Faxi

Árgangur

Faxi - 2020, Síða 20

Faxi - 2020, Síða 20
20 FAXI Stefnt er að því að sýningin verði byggð upp af þremur meginþáttum. Í fyrsta lagi er það Varnarliðið sjálft, upp- bygging herstöðvarinnar og hlutverk hennar í þeim óróa sem fylgdi í kjölfar seinni heims- styrjaldar. Árið 1951 kom Varnarliðið til Keflavíkur eftir undirritun varnarsamnings milli ríkisstjórna Íslands og Bandaríkjanna um hervarnir Íslands á þeim ógnvænlegu tímum sem þá voru í heimsmálunum. Kalda stríðið var staðreynd og varði í áratugi, allt þar til Sovétríkin leystust upp undir lok síð- ustu aldar og Bandaríkjamenn misstu áhug- ann á að halda úti herstöð á Íslandi. Þessi hluti sýningarinnar mun fjalla um herstöðina sem slíka, tækin og tólin sem notuð voru og ekki síst að minnast framgöngu þyrlusveitar Varnarliðsins sem vann ómetanlegt björg- unarstarf hér á landi í áratugi. Í öðru lagi og nátengt veru Varnarliðsins er uppbygging eina alþjóðaflugvallar Íslendinga, sem í dag gengur undir nafn- inu Keflavíkurflugvöllur. Saga hersetu á Suðurnesjum nær til ársins 1941. Í júní það ár var lögð 1.5 kílómetra löng og 90 metra breið flugbraut á Garðskaga sem gekk undir nafninu Skagavöllur en var hins vegar lítið notuð. Um svipað leyti var hafist handa við gerð flugvallar á Njarðvíkurheiði, rétt neðan við Háaleiti á svonefndum Sviðningum en sá flugvöllur var nefndur Pattersonflugvöllur. Fljótlega eftir að þær framkvæmdir hófust snemma árs 1942 var lagt í gerð þriðja flugvallarins og varð fyrir valinu svæði á Miðnesheiði sem heitir Háaleiti. Þar var gerður flugvöllur sem í fyrstu var nefndur Meeksvöllur en er betur þekktur í dag sem Keflavíkurflugvöllur. Báðir flugvellirnir voru nefndir eftir flugmönnum sem fórust hér við land á stríðsárunum. Framkvæmdir við hann hófust í júlí 1942. Í stríðslok var Meeksvöllur orðinn einn stærsti flugvöllur í heiminum og hafði þá gegnt mikilvægu hlutverki við birgðaflutninga í lofti milli Bandraríkj- anna og Evrópu í stríðinu. Þetta var aðeins upphafið af umtalsverðu ævintýri á Miðnes- heiðinni. Varnarsvæðið varð miðdepill umræðunnar varðandi varnir eða ekki varnir landsins. Skagavöllurinn lifði stutt og svipaða sögu er að segja af Patterson, þótt hann sé reyndar ennþá vel sýnilegur. En Meeksvöllur er enn í fullu fjöri sem millilandaflugvöllur Íslendinga, en það var 5. október 1946 sem flugvöllurinn komst í eigu Íslendinga með undirritun Keflavíkursamningsins. Lengst af var völlurinn hins vegar rekinn af bandaríska Varnarliðinu. Einstakt samfélag Í þriðja lagi mun væntanleg sýning ekki síst snúast um þau samfélagslegu áhrif sem vera Varnarliðsins hafði hér á landi og er einkar athygliverð, ekki síst fyrir Íslendinga. Í raun má segja að fimm þúsund manna amerískum bæ hafi verið plantað í bakgarði íslenskra fiskiþorpa á Suðurnesjum með margvís- Hermenn að koma í hús, jólaskraut? Drengur fremst í hermannalegum búning, með borða á hand- legg "MP" og leikfangabyssu. Myndin er líklega tekinn milli áranna 1943 – 1945. Íslenskur lögreglumaður og bandarískur hermaður á vakt í einu af hliðum Keflavíkurflugvallar. Dagsetning er ekki þekkt. Ljósmynd af F15 orrustuþotu sem stendur á blautri flugbraut, á myndina er ritað „F15E Strike Eagle.“ Samskonar þotur voru staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Nokkrar slíkar myndir í römmum hafa komið til okkar síðastliðið ár. Ljósviti sem var á vatnstanki Keflavíkurflug- vallar. Vitinn sýndi tvö hvít og eitt grænt ljós. Vitinn samanstendur af tveimur stórum kast- ljósum sem hvort um sig var með tveimur 1.200 vatta ljósaperum í hvorum kastara. Ljósið snerist í hringi ofan á vatnstanknum og fór sex hringi á mínútu.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.