Faxi

Årgang

Faxi - 2020, Side 10

Faxi - 2020, Side 10
10 FAXI Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum 1. Stærstu áhrifin hafa verið á starfsemi ýmissa stofnana sveitarfélagsins, þar sem beita hefur þurft takmörkunum í samráði við tilmæli sóttvarnarlæknis og almanna- varna, ásamt reglugerðum heilbrigðisráð- herra. Í fyrstu bylgju faraldursins voru takmarkanir á skólastarfi, lokun á íþrótta- miðstöð o.fl. Nú í þriðju bylgju faraldursins hafa takmarkanirnar minni áhrif, einkum á skólana. 2. Að takast á við breyttan veruleika í daglegu lífi, sem og hið aukna atvinnuleysi sem hefur fylgt faraldrinum, hafa verið stærstu áskoranirnar fyrir íbúa. 3. Við höfum fyrst og fremst reynt að standa vörð um grunnþjónustu sveitarfélagsins, einkum þá sem snýr að börnum og ungmenn- um. 4. Já, ekki nokkur vafi í mínum huga að breytingar verði á vinnulagi til framtíðar. Nú þegar hefur starfsfólk sveitarfélagsins tileinkað sér ýmsar tæknilegar lausnir og úrræði sem til staðar eru. Ég er þess fullviss að margir munu sjá sér hag í að nýta sér það jákvæða úr þessari reynslu eftir að lífið færist aftur í eðlilegt horf. Áhrifin verða án efa mest á fundi og skipulag þeirra, með því að nýta fjarfundatæknina er unnt að draga umtalsvert úr ferðum og með því móti hafa jákvæð áhrif á umhverfið. 5. Rekstrarstaða sveitarfélagsins er erfið, bæði árið 2020 og fyrirséð að hún verði einnig erfið árið 2021. Það mun taka okkur langan tíma að vinna okkur út úr þeim erfiðleikum sem að okkur steðja, einkum hið mikla tekjutap sem sveitarsjóður verður fyrir í tengslum við afleiðingar faraldursins. Við erum þess þó fullviss að batinn mun koma, en gerum okkur jafnframt grein fyrir að það mun taka okkur talsverðan tíma að ná fyrri styrkleika. 6. Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Það má draga margvíslegan lærdóm af áhrifum faraldursins, ekki síst finnst mér jákvætt hversu vel starfsmenn sveitar- félagsins og íbúar hafa staðið vel saman í þessum þrengingum. Það hefur ríkt góður skilningur á þeim ráðstöfunum sem grípa hefur þurft til, og allir hafa lagst á eitt um að standa saman. Þegar faraldurinn er yfir- staðinn og lífið kemst aftur í eðlilegt horf er mikilvægt að staldra við, fara yfir hvernig til tókst og hvaða lærdóm má draga af reynsl- unni. Það munum við örugglega gera. 1. Hver hafa stærstu áhrifin af Covid 19 verið á þitt bæjarfélag? 2. Hverjar hafa verið stærstu áskoranirnar fyrir íbúa? 3. Hvaða viðspyrnu hafið þitt veitt til að dempa áhrifin? 4. Telur þú að kórónuveirufaraldurinn muni hafa veruleg áhrif á vinnulag til framtíðar, jafnt í stjórnsýslunni sem hjá fyrirtækjum í bænum? 5. Nú þegar glittir í 2021 hvernig sérðu stöðu þíns bæjarfélags í skugga heimsfaraldurs á nýju ári? 6. Hvaða lærdóm má draga af áhrifum faraldins? Kannski einhvern jákvæðan? ? Ljósm. Markaðsstofa Reykjaness

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.