Faxi - 2020, Page 27
FAXI 27
Lokuð samkeppni
Efnt var til lokaðrar samkeppni um
byggingu nýs safnaðarheimilis við kirkj-
una sem var undirbúin og framkvæmd í
samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Fimm
aðilum/hópum var boðin þátttaka sem
skiluðu tillögum sínum til dómnefndar
þann 17. janúar 1992. Eftir mikla yfirlegu
komst dómnefnd að þeirri niðurstöðu að
hugmynd þeirra Elínar Kjartansdóttur,
Haralds Ó. Jónssonar og Helgu Benedikts-
dóttur uppfyllti öll skilyrði samkeppninnar.
Um vinningshugmyndina var m.a. sagt
að höfundar hefðu sterk skipulagsleg tök
á svæðinu. „Jafnvægi ríkir á lóðinni og
sjónræn tengsl milli safnaðarheimilis og
kirkju eru góð. Tengslin við sali safnað-
arheimilis úr kirkjuskipi undirstrika þau
markmið höfunda að skapa tilfinningaleg
tengsls kirkjugesta við kirkju og athöfnina í
kirkjunni.“ (Faxi 1. tbl. 52. árg. 1992).
Úrslitin voru kynnt í samsæti sem
sóknarnefnd hélt í febrúarlok ásamt
því sem allar tillögur voru kynntar.
Sóknarnefnd samþykkti síðan á fundi sín-
um 22. apríl 1992 að byggja safnaðarheimili
eftir nánari útfærslu á vinningstillögunni.
Þá áttu fleiri hagsmunaaðilar eftir að fjalla
um tillöguna, s.s. Húsfriðunarnefnd ríkis-
ins en hún skilaði síðar inn jákvæðu áliti á
hönnun safnaðarheimilis og staðsetningu
þess við kirkjuna, einnig á hönnun anddyris
framan við kirkjuna, sem ráðist var í að
byggja samhliða safnaðarheimili.
Bygginganefnd Keflavíkur felldi um-
sókn um lóð undir safnaðarheimili við
Keflavíkurkirkju á fundi sínum í nóvember
1992, aðeins einn greiddi atkvæði með um-
sókninni en hinir fjórir voru á móti. Heyra
mátti rök eins og að byggingarreiturinn
væri „einn sá þokkalegasti í bæjarfélaginu“,
„meirihluti íbúa verður að vera sáttur“ og
„það form sem nú er á þessum bletti fer
mjög vel og honum vil ég ekki klúðra.“ Sá
eini sem var hlynntur lóðarumsókn benti á
að verið væri að úthluta lóð en ekki spyrja
um útlit á safnaðarheimili, sem honum
fannst menn vera fastir í. Hér sem annars-
staðar virðast miklar tilfinningar gagnvart
lóðinni umhverfis Keflavíkurkirkju hafa
yfirtekið umræðuna.
Bæjarstjórn Keflavíkur samþykkti litlu
síðar að lóðin yrði færð kirkjunni að gjöf
þó samþykkt um byggingu á lóðinni lægi
ekki fyrir.
Í grein sem bygginganefnd ritaði í 5. tbl.
Faxa árið 1993 sagði nefndin óeðlilegt að
fyrstu viðbrögð manna væru þau „að ekki
megi hrófla við kirkjulóðinni og hinum
fallega boga sem Kirkjuteigurinn er. Það
sama stóð undirbúningsnefndin frammi
fyrir í byrjun.“ Allir þeir sem hafi komið að
þessari fyrirætlan séu hins vegar sammála
um að réttast sé að byggja á kirkjulóðinni
og í anda þeirrar hugmyndar sem hlut-
skörpust var.