Faxi - 2020, Síða 15
FAXI 15
Erlingsdóttir, Júlíus Óttar Björgvinsson og
Jóhann Hallur Jónsson, öll hjá Orgelsmiðju
Björgvins Tómassonar og Grétar Rein-
harðsson rafvirki hjá Nesraf. Um gyllingu
framhliðar sá Sigmar Vilhelmsson málari.
Það má heyra á máli Arnórs að með nýju
orgeli opnast margir möguleikar sem hann
er spenntur að leyfa söfnuðinum að heyra.
Nýja orgelið er 20 radda og hefur fengið
principal 8 sem þýðir að hljómur hljóð-
færisins hefur aukist til muna, en principal
röddin er grunnrödd hljóðfærisins. Þá
hefur bæst við fagott 16´ rödd í nokkurs
konar bassaboxi sem útbúið var í ónýttu
rými á kirkjuloftinu, sem gefur möguleika
á skemmtilegri nýbreytni. Þá segir Arnór
góða viðbót að fá raddirnar gamba 8` og
vox coelestis 8` sem gefa honum færi á að
búa til óræða stemmningu en henti auk
þess sérstaklega vel í kyrrðarstundum.
Bluetooth takkinn á orgelinu gerir það
einnig að verkum að organistinn er ekki
lengur háður nótum á blaði, heldur getur
beintengt sig við spjaldtölvu. Snjalltæknin
er einnig nýtt á auka spilaborði sem sett
hefur verið framan við söfnuðinn, sem
gefur tækifæri á annars konar nýtingu
orgelsins en áður hefur þekkst.
Þegar Keflavíkurkirkja var reist á árunum 1914 – 1915 færði kvenfélagið Freyja kirkjunni nýtt harmóníum-orgel, en konur
í Freyju unnu mikið og óeigingjarnt starf í þágu kirkjunnar.
Ein Freyjukvenna var Marta Valgerður Jónsdóttir Hún sendi
sóknarnefnd Keflavíkurkirkju bréf 31. janúar 1915 þar sem hún
býðst til þess að spila „í hinni nýju kirkju endurgjaldslaust í vetur,“
eins og fram kemur í afmælisriti Keflavíkurkirkju. Sóknarnefnd
þáði boð Mörtu og varð hún þar með fyrsti organisti Keflavíkur-
kirkju.
Friðrik Þorsteinsson tók við starfi organista af Mörtu Valgerði.
Þegar hann hafði gegnt starfinu í fimm ár var harmóníum-orgelið
sem Freyjurnar gáfu selt og annað nýtt og stærra keypt í kirkjuna
árið 1923. Í sögu Keflavíkurkirkju 1915 – 1985 eru tilgátur um að
Friðrik hafi haft áhrif á að nýtt orgel yrði keypt.
Enn var komið að endurnýjun orgels árið 1952. Þá var keypt
ensk rafmagnsorgel sem vígt var á síðasta degi ársins 1952. Nýja
orgelið bauð upp á margfalt meiri möguleika en gamla harmóní-
um-orgelið, enda rafmagns, hafði tvö spilaborð og pedal og var 11
radda.
Geir Þórarinsson tók við organistastarfinu í Keflavíkurkirkju af
Friðrik árið 1964. Geir hafði þá verið organisti í Njarðvíkurkirkju
frá 1960 og var að hans undirlagi pantað pípuorgel í kirkjuna frá
Walcker-orgelverksmiðjunni í Vestur-Þýskalandi og það sett upp
árið 1963. Þegar kom svo að breytingum og stækkun Keflavíkur-
kirkju var gert ráð fyrir pípuorgeli í hana. Fyrir valinu varð 16
radda pípuorgel frá sama framleiðanda og Njarðvíkurkirkja hafði
átt viðskipti við stuttu áður, einnig með tvö spilaborð og pedal.
Hljóðfærið kostaði kr. 900.000 og átti systrafélag Keflavíkurkirkju
stærstan þátt í fjáröfluninni vegna orgelkaupanna. Orgelið var
vígt árið 1967 og þjónaði því söfnuðinum allt fram á þetta ár,
þegar það var tekið niður í febrúar og úr því nýtt sem hægt var að
nýta í nýja orgelið.
Organistar Keflavíkurkirkju
Arnór Vilbergsson 2008 – nú
Hákon Leifsson 2001 – 2008
Einar Örn Einarsson 1990 – 2001
Siguróli Geirsson 1977 – 1990
Geir Þórarinsson 1964 – 1977
Friðrik Þorsteinsson 1918 – 1964
Marta Valgerður Jónsdóttir 1915 - 1918
Heimildir:
Þarf ekki lengur að sparka í orgelið. (2020, 15. september). Morgublaðið.
Drottningin býður prufukeyrslu. (2002, 28. nóvember). Morgunblaðið.
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju. (1985). Keflavíkurkirkja 1915 – 1985.
Keflavík, Grágás.
Stiklað á stóru um orgel Keflavíkurkirkju frá upphafi
Friðrik Þorsteinsson við
enska rafmagnsorgelið.
Bluetooth takkinn á orgelinu gerir það að verkum að er
organistinn er ekki lengur háður nótum á blaði.