Faxi - 2020, Page 25
gistingu í Húsafelli. Loks var svo farin ferð
frá Baulu í Borgarfirði yfir Sópandaskarðið í
Hörðudal og til baka. Venjulega eru 15 til 30
manns með í ferð sem er einstakt á landsvísu.
Skemmtilegast finnst okkur þó að keyra
um Reykjanesið því það hefur upp á ótrúlega
fjölbreytt landslag að bjóða, alltaf eitthvað
nýtt sem kemur í ljós í hverri ferð.
Þegar keyrt er upp frá Suðurstrandarvegi
upp að Fagradalsfjalli og þar í kring er eins
og að vera kominn að Fjallabaki, hrikalegt
landslag, hólarnir og hraunið er ótrúlega
fallegt á því svæði. Þá er hægt að keyra yfir að
Höskuldarvöllum upp að Spákonuvötnum,
leið sem liggur milli nokkurra eldgýga. Þar
uppi sést yfir hálfan Reykjanesskagann og
alla leið til Reykjavíkur. Ótrúleg fegurð rétt í
bakgarðinum hjá okkur.
Þá er einnig mjög falleg leið að aka Djúpa-
vatnsveginn að Sveifluhálsi en þar fer maður
yfir að Kleifarvatni. Þar er hægt að eyða
deginum við útivist og ævintýri.
Ekki vita margir Suðurnesjamenn af einu
merkilegu náttúruundri eða eina fossinum á
Reykjanesinu en hann rennur fram af Krísu-
víkurbergi rétt austan við Krísuvíkurvita. En
varast ber að fara of nálægt bergbrúnni þar
sem bergið er allt þversprungið og margar
syllur við það að falla niður í fjöruna.
Ein mjög falleg ferð er að keyra uppá
Þórðarfell, sem er fellið sunnan við Stapafell
sem nú er nærri horfið í vegi og húsgrunna
hér á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæð-
inu. Ofan af Þórðarfellinu er frábært útsýni
yfir allan Reykjanesskaga. Þaðan sést vel í
Eldvörpin og yfir til Grindavíkur, Eldeyjar og
yfir Reykjanesið, allt að Garðskaga.
Þess má geta að nú er verið að skipuleggja
sumarið 2021 en lengsta ferðin verður líklega
fjögurra til sex daga ferð sem farin verður
seinni hlutan í júlí frá Dalatanga alla leið á
Látrabjarg eftir hálendisslóðum.
Þá er í bígerð ferð um vegaslóða á Vest-
fjörðum. Svo eru auðvitað skipulagðar styttri
ferðir um hálendið frá júlí fram í september.
Til þess að geta farið í þessar ferðir þarf
fjórhjól eða Buggy bíl og ævintýralöngun,
hafa áhuga á útivist, fallegu landslagi og
bera virðingu fyrir Íslandi og náttúru þess.
Þetta eru algjör skilyrði þess að gerast félagi í
Melrökkum.
Guðbergur Reynisson
og Kristján Þór Jakobsson
FAXI 25
Melrakkar á ferð um Skógshraun
Melrakkar við Hólaskjól
Áð við Höskuldarvelli Hópurinn við eina fossinn á Reykjanesi
Hópurinn með Heklu í baksýn