Faxi - 2020, Qupperneq 23
FAXI 23
Drottningin
Fritz Már Jörgensson
Presturinn í Keflavíkurkirkju skrifar
spennusögu sem fjallar um svik, morð
og valdatafl í ofbeldisfullum veruleika á
Íslandi.
Fjarvera þín er myrkur
Jón Kalman Stefánsson
Þetta er þrettánda skáldsaga Jóns Kalman
sem segir frá lífi, kynslóð fram af kynslóð
og yfir staði og tíma.
Lífið á vellinum
Dagný Maggýjar
Hvaða áhrif hafði amerísk varnarstöð á
Keflavíkurflugvelli í hálfa öld og hvernig var
sá kokteill ólíkra menningarheima? Hér er
sjónum beint að hinu hversdagslega.
Fávitar
Sólborg Guðbrandsdóttir
Átakið Fávitar birtist nú í bókaformi þar
sem Sólborg hefur tekið saman spurningar
sem henni hafa borist síðastliðin ár og svör
við þeim. Fávitar er samfélagsverkefni gegn
stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi.
Að eilífu ég lofa
Sigga Dögg
Að eilífu ég lofa er fimmta bók kyn-
fræðingsins Siggu Daggar og hennar fyrsta
barnabók. Hér er fjallað um skilnað á fal-
legan hátt en líka ástina og vináttuna.
Það sem ég hef lært
Anna Lóa Ólafsdóttir
Bókin byggir á hamingjuhorni Önnu Lóu og
pistlum sem þar hafa verið birtir og fjallar
um hamingjuna, sorgina, ástina, sambönd,
breytingar, sjálfstraust, kvíða og fleira.
Íslenskir matþörungar,
ofurfæða í fjörunni
Eydís Mary Jónsdóttir og Silja Dögg Gunnars-
dóttir skrifa ásamt Hinrik Carl Ellertssyni
og Karl Peterssyni um íslenska matþörunga.
Þar má finna alhliða fróðleik um undraheim
matþörunga og er fjallað um sjálfbæra nýt-
ingu, verkun og geymsluaðferðir auk þess sem
bókin inniheldur fjölda mataruppskrifta.
Ísland, náttúra og undur
Ellert Grétarsson
Ellert gefur frá sér aðra ljósmyndabók á
stuttum tíma en að þessu sinni er sjónum
beint að Íslandi og myndir sýna ýmsar
fáfarnar og áhugaverðar náttúruperl-
ur, tignarleg eldfjöll, hrikalegt landslag
jöklanna og undraheim hraunhellanna.
Til þeirra
Unnur Guðrún Þórarinsdóttir
Bókin geymir ljósmyndir og tilfinningar.
Hún er nokkurs konar dagbók ljóða, bréfa,
bakþanka og hugrenninga. Allur ágóði
rennur til alnæmissamtakanna á Íslandi og
Laufsins.
Hasar í hrauninu
Sigríður Etna Marinósdóttir.
Bókin fjallar um vinina Þórkötlu, Gnúp og
Járngerði. Þeim þyrstir í ævintýri og ákveða
að fara að leika sér í hrauninu í kringum
bæinn sinn. Saman lendir hópurinn í
óvæntum atburð sem leiðir þau í spennandi
ferðalag í hrauninu.
Bakað
Með Elenoru Rós
Aragrúi ómótstæðilegra uppskrifta, allt frá
einföldum súrdeigsbakstri, frönsku fínheita-
bakkelsi, Berlínarbollum, súkkulaðivafn-
ingum, kleinum, brauðréttum og samlokum
sem slá í gegn.
Minningin um minnkinn
Sævar Sævarsson
Sprenghlægileg frásögn af bandaríska
körfuboltamanninum Jimmy Miggins sem
lék og æfði með körfuboltaliði Keflavíkur í
stuttan tíma árið 2004. Bókin er fyrsta verk
Sævars Sævarssonar, lögfræðings og bekkja-
setumanns í körfubolta.
Reykjanesið í brennidepli
Hér eru svo tvær bækur þar sem
Reykjanesið kemur við sögu. Þar er
fjallað um jarðhræringar á Reykjanesi
og síðasta geirfuglinn sem veginn var á
Reykjanesi.
Eldarnir, ástin og aðrar hamfarir
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eld-
fjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára
hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjalla-
fræðingurinn Anna Arnardóttir forstöðu-
maður jarðvísindastofnunar sem þarf að
takast á við eitt stærsta verkefni almanna-
varna.
Fuglinn sem gat ekki flogið
Gísli Pálsson
Hér er geirfuglinn í aðalhlutverki en sá
síðasti var veginn í Eldey á Reykjanesi árið
1884. Hér er veiðiferðin í brennidepli.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýja árinu.
Þökkum samskiptin á liðnu ári.
Jólapennar