nýtt hráefnið í minkafóður á danskan markað en nú eru vatnaskil og við erum að vinna í að finna því nýjan farveg. Aðalatriðið er að ekkert eða sem allra minnst fari í urðun,“ segir Gulla Aradóttir, sölu- og gæða- stjóri hjá Skinnfiski, að endingu. Landhelgisgæslan og Alverk undir- rituðu í síðustu viku samning um byggingu 50 rýma svefnskála á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar. Samningurinn var gerður í kjölfar alútboðs sem Framkvæmdasýsla ríkisins auglýsti í maí síðastliðnum. Samningsupphæðin er 473 millj- ónir króna með virðisaukaskatti. Svefnskálarnir eru ætlaðir er- lendum liðsafla sem dvelur tíma- bundið á Íslandi. Þeir eru brýn viðbót við skála sem þegar eru á ör- yggissvæðinu. Til stendur að fjölga svefnplássum í 300 talsins fram til ársins 2024. Landhelgisgæslan annast daglegan rekstur öryggis- svæðanna í umboði utanríkisráðu- neytis. Svefnskálinn sem nú fer í bygg- ingu er sá fyrri af tveimur sem fyrir- hugað er að byggja á næstu tveimur árum en endanleg ákvörðun um byggingu liggur ekki fyrir. Aðalhönn- uður byggingarinnar er Sigríður Ólafsdóttir, arkitekt hjá Grímu ehf., og um verkfræðihönnun sér Verk- fræðistofan EFLA. Aðalgeir Hólmsteinsson, fram- kvæmdastjóri Alverks, segir hönnun og undirbúning framkvæmda nú í fullum gangi þessar vikurnar og áætlar að verklegar framkvæmdir á svæðinu hefjist í desember. Um tuttugu manns munu að jafnaði koma að framkvæmdunum en Al- verk er þegar í viðræðum við jarð- vinnuverktaka og fleiri aðila á Suð- urnesjum varðandi aðkomu þeirra að verkefninu. Ætlun Alverks er að eiga samstarf við aðila af nær- liggjandi svæðum eins og kostur er. Kórónuveira í dönskum minkum hefur gífurleg áhrif í Sandgerði – Störf fyrir tuttugu manns að jafnaði á framkvæmdatímanum Keflavíkurflugvöllur: Skinnfiskur ehf. framleiðir minkafóður úr fiskafurðum á danskan markað: 50 rýma svefn- skáli fyrir tæpar 500 milljónir Hæsta bygging bæjarins tekur á sig mynd VÍKURFRÉTTAMYND: PÁLL KETILSSON Pósthússtræti 5 er án efa hæsta bygging Reykjanesbæjar. Hún tekur hratt á sig mynd þessar vikurnar en iðnaðarmenn eru þessa dagana að klæða húsið að utan. Það er komið fram í nóvember og allra veðra von en smiðirnir hafa verið heppnir með veður í haust. Myndin var tekin á þriðjudag þegar sólin baðaði háhýsin við Pósthússtræti ljósi sínu og regnbogi lét sjá sig skamma stund. MiðviKudagur 11. nóveMber 2020 // 43. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.