Faxi

Árgangur

Faxi - 2020, Síða 21

Faxi - 2020, Síða 21
FAXI 21 legum áhrifum og afleiðingum. Áhrif veru Varnarliðsins urðu gríðarleg á samfélagið í heild og ekki síst nærsamfélag hersins. Þessi áhrif eru ennþá að koma í ljós og er það m.a. markmið sýningarinnar að draga þau fram. Það samfélag sem varð til innan varnar- girðingarinnar milli Íslendinga og Banda- ríkjamanna var einstakt á Íslandi. Þar blandaðist saman fólk úr fjölmörgum menningarsamfélögum sem komu víða að. Íslendingar voru nokkuð fjölmennir sem verkafólk hjá flestum fyrirtækjunum sem voru á Vellinum og í stjórnunarstöðum nokkurra stofnana innan girðingar. Við komu Varnarliðsins jókst gríðarlega þörf á verklegum framkvæmdum við uppbyggingu og viðhald herstöðvarinnar. Einnig þurfti að sjá til þess að hermenn á frívakt hefðu eitthvað að gera sem leiddi m.a. til stofnunar ýmissa klúbba á varnarsvæðinu. Á sama tíma og íslensk stjórnvöld voru með samning um veru Varnarliðsins vildu þau sömu stjórn- völd ekki að hermenn yrðu mikið á vegi Íslendinga. Margir þeirra hermanna sem komu með Varnarliðinu 1951 og næstu ár á eftir voru einhleypir ungir menn sem eðli- lega sóttu í samskipti við íslenskar konur. Til gamans má nefna að í tímaritinu Vikan frá júní 1951 var stutt grein sem lítur nánast út eins og auglýsing til íslenskra kvenna um að á Keflavíkurflugvelli séu ungir menn á lausu sem vert sé að kynnast. Brot af þeim gripum sem hafa komið nýlega til byggðasafnsins vegna varnarliðssöfnunarinnar og bíða skráningar. Reyklosunarblásari frá "Vanguard." Blásarinn er svartur og rauður á litinn og knúinn áfram af 2 cylendra16hp "Briggs og Stratton" mótor sem á er fest fjögurra blaða loftskrúfa úr tré. Á blásaranum er límt merki slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Blátt húsnúmeraskilti með ljósum endurskins- stöfum og útjaðri. Á skiltið er letrað „782.“ Þetta var húsnúmerið á gömlu flugstöðinni sem stóð við svokallað Háaleitishlað á Keflavíkur- flugvelli. Gamla flugstöðin var byggð sem flug- stöð og hótel við Keflavíkurflugvöll. Hafist var handa við byggingu flugstöðvarinnar haustið 1947. Flugstöðin átti að vera af fullkomnustu gerð og með hótelherbergjum á annarri hæð. Byggingu var lokið í apríl 1949. Flugstöðin var timburklædd að utan og með þunnu áli. Upp- hafleg lýsing á henni er finnanleg í grein í Vísir frá 11. apríl 1949, bls, 4 „Flugstöðvarbyggingin í Keflavík er eins vönduð og frekast er unnt. Ræða Harðar Bjarnasonar skipulagsstjóra við vígslu hússins." [http://timarit.is/] og í viðauka sögukafla húsakönnunarinnar. [http://www. minjastofnun.is/media/husakannanir/02_ Haaleitishlad_Lokasyrsla.pdf]. Eftir að Íslendingar eignuðust nýja flugstöð (Flugstöð Leifs Eiríkssonar) þjónaði gamla Keflavíkurstöðin sem flugstöð fyrir bandaríska herinn og á sama tíma hýsti hún að hluta ýmiskonar þjónustu svo sem verslun og í lokin þjónaði hún sem ráðgjafar- og þjónustumið- stöð flotans (Counseling and Assistance Center (CAAC)). Byggingin var svo rifin niður 2018. Brot úr flugvél af gerðinni "Junkers Ju 88 D-5", sem var skotin niður á Strandarheiði 24. apríl 1943. Laugardagsmorgunn 24. apríl 1943 kl.: 13:00 er tilkynnt um flugvél yfir Reykjavík sem stefnir á Keflavík. Nokkrum mínút- um seinna er það staðfest að flugvélin sé þýsk Luftwaffe Ju88. Í framhaldinu voru nálægar loftvarnabyssur settar í viðbrags- stöðu og tvær orustuflugvélar sendar í loftið frá Reykjavík og stefnt í átt að Keflavík. Skyggnið var lélegt, lágskýjað og regnskúrir, en fór batnandi. Tvær P-38 orrustuvél- ar frá USAAF 50th FS2 fara í loftið frá Patterson flugvelli við Keflavík. P-38 flugmönnunum er beint að óvinavélinni frá radarstöð á jörðu niðri þannig að þeir flugu í veg fyrir Ju88 vélina til að komast í árásarstöðu. Ju88 flugvélin reynir að flýja og orrustan færist nær Vatnsleysuströnd og Strandarheiði. Nokkur skot frá P-38 vélun- um hæfðu Ju88 vélina þannig að hún fórst. Junkers Ju 88 vélin var í könnunarflugi frá Sola í Noregi og var að skoða Hvalfjörð, Reykjavík og Keflavík þegar hún var skotin niður. Með henni fórust þrír menn en einn bjargaðist og var tekin til fanga af Banda- ríkjaher. Hann var fyrsti þýski flugliðinn sem tekinn var til fanga á Íslandi í stríðinu. Vél sem notuð var til mælingar á skýjahæð. Þessi vél var einn hluti af þremur til að mæla hæð skýja með því að senda ljós upp í skýin. Ljósið endurkastaðist svo niður í aðra vél sem sendi svo merkið í þriðju vélina sem las úr merkinu og gaf upp skýjahæðina. Þessi vél var framleidd einhvern tíma á árunum 1959 til 1972, en miðað við númer í kassanum er líklegt framleiðsluár 1967.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.